Morgunblaðið - 14.10.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Það sýnir ágætlega yfirganginn ísértrúarsöfnuðinum sem kall-
ar sig Stjórnarskrárfélagið hvernig
hann bregst við því þegar þeir sem
sjá um eignir Stjórnarráðsins þrífa
burt krot af veggjum þess. Óprútt-
inn veggjakrotari hafði málað slag-
orð um nýja stjórnarskrá á vegg
sem hann átti ekki og án leyfis og
þegar eigandinn þreif vegginn voru
viðbrögð formanns Stjórnarskrár-
félagsins að fordæma þrifin, ekki
veggjakrotið!
Athygli vakti líka að Ríkis-útvarpið birti frétt um málið
þar sem ríkisstofnunin kallaði þessi
sjálfsögðu viðbrögð þeirra sem
hafa umsjón með eignunum
„þrifaæði“ í fyrirsögn. Þessi furðu-
lega ríkisstofnun er auðvitað geng-
in í Stjórnarskrárfélagið og kemur
út af fyrir sig ekki á óvart að þessir
hópar sameinist, en hversu viðeig-
andi er það að skattfé sé notað til að
afflytja fréttir af þrifum á eigum
skattgreiðenda?
Stjórnarskrárfélagið er virðulegtnafn á sértrúarhópi sem hefur
staðfest einkenni sín sem slíkur
með því að birta myndskeið af fundi
sínum þar sem fundargestir kyrja
einhverja möntru um að þeir
strjúki stórum ísmola blítt um leið
og þeir ganga að honum og leggja
hendur yfir hann.
Fólk má vitaskuld leika sér meðísmola eins og því sýnist, þó að
það verði ekki trúverðugra fyrir
vikið, og það má berjast fyrir nýrri
stjórnarskrá, en verða eignaspjöll
varin í nýju stjórnarskránni í stað
eignarréttarins eins og nú er?
Eignaspjöll varin í
nýrri stjórnarskrá?
STAKSTEINAR
Samgöngustofa hefur opnað fyrir
rafræna skráningu eldri léttra bif-
hjóla í flokki I. Um er að ræða raf-
eða vélknúin hjól sem ná allt að 25
km/klst hraða og eru merkt appels-
ínugulum númeraplötum. Skráning-
arskylda slíkra hjóla tók gildi 1. jan-
úar 2020 og eru öll hjól sem flutt hafa
verið inn til landsins síðan skráð af
innflytjanda eða seljanda og hafa af-
henst skráð og skoðuð samkvæmt
hefðbundnu forskráningarferli.
Samgöngustofa miðar við að eldri
hjól verði skráð fyrir 1. mars 2021 ef
nota á þau í almennri umferð en
skráningin verður opin á vef Sam-
göngustofu til 30. júní 2021. Skrán-
ingar- og skoðunarskyldu þessara
ökutækja er ætlað að auka umferð-
aröryggi t.d. með því að tryggja að
ljósa- og hemlunarbúnaður sé í lagi.
Fjöldi óskráðra léttra bifhjóla er
ekki vitaður með vissu. Hafi inn-
flutningur á léttum bifhjólum verið í
samræmi við fjölda síðan skráning-
arskylda hófst má gera ráð fyrir um
400 óskráðum hjólum í umferð, að
sögn Sigfúsar Þórs Sigmundssonar
hjá Samgöngustofu.
Vonir standa til að skráningin
bæti yfirsýn yfir fjölda og gerðir í
umferð, hvaða flokki þau tilheyra og
hvaða reglur eiga við um akstur
þeirra. karitas@mbl.is
Skrá þarf og skoða eldri vespur
Tilmæli Samgöngustofu gera ráð
fyrir skráningu fyrir 1. mars 2021
Morgunblaðið/Golli
Vespur Nú ber að skrá og skoða
eldri vespur fyrir 1. mars 2021.
Erlendur Guðlaugur
Eysteinsson, fyrrver-
andi bóndi á Stóru-
Giljá, lést á Heilbrigð-
isstofnuninni á Blöndu-
ósi 1. október sl., 88 ára
að aldri.
Erlendur fæddist að
Beinakeldu í Torfa-
lækjarhreppi í Austur-
Húnavatnssýslu 10.
janúar 1932 og ólst þar
upp. Foreldrar Erlend-
ar voru Eysteinn Er-
lendsson bóndi og Guð-
ríður Guðlaugsdóttir
húsfreyja. Hann var í
barnaskóla í fjóra vetur, farskóla,
einn vetur í yngri deild Hólaskóla og
stundaði nám við Bréfaskóla SÍS í
tvö ár. Erlendur vann ungur á búi
foreldra sinna til 1955 en þá varð
hann vinnumaður hjá föðurbræðrum
sínum, Sigurði og Jóhannesi, á
Stóru-Giljá. Árið 1957 flutti hann
aftur að Beinakeldu og hóf þar bú-
skap á hálfri jörðinni ásamt konu
sinni. Þau bjuggu að Beinakeldu til
1972. Þá keyptu þau Stóru-Giljá, þar
sem þau bjuggu til 2008, en fluttu þá
til Blönduóss.
Erlendur var stofnandi ung-
mennafélagsins Húna í Torfalækj-
arhreppi, sat í stjórn og var formað-
ur þess, var formaður skólanefndar
Húnavallaskóla 1972-82, sat í stjórn
Byggðasamlags Húnavallaskóla, sat
í stjórn Sauðfjár-
ræktarfélags Sveins-
staðahrepps og var
gjaldkeri þess, í stjórn
Hrossaræktar-
sambands Austur-
Húnavatnssýslu, í
stjórn Veiðifélags
Vatnsdalsár og var for-
maður Búnaðarfélags
Torfalækjarhrepps.
Hann var hrepps-
nefndarmaður í rúm 46
ár og oddviti síðustu 16
árin, sat í héraðsnefnd
Austur-Húnavatns-
sýslu í 12 ár, var odd-
viti hennar og héraðsráðs síðustu
fjögur árin.
Erlendur starfaði um árabil í
Lionsklúbbi Blönduóss og var fjöl-
umdæmisstjóri Lions 109 á Íslandi
1991-92. Hann var formaður full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Austur-Húnavatnssýslu um langt
árabil og sat í miðstjórn Sjálfstæð-
isflokksins. Hann sat í sóknarnefnd
Þingeyrasóknar í 49 ár, þar af for-
maður í 27 ár. Hann var meðhjálpari
í Þingeyrakirkju í 49 ár.
Eiginkona Erlendar er Helga
Búadóttir og eignuðust þau fjögur
börn; Árdísi Guðríði, Ástríði Helgu,
Eystein Búa og Sigurð.
Útför Erlendar verður gerð frá
Þingeyraklausturskirkju laugardag-
inn 17. október klukkan 14.
Andlát
Erlendur G. Eysteinsson