Morgunblaðið - 31.10.2020, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 3 1. O K T Ó B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 257. tölublað 108. árgangur
FÆR AÐ KÚRA
EINS MIKIÐ OG
HÚN VILL
SÖFNIN SELJA
VERÐMÆT LISTAVERK
AFLA FJÁR Í FARALDRI 53TVÍTUGUR TÖFFARI 12
+ www.hekla.is/audisalur
Vinsæli fjórhjóladrifni rafbíllinn
Verð frá 8.890.000 kr.
Dæmi um búnað: 20” álfelgur, loftpúðafjöðrun,
íslenskt leiðsögukerfi, hiti í stýri
*Bíll á mynd er
Advanced S-line
Alexander Gunnar Kristjánsson
Stefán Einar Stefánsson
Hertar sóttvarnareglur tóku gildi á
miðnætti. Fjöldatakmörk samkoma
miðast nú við tíu manns. Allt íþrótta-
starf og sviðslistir eru óheimil. Þá eru
krár, skemmtistaðir og sundlaugar
um allt land lokuð.
„Ég hef sagt það um alllangt skeið
og hef ekki skipt um skoðun við þessi
nýjustu tíðindi að það er fullkomlega
galið að ætla að halda launahækkun-
um til streitu. Það verður að fresta
þeim nú þegar við siglum inn í dýpstu
kreppu síðari tíma. Kjarasamningar
eru gerðir til að skipta verðmætum
sem orðið hafa til. Það er ekki hægt að
skipta því sem ekki er til,“ segir Jó-
hannes Þór Skúlason, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
„Þetta hefur verið mjög þungt en
það er alveg ljóst að róðurinn þyngist
enn nú þegar samkomutakmarkanir
hafa verið hertar enn frekar,“ segir
Jóhannes.
Íslandsmeistarar tilkynntir
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra segist telja að landsmenn séu
nú hálfnaðir í baráttunni við farald-
urinn. „Ef við horfum á það sem talað
er um úti í heimi og spár um bóluefni
ganga eftir þá er ekki ósanngjarnt að
segja: við erum hálfnuð í ánni,“ segir
hún.
Á morgun verða kynntar nýjar
reglur um takmarkanir á efstu stig-
um grunnskóla og í framhaldsskólum.
Menntamálaráðherra segir að þær
muni gilda út skólaárið.
Eftir að nýju reglurnar voru kynnt-
ar tilkynnti KSÍ að Íslandsmótinu í
fótbolta hefði verið slaufað. Valur er
Íslandsmeistari karla og Breiðablik
Íslandsmeistari kvenna, en liðin
höfðu fengið flest stig það sem af var
móti.
Gagnrýnt
Sigríður Á. Andersen, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi að-
gerðirnar í gær og sagði þær fela í sér
„verulegt íþyngjandi inngrip inn í
einkalíf manna“.
Aðgerðir hertar til muna
Allt lagt í sölurnar til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar Launahækkanir á
þessum tíma sagðar galnar Íþyngjandi inngrip segir þingmaður meirihlutans
Hertar aðgerðir
» 10 manns að hámarki
mega koma saman.
» Hámark við jarðarfarir
verður 30 manns.
» Matvöru- og lyfjaverslanir
hafa heimild til að hafa 50
viðskiptavini hverju sinni.
» Grímuskylda mun gilda
fyrir sex ára og eldri í
strætó.
» Allt íþróttastarf og sviðs-
listir um allt land eru óheimil.
MHertar aðgerðir »2, 4, 26, 48
„Mér finnst ég vera heppin á hverj-
um degi,“ segir Ayça Eriskin, 25 ára
tyrknesk kona sem fann ástina á Ís-
landi í fyrra. Sá heppni heitir Guðjón
Sveinsson og giftu þau sig í Istanbúl
í maí.
Guðjón var með annan fótinn í
Tyrklandi í vetur en hann var fastur
þar vegna kórónuveirunnar. Það
gekk á ýmsu að fá leyfi fyrir eigin-
konuna til að setjast hér að en að
lokum gátu ungu hjónin hafið líf sitt
saman á Íslandi, með litla hvolpinum
Flóka.
Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins
segja þau frá ástinni sem sigraði að
lokum, þrátt fyrir hindranir, fjar-
lægðir og kórónuveiru.
Morgunblaðið/Ásdís
Ást Guðjón Sveinsson og Ayça Erisk-
in á brúðkaupsdaginn í lok maí 2020.
Ástin sigraði
að lokum
Anthony Bacigalupo, hönnuður og listamaður,
var búinn að skreyta heimili sitt í Hafnarfirði og
var tilbúinn með grímu í tilefni hrekkjavöku.
Hrekkjavakan verður með óvenjulegu sniði
þetta árið. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
sagði á blaðamannafundi í gær að mörg börn
hefðu hlakkað til hrekkjavöku en vegna farald-
ursins þyrftu þau að gleðjast með öðrum hætti
en að fara um og biðja um sælgæti. »14
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hrekkjavakan með óvenjulegu sniði í ár