Morgunblaðið - 12.10.2020, Síða 32

Morgunblaðið - 12.10.2020, Síða 32
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Vatnsleikfimi er allra meina bót. Það vita þeir sem reynt hafa. „Hreyfingin er lífsnauðsynleg því hún er svo heilsusamleg,“ segir Bjarni Ellert Bjarnason, sem hefur stundað leikfimi reglulega í Seltjarnarneslaug síðan 1998 eftir að hafa unnið þar áður í 11 ár. Nýtil- komið samkomubann vegna kórónu- veirunnar veldur þó því að hann má ekki fara í laugina að minnsta kosti út vikuna. „Vatnsleikfimin er sem vítamín í gamla skrokka og ég vona að ég komist aftur í laugina sem fyrst.“ Haukur Geirmundsson tók við sem íþróttafulltrúi á Seltjarnarnesi 1997 og eitt af fyrstu verkunum var að endurvekja vatnsleikfimina sem lagðist af eftir að Margrét Jóns- dóttir, sem hafði verið allt í öllu í trimmklúbbnum og leikfimi í laug- inni á Nesinu, hvarf til annarra starfa. „Vatnsleikfimin er vel sótt og fólk kann vel að meta þessa þjón- ustu í boði bæjarins,“ segir Haukur, en eftir tímana setjast þátttakendur gjarnan niður saman, fá sér kaffi og spjalla. „Við ræðum allan fjandann í pottinum og kaffinu á eftir,“ segir Bjarni. „Pólitík, grindarbotninn og hvaðeina. Allt er tekið fyrir.“ Fólkið hreyfir sig í takt við tónlist og fjörið leynir sér ekki. „Ég er allt- af mættur í laugina klukkan sjö, sama hvernig viðrar,“ segir Bjarni, sem verður 90 ára í desember og var lítið sem ekkert í íþróttum eða líkamsrækt fyrr en hann byrjaði 68 ára í sundleikfiminni. „Vatnið er miskalt á morgnana en þá er um að gera að djöflast nógu mikið til þess að halda á sér hita.“ Ferðalög og skemmtanir Allir eru velkomnir en ákveðinn kjarni mætir alltaf, svonefndir pott- verjar, og hefur líka haldið hópinn utan laugar. Meðal annars hafa þeir farið saman til Skotlands, ferðast um Suðurland með Guðna Ágústs- syni og um Dalina með Guðna og Svavari Gestssyni. „Maður var al- veg úttroðinn af visku þegar maður kom til baka,“ segir Bjarni. „Við ætluðum til Siglufjarðar í sept- ember en ferðin fór út um þúfur vegna helvítis pestarinnar. Svo er- um við með haustfagnað, þorrablót og vorfagnað á Rauða ljóninu.“ Boðið er upp á tvo tíma á morgn- ana og tvo á kvöldin. Morgun- tímarnir byrja klukkan 7.10 á þriðjudögum og fimmtudögum og síðdegistímarnir klukkan 18.30 sömu daga. Þeir eru um 35 til 40 mínútna langir. Kolbeinn Pálsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfu- bolta, stjórnar ferðinni á morgnana en Ísold Norðfjörð síðdegis. „Ég hef hlaupið í skarðið í gegn- um árin en séð mestmegnis um þetta allt í ár,“ segir Kolbeinn og leggur áherslu á að hann sé ekki launaður starfsmaður heldur hluti af hópnum og hafi lagt sig fram í starfinu innan sem utan laugar. „Þegar mjöðmin gaf sig í fyrsta skipti fyrir 15 árum byrjaði ég að mæta í þessa tíma. Þá var ég aðeins sextugur og taldi vatnsleikfimi að- eins vera fyrir gamlingja en annað kom á daginn. Menn á svipuðum aldri bættust fljótt við, því fjölgaði í hópnum, þetta hefur verið mjög skemmtilegt og fastur hluti tilver- unnar.“ Kolbeinn er í nefnd á vegum Íþróttasambands Íslands, 60+, sem hefur það markmið að efla heilsuefl- ingu „heldri borgara“. „Ég hvet alla til að taka til hendinni með aukinni hreyfingu og opinbera aðila til þess að stórauka framboð fyrir þennan hóp, það er fjárfesting sem marg- borgar sig til baka.“ Grindarbotn og pólitík Morgunblaðið/Eggert Vatnsleikfimi Þátttakendur gera æfingar í takt við tónlistina.  Leikfimi fyrir heldri borgara í Seltjarnarneslaug Heldri borgarar Kolbeinn Pálsson, Bjarni Ellert Bjarnason og Guðmundur B. Sigurgeirsson í líkamsræktinni í lauginni í liðinni viku. Tólf metra löng beinagrind af risaeðlu, Tyrannosaurus rex, var boðin upp á myndlistaruppboði hjá Christie’s í New York í liðinni viku og fékkst fyrir hana hærra verð en fyrir málverk eftir meistarana Picasso, Pollock og Monet sem einnig voru boðin upp. Beinagrindin hafði lengi verið til sýnis hjá náttúrugripastofnun í Suður- Dakóta og gekk undir nafninu Stan. Beinagrindin var metin á allt að átta milljónir dala en margir buðu í hana og á endanum var hún slegin ónafngreindum hæstbjóð- anda fyrir 31,8 milljónir dala, um 4,4 milljarða króna. Risaeðlan reyndist dýrari en mál- verk eftir Picasso og Pollock MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 286. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Skref til framdráttar væri að fara með deildina á gervi- gras og flóðljós. Á gervigrasi gætum við lengt tímabilið og það væri til bóta. Ef veðrið er slæmt væri hægt að fresta leikjum. Í október er til dæmis oft frábært knatt- spyrnuveður og stilla þótt það sé kalt. Oft er skítakuldi á meginlandi Evrópu á veturna þegar deildirnar eru í gangi,“ segir Arnar Grétarsson, þjálfari karlaliðs KA í knattspyrnu, meðal annars í samtali við Morgunblaðið í dag. Arnar tók við KA á miðju sumri en hefur nú gert nýjan tveggja ára samning við félagið. »26 Væri til framdráttar að lengja tíma- bilið ef aðstæður eru fyrir hendi ÍÞRÓTTIR MENNING Sýndu að þú sért framúrskarandi EKKI SPARA KRAFTANA Í KRAFTI CREDITINFO Á hverju ári mælir Creditinfo hreysti íslenskra fyrirtækja út frá lykiltölum í rekstri síðustu þriggja ára. Að jafnaði standast aðeins 2% fyrirtækja þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi fyrirtækja sem þýðir að þau eru komin í úrvalshóp, landsliðið í sinni grein, og eru líklegri til að ná árangri og standast álag en önnur. Ef þitt fyrirtæki er í þessum hópi getur þú pantað vottun og sýnt að þú sért framúrskarandi. Kynntu þér málið á creditinfo.is. ER ÞITT FYRIRTÆKI FRAMÚRSKARANDI? PANTAÐU VOTTUN!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.