Morgunblaðið - 14.10.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.10.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2020 Bókhald & ráðgjöf - Eignaskiptayfirlýsingar & skráningartöflur Numerus – bókhald og ráðgjöf / Suðurlandsbraut 22 / S. 896 4040 fasteignaverdmat.is Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Eineggja tvíburasysturnar Hlað- gerður og Svanhildur Snæbjörns- dætur eru 98 ára í dag. Þær eru einu tvíburar landsins sem hafa náð þessum aldri, en metið á undan þeim var 96 ár og 292 dagar. „Við erum orðnar hundgamlar, en lífið hefur sinn vanagang og ég er úti að ganga kringum eldriborgarahúsin hérna á Sléttu- vegi, reyni að halda mér ungri,“ sagði Svanhildur, þegar Morg- unblaðið náði tali af henni í blíð- unni í gær. Frá Svartárkoti Systurnar fæddust í Svartárkoti í Bárðardal í Suður-Þingeyjar- sýslu, þar sem þær ólust upp til 1930. Þær bjuggu í um áratug í Kræklingahlíð í Eyjafirði og fluttu tvítugar til Reykjavíkur. Foreldrar þeirra voru Snæbjörn Þórðarson bóndi og Guðrún Árnadóttir. Systkinin voru sjö og varð Árný elst þeirra, 101 árs. Hlaðgerður hefur alltaf búið ein og var verka- kona og saumakona en Svanhildur húsmóðir. Maður hennar var Guð- björn Þorsteinsson skipstjóri. Þau eignuðust fjögur börn. „Við vorum búin að panta okkur íbúð hérna í nýju eldriborgarahúsi á Sléttuveg- inum, en tveimur mánuðum áður en við áttum að flytja dó hann svo ég hef búið hér ein síðan 1991,“ segir Svanhildur. Ekki eru margir á ferli utan húss á Sléttuveginum. Svanhildur segir að fáir eða enginn sé í dag- vistinni vegna kórónuveirunnar. „Ég held að flestir séu heima,“ seg- ir hún og bætir við að hún hafi sloppið við veiruna. „Ég er sæmi- leg andlega og hef aldrei verið veikindasækin, verið mjög hraust þannig, enda lifir maður ekki lengi nema vera hraustur.“ Hún segir líka mikilvægt að borða hollan mat en lítið af honum. „Eitt sinn var karl nokkur spurður hvernig hann færi að því að ná svona háum aldri og þá sagðist hann aldrei hafa borðað sig saddan á ævinni. Ég hef fylgt þessu, ekkert verið að of- reyna magann.“ Ferðalög voru tíð á árum áður en Svanhildur hefur aldrei farið vestur um haf. „Biddu fyrir þér, ég hef aldrei farið til Ameríku, en ég var í Spánarferðunum, fór til Spán- ar í sólina þar til ég varð áttræð.“ Til stóð að fara út að borða með nánustu fjölskyldu í kvöld í tilefni dagsins, en faraldurinn kemur í veg fyrir það. „Við höfum alltaf verið með veislu á fimm ára fresti og farið út að borða þess á milli, en sumir eru með undirliggjandi sjúk- dóma og við tökum enga áhættu, sleppum því bara.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Elstu tvíburarnir Hlaðgerður og Svanhildur Snæbjörnsdætur eru hressar. Ofreyna ekki magann þrátt fyrir veislumat  Hlaðgerður og Svanhildur elstu tvíburar landsins Tveir af þeim fimm íbúum á hjúkr- unarheimilinu Eir í Grafarvogi í Reykjavík sem smituðust af CO- VID-19 losnuðu í dag úr einangrun en fyrsta smitið kom upp á Eir þann 23. september. Vænst er að hinir þrír íbúarnir sem enn eru í einangrun losni þaðan á næstu dögum en lok einangrunar er alltaf í samráði við lækna Covid-deildar Landspítala. Smitin á Eir komu öll upp á sömu deildinni og voru allir aðrir sem þar búa, alls 20 manns, sett í sóttkví. Rúm vika er síðan henni var aflétt og því er daglegt líf á hjúkrunarheim- ilinu smám saman að færast nær eðli- legu ástandi. Enn er þó höfð góð gát á öllu á Eir, með smitvörnum, tak- mörkuð heimsóknum aðstandenda og svo framvegis. „Allir sem hér starfa gera sitt besta – og rúmlega það til þess að halda í skefjum þeim vonda vágesti sem kórónaveiran er. Eigi að síður tekst henni að smjúga í gegnum varnarnarmúrana sem herðir okkur í baráttunni,“ segir Þórdís Hulda Tómasdóttir verkefnisstjóri hjúkr- unar á Eir. Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum smitaður Alls greindust 83 kórónuveirusmit innanlands sl. mánudag. Af þeim voru 49 í sóttkví. Umræddan dag voru 1.071 í einangrun eftir að hafa sýkst af veirunni, sem var fjölgun um 49 manns frá deginum á undan. Þá eru alls 3.436 í sóttkví og 1.752 í skim- unarsóttkví. Á höfuðborgarsvæðinu eru 920 í einangrun og 3.040 í sóttkví. Á Suðurlandi eru 58 í einangrun og 105 í sóttkví. Smit eru í öllum lands- hlutum en þó aðeins eitt á Austur- landi, aðeins eitt auk þess sem fimm eru í sóttkví þar. Í gær var greint frá því að Rögn- valdur Ólafsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn almannavarnadeildar, hefði greinst smitaður af kórónuveir- unni. Rögnvaldur er nú í einangrun ásamt eiginkonu sinni og barni, en aðrir í fjölskyldunni eru í sóttkví. Í samtali við blaðamann í gær sagðist Rögnvaldur hafa það ágætt í einangruninni. „Við erum með bara klassísk ein- kenni og höfum það ágætt, við hjónin greindumst á sama tíma,“ segir Rögnvaldur. „Konan mín fékk greiningu á fimmtudagskvöld og ég á föstudags- morgun svo við erum á fjórða, fimmta degi. Við erum alveg með ein- kenni en okkur líður bærilega. Ég var með mikla vöðvaverki á fyrsta degi, leið eins og ég hefði verið að lyfta flutningabíl daginn áður. En það hefur farið svona hægt minnk- andi síðan. Við erum fimm hérna í fjölskyldunni, þrjú í einangrun og svo eru tveir í sóttkví.