Morgunblaðið - 14.10.2020, Síða 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Agnes
* The Secret : Dare to
Dream
* Unhinged
* A Hidden Life
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
MÖGNUÐ MYND SEM
GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI :
★★★★★
★★★★★
★★★★★
Roger Ebert.com
San Fransisco Cronicle
The Playlist
88%
HEIMSFRUMSÝNING
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin
verða ekki afhent í Hörpu í desem-
ber á þessu ári, eins og til stóð, held-
ur árið 2022. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá Örnu Schram,
sviðsstjóra menningar- og ferða-
málasviðs hjá Reykjavíkurborg, sem
barst Morgunblaðinu í gær. „Verð-
launahátíð Evrópsku kvikmynda-
verðlaunanna fer fram í Reykjavík
2022 en ekki í desember í ár eins og
til stóð, vegna versnandi ástands
heimsfaraldursins COVID-19 í Evr-
ópu. Um er að ræða viðamikið sam-
starfsverkefni ríkis og borgar við
Evrópsku kvikmyndaakademíuna
(EFA) í Berlín, en að því koma með-
al annars Harpa og RÚV. Stafrænni
athöfn verður streymt og sjón-
varpað beint frá Berlín 12. desember
2020,“ segir í tilkynningunni.
Fyrirsjáanleg niðurstaða
Arna er spurð að því hvort sú
mikla undirbúningsvinna sem hefur
átt sér stað fyrir
verðlaunahátíð-
ina í Hörpu muni
nýtast við skipu-
lag hátíðarinnar
árið 2022. „Jú,
algjörlega, hún
mun nýtast. Mikil
reynsla og þekk-
ing hefur safnast
saman og góður
hópur sem mun væntanlega halda
áfram með verkefnið,“ svarar Arna.
Hún segir þessa niðurstöðu hafa
verið nokkuð fyrirsjáanlega í þó
nokkurn tíma, að hátíðarhöldum hér
á landi yrði frestað. „Það var góður
kostur að geta nýtt reynslu og þekk-
ingu til að undirbúa hátíðina að
tveimur árum liðnum sem var ekk-
ert endilega sjálfgefið en það eru all-
ir ánægðir með þessa niðurstöðu.“
Arna segir allt hafa stefnt í að há-
tíðin yrði miklu minni að umfangi en
hún er vanalega og vonast var til.
„Því við erum líka að gera þetta til
að vekja athygli á áfangastaðnum
EFA í Reykjavík eftir tvö ár
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða ekki afhent í Hörpu í desember vegna
Covid-19 Afhendingu streymt frá Berlín og hátíðin haldin á Íslandi eftir tvö ár
Morgunblaðið/Júlíus
Tvö ár Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða afhent árið 2022 í Hörpu en ekki á þessu ári eins og til stóð.
Reykjavík og Íslandi, fyrir utan
að styðja við íslenska kvikmynda-
gerð, menningu og listir og skap-
andi greinar,“ segir hún.
Glæsileg hátíð eftir tvö ár
Haft er eftir Lilju Alfreðsdótt-
ur, mennta- og menningarmála-
ráðherra, í tilkynningu að haldin
verði glæsileg og
fjölbreytt hátíð-
ardagskrá til
heiðurs evrópsk-
um kvikmyndum
en bara ekki í ár
þar sem nú séu
óvenjulegir tímar
sem kalli á
sveigjanleika.
„Þetta er geysi-
lega spennandi
tækifæri fyrir
íslenska kvikmyndamenningu og
kvikmyndageirann hér á landi og
við munum nýta það vel,“ segir
Lilja.
