Morgunblaðið - 14.10.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2020
Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00
Mikið úrval af
KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM
fyrir allar gerðir bíla
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Starfshópur um uppbyggingu snjó-
flóðasafns á Flateyri hefur óskað eft-
ir samtali við Ísafjarðarbæ um að
finna varðskipinu Ægi stað á Flat-
eyri. Ætlunin er að koma upp snjó-
flóðasafni í skipinu en einnig nýta
það fyrir gisti- og veitingaþjónustu.
Forsvarsmaður hópsins, Eyþór Jó-
vinsson, telur að skipið sjálft myndi
hafa mikið aðdráttarafl.
Starfshópurinn hefur leitað að
húsnæði fyrir snjóflóðasafn á Flat-
eyri. „Við höfum ekki náð að festa
neitt. Við höfum verið að horfa til
þess að setja safnið í húsnæði sem
tengist snjóflóðasögunni. Þar sem
lítið framboð er á slíku húsnæði fór-
um við að hugsa um aðrar lausnir og
datt í hug að fá varðskipið Ægi. Við
vitum að það er búið að þjóna sínu
hlutverki hjá Landhelgisgæslunni.
Ægir kom mikið við sögu eftir snjó-
flóðin á Flateyri 1995, hann ferjaði
björgunarmenn vestur og Flateyr-
inga suður. Þetta smellpassaði inn í
hugmyndina,“ segir Eyþór.
Hann segir að Gæslunni hafi litist
vel á hugmyndin en tekur fram að
ekki sé búið að ganga frá neinu.
Fyrst þurfi að kanna hug Ísafjarð-
arbæjar til þess að fá aðstöðu fyrir
varðskipið á Flateyri.
Lítil snjóflóðasýning er ekki nóg
til að fylla það mikla rými sem er í
varðskipi. Þess vegna er hugmyndin
að koma þar upp gistiheimili, veit-
ingastað og aðstöðu til sýninga og
skemmtana. „Svona sérstök aðstaða
myndi hafa mikið aðdráttarafl fyrir
gesti. Við erum fiskveiðiþjóð með
mikil tengsl við hafið en getum
hvergi boðið upp á gistingu um borð í
skipi. Ég tel að skipið myndi ger-
breyta ferðaþjónustunni á Flateyri
og skapa mörg skemmtileg tæki-
færi,“ segir Eyþór.
Vilja fá Ægi fyr-
ir snjóflóðasafn
Yrði jafnframt gisti- og veitingahús
Morgunblaðið/Eggert
Á safn? Varðskipið Ægir kemur til
hafnar í Reykjavík fánum skrýtt.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Skráð heildaratvinnuleysi á landinu
fór upp í 9,8% í seinasta mánuði sam-
kvæmt nýju yfirliti Vinnumálastofn-
unar (VMST). Atvinnuleysi í al-
menna kerfinu mældist 9% en tengt
minnkuðu starfshlutfalli minnkaði
það lítið eitt á milli mánaða og var
0,8%.
Atvinnuleysi í einstökum lands-
hlutum er hvergi meira en á Suður-
nesjum. Fór það enn vaxandi í sein-
asta mánuði þar sem skráð var 19,6%
heildaratvinnuleysi í september.
Jókst það um 1,6 prósentustig á milli
mánaða og nú er því spáð að atvinnu-
leysi á Suðurnesjum fari í um 19,8% í
október. Ekki hefur mælst svo mikið
atvinnuleysi í einstökum landshlut-
um hér á landi um áratugaskeið.
Hæst fór það á Suðurnesjum eftir
fjármálahrunið í febrúar árið 2010
þegar mældist 15% atvinnuleysi á
svæðinu. Í talnagögnum VMST sem
vísað er til á vef stofnunarinnar eru
birtar spátölur fyrir næstu mánuði
þar sem fram kemur að mögulega
verði atvinnuleysi á Suðurnesjum í
desember komið í 21,9%.
Gæti orðið 24,6% í Reykjanesbæ
í desember skv. spá
Í Reykjanesbæ hefur því verið
spáð að atvinnuleysið gæti náð 24,6%
í seinasta mánuði ársins. Á Suður-
nesjum er atvinnuleysið mun meira
meðal kvenna en karla, eða 22,5% í
seinasta mánuði hjá konum en 17,7%
meðal karla. Í spátölum VMST kem-
ur fram að atvinnuleysið muni fara
vaxandi í hverjum mánuði fram að
áramótum og gæti þá orðið um 26,5%
meðal kvenna í Reykjanesbæ.
Í einstökum sveitarfélögum lands-
ins eru hvergi hlutfallslega fleiri án
atvinnu en í Mýrdalshreppi en þar
var um einn af hverjum fjórum at-
vinnulaus í ágúst. Skv. spátölum
VMST má búast við að það geti veru-
lega aukist þegar líður á veturinn og
farið yfir 40% í desember.
Á vinnumarkaðsyfirliti VMST
kemur fram að reikna megi með
10,5% heildaratvinnuleysi á landinu í
október og 11,3% í nóvember. ,,Alls
voru 18.443 einstaklingar atvinnu-
lausir í almenna bótakerfinu í lok
septembermánaðar og 3.319 í minnk-
aða starfshlutfallinu, eða samtals
21.762 manns,“ segir þar. Atvinnu-
lausum á landinu öllu fjölgaði í öllum
atvinnugreinum.
7.671 erlendur ríkisborgari var á
almennu atvinnuleysisskránni í sept-
ember sem er um 20% atvinnuleysi
meðal erlendra ríkisborgara.
Heildaratvinnuleysi jókst lítið á
höfuðborgarsvæðinu í seinasta mán-
uði og fór úr 9,9% í 10,1%.
Atvinnuleysi nálgast 20% á Suðurnesjum
Heildaratvinnuleysi jókst umtalsvert á landinu í september og fór upp í 9,8%
Jókst í öllum atvinnugreinum Spáð er 11,3% atvinnuleysi í nóvember
Almennt atvinnuleysi
Þróun eftir svæðum,
mars-okt. 2020
Alls 9,0% 9,6%
Höfuð-
borgarsv. 9,2% 9,8%
Suðurnes
18,6% 19,8%
Vesturland 5,6% 5,9%
Vestfirðir 3,3% 3,5%
Norðurl.
vestra 3,1% 3,3%
Norðurl.
eystra 6,1% 6,5%
Austur-
land 4,3% 4,6%
Suðurland 7,4% 7,9%
mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt.
sept. okt.
Heimild: Vinnumálastofnun
Morgunblaðið/Frikki
Atvinnulíf Atvinnuleysi tengt hluta-
bótakerfinu minnkaði í september.
Sænska jólageitin er risin við versl-
un Ikea í Kauptúni í Garðabæ. Geit-
in var sett upp í gær og er áminning
um að nú styttist í jólin. Í dag er 71
dagur til jóla.
Síðustu ár hefur geitin verið und-
ir ströngu eftirliti því oftar en einu
sinni hafa óprúttnir aðilar reynt að
kveikja í henni, eða tekist ætlunar-
verk sitt og kveikt í henni.
Þá hefur kuldaboli einnig herjað
á geitina. Árið 2013 steypti hann
henni af stalli en árið 2016 hafði
hún betur í baráttunni. Það var
eina árið sem geitin hefur staðið af
sér veður, vind og varga sem vilja
leggja eld að henni. Í Svíþjóð er sá
siður, eða frekar sá ósiður, land-
lægur að kveikja í jólageitum sem
reistar eru víða um Svíþjóð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólageit
Ikea komin
á sinn stað