Morgunblaðið - 14.10.2020, Síða 28
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir hefur
verið sískrifandi frá því hún var
krakki. Ísblá birta, önnur ljóðabók
hennar, er nýkomin út hjá Blómatorg-
inu, en sonur var frumraun hennar.
„Þegar ég var í sveit
í gamla daga sendi
ég bréfin heim í
ljóðaformi og hef
skrifað síðan,“ bend-
ir hún á.
Sveinn Bjarki
Sigurðsson, sonur
hjónanna Ástu
Bjarkar og Sigurðar
Þóris Sigurðssonar í Blómatorginu við
Birkimel, lést 2010 eftir sjö mánaða
baráttu við krabbamein og ljóðabók
tileinkuð honum kom út 2013. „Fram
að því hafði ég bara skrifað fyrir
skúffuna og sjálfa mig en við missinn
byrjaði ég að skrifa lítil ljóð á litla gula
miða, sem ég hengdi út um allt í her-
berginu mínu, til að hjálpa mér út úr
sorgarferlinu,“ rifjar Ásta Björk upp.
„Í kjölfarið ákvað ég að gefa út bókina
son með þessum ljóðum.“
Á bókarkápu Ísblárrar birtu segir
að Ásta Björk yrki „um veturinn, vor-
ið, dauðann, sorgina, draumsýnir og
síðast en ekki síst til þín, hver sem þú
ert“.
þú réttir fram
hönd þína
þreifar á ísblárri
birtunni
senn morgnar
og þú fylgir
veginum
til vorsins
„Djúpbláir skuggar“, fyrsti kafli
nýju bókarinnar, fjallar um veturinn
og vorið. Annar kaflinn, „Þú heyrir
söng þinn nálgast“, er einkum um
drauma. „Stjörnuhrap“ nefnist þriðji
kaflinn og er um sorgina og dauðann.
Fjórði og síðasti kaflinn, „Skuggar
okkar þræða götuna“, er til hvers
sem er. „Ég er svolítið angurvær,“
segir Ásta Björk, en ljóðin valdi hún
úr safni sem hún orti 2018 og 2019.
„Drungi og myrkur eru í ljóðunum en
birtan skín í gegn og vorið er handan
við hornið,“ útskýrir skáldið.
Bókin er til sölu í Blómatorginu og
viðtökurnar hafa verið góðar, að sögn
Ástu. „Ég á marga ljóðelskandi vini.“
Hún var kennari í yfir 40 ár, síðast við
Fjölbrautaskólann við Ármúla, þar
sem hún kenndi íslensku í 16 ár. Hún
lauk meistaranámi í ritlist við Há-
skóla Íslands í febrúar sem leið og er
með tvær bækur í vinnslu. „Önnur er
prósabók um garðinn minn, sem ég
er langt komin með, og svo er ég að
skrifa bókina Brotabrot úr lífi
kommakrakka.“
Ritlistin er Ástu í blóð borin. Í því
sambandi má nefna að móðursystkini
hennar sendu frá sér ritverk. Ing-
ólfur Jónsson frá Prestbakka skrifaði
sögur og ljóð og Guðrún skrifaði líka
bækur. „Ég átti orðið mikið af ljóð-
um, sem ég vildi gefa út í bók, og lét
af því verða,“ segir Ásta um nýju bók-
ina. Sveinbjörn Rúnarsson, barna-
barn þeirra, myndskreytti bókina og
tengdadóttirin Stefanía Ragnars-
dóttir sá um umbrotið. „Þetta er
eiginlega fjölskylduverkefni,“ segir
höfundurinn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í Blómatorginu Hjónin Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir skáld og Sigurður Þórir Sigurðsson útgefandi.
Samhent fjölskylda
Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir sendir frá sér aðra ljóðabók
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 288. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Það verður vængbrotið íslenskt landslið sem tekur á
móti Belgíu í Þjóðadeild UEFA í knattspyrnu á Laugar-
dalsvelli í kvöld. Kári Árnason, Ragnar Sigurðsson, Ar-
on Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Jóhann
Berg Guðmundsson og Alfreð Finnbogason verða allir
fjarri góðu gamni og Arnór Sigurðsson er einnig meidd-
ur en hann hefur fengið tækifæri í byrjunarliði Íslands í
fjarveru Jóhanns Bergs Guðmundssonar. Þá getur
þjálfarateymið ekki stjórnað liðinu á hliðarlínunni eftir
að smit kom upp í starfsliðinu. »22
Vængbrotið landslið sem tekur
á móti firnasterku liði Belgíu
ÍÞRÓTTIR
Sýndu að þú
sért framúrskarandi
EKKI SPARA
KRAFTANA
Í KRAFTI CREDITINFO
Á hverju ári mælir Creditinfo hreysti íslenskra
fyrirtækja út frá lykiltölum í rekstri síðustu þriggja
ára.Að jafnaði standast aðeins 2% fyrirtækja þær
ströngu kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi
fyrirtækja sem þýðir að þau eru komin í
úrvalshóp, landsliðið í sinni grein, og eru líklegri
til að ná árangri og standast álag en önnur.
Ef þitt fyrirtæki er í þessum hópi getur þú pantað
vottun og sýnt að þú sért framúrskarandi.
Kynntu þér málið á creditinfo.is.
ER ÞITT FYRIRTÆKI
FRAMÚRSKARANDI?
PANTAÐU VOTTUN!
MENNING
Skáldin Sigurlín Bjarney Gísladóttir og Anton Helgi
Jónsson koma fram á Ljóðakaffi Borgarbókasafnsins í
kvöld, miðvikudag, klukkan 20 og er yfirskriftin „Á
fjallvegum í borginni“. Vegna samkomubanns verður
um netviðburð að ræða, streymt á síðunni face-
book.com/Borgarbokasafnid. Skáldin munu lesa upp
og fjalla um ferðalög sín með ljóð sem áttavita. Anton
Helgi gaf fyrst út bók árið 1974 en fyrsta ljóðabók Sig-
urlínar kom út 2007. Áhugasömum er í kjölfar lesturs
skáldanna boðið að spyrja þau spurninga á Facebook.
Ljóðakaffi með tveimur skáldum í
streymi Borgarbókasafns í kvöld