Besti kosturinn í stöðunni
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri segir að tilhlökkun hafi ríkt
fyrir að taka á móti erlendum
gestum í ár. „En þetta er besti
kosturinn í stöðunni í ljósi heims-
faraldursins. Það
er ánægjulegt að
samkomulag hafi
náðst um að Evr-
ópsku kvik-
myndaverðlaunin
verði haldin í
Reykjavík að
tveimur árum
liðnum. Þá getum
við einbeitt okkur
alfarið að því að
undirbúa glæsilega hátíð og hlið-
arviðburði sem við getum nýtt í
markaðssetningu á menningar-
borginni Reykjavík en ekki síður í
þágu íslenskrar kvikmyndagerðar
og skapandi greina almennt,“ seg-
ir Dagur.
Þungbær ákvörðun
Mike Downey, formaður EFA,
segir ákvörðunina um að færa
verðlaunahátíðina á Íslandi til árs-
ins 2022 hafa verið þungbæra en
tekna af ábyrgð og umhyggju fyr-
ir gestum hennar. „Við hjá EFA
ásamt vinum okkar á Íslandi erum
vonsvikin yfir því að ná ekki að
hittast í Reykjavík á þessu ári.
Mikilli sköpunargáfu, ástríðu og
orku hefur verið varið úr öllum
áttum við skipulagningu verð-
launakvöldsins og kröftugt teymi
unnið að því hörðum höndum.
Góðu fréttirnar eru hins vegar
þær að öllu þessu
er hægt að við-
halda og samstarf
okkar mun halda
áfram með það að
markmiði að
halda enn
skemmtilegri há-
tíð til heiðurs evr-
ópskri kvik-
myndagerð á
Íslandi í desem-
ber árið 2022, þegar heimurinn
verður vonandi búinn að sigrast á
COVID-19. Við gleðjumst einnig
yfir því að EFA-skógurinn í Heið-
mörk, sem við gróðursettum í júlí
ásamt Skógræktarfélagi Reykja-
víkur og vinum okkar úr íslenska
kvikmyndasamfélaginu, heldur
áfram að vaxa. Trén 3.750 munu
nú dafna í enn hreinna lofti og
bíða endurkomu okkar eftir tvö
ár, “ segir Downey.
Lilja
Alfreðsdóttir
Dagur B.
Eggertsson
Mike Downey
Arna Schram
Stórfyrirtækið Disney hefur
ákveðið að sýna teiknimynd fyrir-
tækis síns Pixar, Soul, á streymis-
veitunni Disney+ í stað þess að
leyfa kvikmyndahúsum að sýna
hana.
Í frétt á vef dagblaðsins The
Guardian segir að stjórnendur
kvikmyndahúsa í Evrópu séu æfir
yfir þessari ákvörðun og sendi
UNIC, Alþjóðasamband kvik-
myndahúsa (e. The International
Union of Cinemas), frá sér yfirlýs-
ingu þar sem segir að ákvörðunin
valdi bæði hneykslan og kvíða
þeirra sem reka kvikmyndahús
víða um lönd.
Bent er á að meirihluti kvik-
myndahúsa í Evrópu og fleiri
heimsálfa sé opinn og geti tryggt
öryggi gesta sinna. Öryggis-
ráðstafanir hafi kostað bíórek-
endur fúlgur fjár og enn og aftur
hafi þeir orðið fyrir höggi frá
dreifendum kvikmynda en
skemmst er að minnast þess að
frumsýningu Bond-myndarinnar
No Time To Die var frestað fram
á næsta vor en hana átti að frum-
sýna í lok nóvember.
Soul var frumsýnd 10. október á
kvikmyndahátíðinni í London og
einnig átti að sýna myndina í þess-
ari viku á kvikmyndahátíð í Róm.
Disney virðist ætla að fara sömu
leið með Soul og fyrirtækið fór
með kvikmyndina Mulan sem hætt
var við að sýna í kvikmyndahúsum
og var þess í stað streymt á veitu
fyrirtækisins Disney+. Soul verð-
ur aðgengileg á veitunni frá og
með jóladegi.
Reiði vegna
ákvörðunar
Disney
Sál Úr teiknimyndinni sem fyrir-
tæki Disney, Pixar, framleiddi.