Morgunblaðið - 14.10.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.10.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2020 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195 3+1 TILBOÐ af 120 ml Amsterdam akrýl Þú kaupir 3 færð 1 frítt SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mikil óvissa er um það hvernig vertíð jólatónleika verður hér á landi þetta árið – og hvort af henni verður yfir- höfuð. Kórónuveiran hefur þegar sett allt viðburðahald úr skorðum frá því snemma á árinu og nú er útlit fyr- ir að svo verði til ársloka hið minnsta. „Það er allt í óvissu og enginn veit neitt. Það verður í það minnsta mjög erfitt að ætla að halda stóra jóla- tónleika,“ segir Hrefna Sif Jóns- dóttir, framkvæmdastjóri Tix.is. Jólatónleikar hafa verið stór tekju- lind íslenskra tónlistarmanna síð- ustu ár. Framboð hefur verið gíf- urlegt og mikið hefur verið lagt í undirbúning. Núna er óvíst að tón- leikahald verði yfirhöfuð leyft í des- ember en fari svo að slakað verði á samkomutakmörkunum er alls ekki öruggt að tónlistarmenn sjái sér fært að skipuleggja slíka tónleika. Reynslan hefur sýnt að skjótt skip- ast veður í lofti og því ekki á vísan að róa með tilliti til undir- búningskostnaðar. Geta skipulagt minni tónleika „Það eru margir sem geta ekki tekið áhættuna á að byrja undirbún- ing með tilheyrandi kostnaði. Ein- hverjir eru þegar búnir að ákveða að slaufa jólatónleikum í ár,“ segir Hrefna. Hún segir aðspurð að auðvitað haldi flestir í vonina að desember verði sæmilegur. Fari svo megi búast við að ýmsir minni aðilar með litla yf- irbyggingu geti skipulagt tónleika með stuttum fyrirvara. JólaBó með breyttu sniði „Það er ljóst að tónleikarnir fara ekki fram í núverandi mynd, það verða engir áhorfendur í sal,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson, fram- kvæmdastjóri Senu Live, um Jóla- gesti Björgvins sem verið hafa einn stærsti viðburður ársins um árabil. Sena Live hefur að sögn Ísleifs brugðist við nýjum veruleika af völd- um kórónuveirufaraldursins með því að leita nýrra lausna við viðburða- hald. Vænta megi frétta af Jólagest- um á næstunni. „Við erum að skoða nýja lausn. Hugmyndin er að halda tónleikana í fullri stærð fyrir framan myndavélar og að hægt verði að sjá þá á öllum heimilum.“ Bjartsýnir Baggalútar Ekki eru þó allir búnir að gefa upp von um vertíð í ár. Miðasala er hafin á tónleika Baggalúts í Háskólabíói. „Það er erfitt að sjá fyrir hvað verður en við erum fullir bjartsýni að ástandið verði komið á þann stað í desember að það verði hægt að halda tónleikana,“ segir Karl Sigurðsson söngvari. Hann segir að Háskólabíói verði skipt í tvö sóttvarnahólf. Því verður hægt að fylla salinn ef sam- komutakmörk verða aftur rýmkuð í 500 manns. Bubbi hvergi banginn Fleiri horfa bjartsýnir fram á veg- inn. Þar á meðal er Geir Ólafsson sem ætlar að vera með Las Vegas- jólasýningu í Gamla bíói í byrjun des- ember. Þar kemur fram stór- hljómsveit Don Randi ásamt íslensk- um og erlendum söngvurum og gestastjörnum. Eins stefnir Friðrik Ómar Hjör- leifsson að því að vera með árlega jólatónleika sína í Hofi á Akureyri. Þá er Bubbi Morthens hvergi bang- inn og hefur bókað fimm Þorláks- messutónleika, þá stærstu í Eldborg- arsal Hörpu sem rúmar yfir tvö þúsund áhorfendur. Bubbi hefur haldið Þorláksmessutónleika síðustu 35 ár en er meira en tilbúinn í slaginn að þessu sinni enda hefur hann lík- lega aldrei