“ Rögnvaldur segir það ekki staðfest hvernig hann hafi smitast af veir- unni. „Við erum ekki með það staðfest en vitum allavega að það er ekki tengt Landspítalanum. Konan mín er að vinna á bráðadeildinni svo það var mikilvægt að vita hvort okkar smit tengdust smiti sem kom upp þar. Við raðgreiningu kom í ljós að það var ekki svo þetta smit er bara úr nær- samfélagi okkar,“ segir Rögnvaldur. sbs@mbl.is liljahrund@mbl.is Tveir af fimm á Eir komnir úr einangrun  83 ný innanlands- smit  Smit hjá al- mannavörnum Kórónuveirusmit á Íslandi Staðfest smit frá 30. júní 3.668 staðfest smit Heimild: covid.is Nýgengi innanlands 12. október: 253,9 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa 22 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af 3 á gjörgæslu 83 ný inn an lands smit greindust 12. október 313.834 sýni hafa verið tekin Þar af í landamæraskimun 158.834 sýni, samtals í skimun 1 og 2 1.752 einstaklingar eru í skimunarsóttkví 100 80 60 40 20 0 99 75 16 3.436 einstaklingar eru í sóttkví 1.071 eru með virkt smit og í einangrun júlí ágúst september október Fjöldi smita innanlands Fjöldi smita á landamærum Í gærkvöldi skrifaði Verkalýðsfélag Akraness undir nýjan kjarasamning við Norðurál eftir afar langar og strangar samningaviðræður sem höfðu staðið yfir í hartnær 10 mánuði. Kjarasamningurinn felur í sér sömu launa- breytingar og lífskjarasamningurinn kvað á um, að sögn Vilhjálms Birg- issonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness, sem tilkynnti undirritun samningsins. Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. janúar 2020 sem þýðir að vaktamenn munu eiga rétt á greiðslu vegna afturvirkninnar sem nemur um 6,9% af heildarlaunum frá 1. janúar 2020. Sú upphæð getur í sumum til- fellum numið um 500 þúsund krónum hjá vaktamönnum. VA og Norðurál skrifuðu undir samning Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta skilar betri og hraðvirkari þjónustu og léttir álagi af þjónustu- verinu til lengri tíma,“ segir Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár Ís- lands. Þjóðskrá er ein þeirra stofnana sem nýlega hafa tekið svokölluð snjall- menni í sína þágu. Gervigreind er nýtt við þróun netspjalls þannig að snjall- mennið geti hjálpað viðskiptavinum að nálgast upplýsingar og svör við ein- földum erindum á fljótlegan hátt. Snjallmennið er hugsað sem viðbót við þjónustuver stofnunarinnar og getur fólk fengið að ræða við ráðgjafa á af- greiðslutíma skrifstofunnar, ef það kýs svo. Utan afgreiðslutíma tekur snjallmenni við fyrirspurnum og svar- ar eftir fremstu getu. Margrét segir að enn sé verið að bæta í upplýsingabankann fyrir snjallmennið og stöðugt bætist við svörin. Reynslan til þessa lofi góðu. Hún segir að yngra fólk hafi tekið þessari nýjung sérstaklega vel. Sigurður Óli Árnason, ráðgjafi hjá Advania, segir að fyrsta alvörusnjall- mennið, eða spjallmennið (e. chatbot) eins og hann kallar það, sem tekið var í notkun hér á landi hafi verið hjá Menntasjóði námsmanna. Það var í lok síðasta árs og síðan þá hafa fleiri fyrirtæki og stofnanir bæst við. Má þar nefna Vinnumálastofnun og Ís- landsbanka. „Við lítum á þetta sem þjónustu- viðbót fremur en sparnað,“ segir Sig- urður og bendir á að aldrei sé verið að ýta notendanum frá mannlegri þjón- ustu, alltaf sé að hægt að biðja um að fá að tala við manneskju. Hann segir að flestum finnist betra að fá úrlausn sinna mála hjá spjallmenni strax en að þurfa kannski að bíða lengi eftir lausum þjónustufulltrúa. „Sumum finnst reyndar betra að tala við tölvu um viðkvæm mál, þá er ekki verið að dæma þá. Fólk getur jafnvel fengið útrás fyrir alls konar tilfinningar á spjallmennið,“ segir hann í léttum dúr. Hann kveðst skynja mikinn áhuga hjá stofnunum og fyrirtækjum á þessari lausn og býst við að fleiri bæt- ist í hópinn á næstunni. Ýmis tæki- færi séu auk þess enn ókönnuð. „Í Finnlandi hefur til að mynda verið prófað að tengja saman spjall- menni frá mismunandi stofnunum. Þá ertu sendur á milli án þess að þú þurf- ir að skipta um vefsíðu.“ Ljósmynd/Pixabay Þjónusta Svokölluð snjallmenni spjalla við viðskiptavini í netspjalli. Snjallmenni leysa einföldustu erindin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.