komið jafn sjaldan fram og í ár, eins og segir í kynningu tón- leikanna. Þegar veiran stal jólavertíðinni  Óvissa meðal tónlistarfólks um hvort hægt verður að halda jólatónleika í ár  Fáir leggja í undir- búning og kostnað sem gæti farið í súginn  Jólagestir Björgvins verða haldnir með nýju sniði „Loksins þegar útlit var fyrir að við félagar í Karlakór Reykjavík- ur gætum komið saman að nýju eftir langt hlé og hafið vetrar- starfið, reis þriðja bylgja kó- viðsins hærra en þær fyrri og kaffærði þau áform í einni svip- an,“ segir í tilkynningu Karla- kórs Reykjavíkur þar sem til- kynnt er að fella þurfi niður aðventutónleika kórsins í Hall- grímskirkju. Sökum samkomu- takmarkana verða engar æfing- ar á næstunni. Sömu sögu er að segja af jólatónleikum Fóstbræðra. „Ég tel nánast öruggt að ekkert verði af neinu þetta árið,“ segir Arnlaugur Helgason, stjórnar- maður í Fóstbræðrum. Karlakórar kaffærðir FELLA NIÐUR TÓNLEIKA Morgunblaðið/Eggert Fagmennska Björgvin Halldórsson hefur haldið Jólagesti síðustu þrettán ár og Svala er sjaldnast langt undan. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Vinsældir Jólatónleikar Baggalúts hafa notið vinsælda undanfarin ár. „Efling þekkir mörg dæmi um at- vinnurekendur sem hlunnfara fjöl- menna hópa starfsfólks ítrekað um launagreiðslur, til dæmis orlofs- greiðslur og desemberuppbætur. […] Efling hefur áhyggjur af því að upp séu að rísa kynslóðir síbrota-atvinnu- rekenda sem hafi vanist því að stunda launaþjófnað óáreittir.“ Þetta segir í minnisblaði stéttarfélagsins Eflingar sem hefur skorið upp herör gegn launaþjófnaði á vinnumarkaði og krefst þess að launaþjófnaður at- vinnurekenda verði gerður refsiverð- ur. Milljarður á síðustu 5 árum Fram kemur í fréttatilkynningu Eflingar sem send var út í gær að heildarkröfur stéttarfélagsins vegna vangoldinna launa félagsmanna hafi numið ríflega milljarði á síðustu fimm árum. Launaþjófnaður sé mun viða- meira vandamál en þessar tölur gefi til kynna enda fleiri stéttarfélög sem taki við erindum félagsmanna um vangoldin laun. Þá leiti ekki nándar nærri allt launafólk réttar síns. Fram kemur að kröfum Kjara- málasviðs Eflingar fyrir hönd fé- lagsmanna hafi fjölgað úr 200 á ári í 700 frá 2015. Að sama skapi hefur heildarupphæð krafna farið stig- hækkandi og nam 345 milljónum króna á síðasta ári. Kröfur stéttar- félagsins fyrir hönd einstakra fé- lagsmanna nema oftast á bilinu 380 til 490 þúsund kr. og langan tíma getur tekið að innheimta hverja kröfu fyrir sig. Á meðan situr launamaðurinn uppi með skaðann af því að geta ekki séð sér fyrir nauðþurftum og staðið skil á skuldbindingum eins og leigu,“ segir í tilkynningunni. Bent er á að engin sekt eða bóta- upphæð bætist ofan á launakröfur. Atvinnurekendur hafi engan hvata til að leiðrétta vangoldin laun annarra en þeirra sem leita réttar síns. Félag- ið hafi sett kröfu um heimildir til sekta eða bótagreiðslna á oddinn í kjaraviðræðum við SA veturinn 2018- 2019 en SA ekki viljað ræða tillöguna. Fram kemur á minnisblaðinu að fé- lagsmálaráðherra hafi lofað samn- inganefnd ASÍ efndum á loforði um févíti vegna launaþjófnaðar á fundi 25. ágúst sl. Unnið hafi verið að end- urskoðun starfskjaralaga og fyrir liggi frumvarpsdrög dagsett 18. sept- ember en í þeim sé ekkert ákvæði um févíti. omfr@mbl.is Hlunnfara fjöl- menna hópa  Efling í herferð gegn launaþjófnaði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.