Morgunblaðið - 31.10.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020
fasteignaverdmat.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Samkvæmt okkar gögnum sýnist mér að
u.þ.b. 15% þess gistirýmis sem er til staðar í
Reykajvík séu nú opin. Það gefur mynd af því
hversu alvarleg staðan er og nýtingin á þessu
rými er í flestum tilvikum mjög takmörkuð,“
segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Samkvæmt sömu gögnum sést að fjórar
stærstu hótelkeðjurnar hafa gripið til mismik-
illa lokana að undanförnu. Þannig hefur Ice-
landair Hotels haldið sex hótelum af níu opn-
um. Hins vegar hafa Íslandshótel lokað 12 af
17 hótelum sínum, Kea Hotels sjö af 10, þar
af sex af sjö hótelum í Reykjavík, og Center
Hotels hafa lokað sex af átta hótelum. Nú síð-
ast tilkynnti svo Hótel Saga að þar yrði skellt
í lás frá og með 1. nóvember. Þetta hefur ver-
ið mjög þungt en það er alveg ljóst að róð-
urinn þyngist enn, nú þegar samkomutak-
markanir hafa verið hertar enn frekar.
„Mörg af hótelunum utan höfuðborgar-
svæðisins hafa verið með opið um helgar þar
sem fólki er boðið upp á gistingu auk kvöld-
verðar af einhverju tagi. Veitingaþátturinn er
nú í algjöru uppnámi og ekki hægt að standa
við það sem lofað er samkvæmt tilboðunum.
Það hefur orðið til þess að hóteli á borð við
Geysi í Haukadal hefur verið lokað. Þá hafa
hótelhaldarar einfaldlega gripið til þess ráðs
að veita inneign eða endurgreiða þessa
tilboðspakka sem þeir hafa verið að keyra á.“
Jóhannes Þór segir að veitingahúsin horfi
einnig upp á enn frekari þrengingar vegna 10
manna hámarksins sem stjórnvöld hafa sett á
samkomur.
„Það er ljóst að veitingahús getur ekki rek-
ið sig á tveimur starfsmönnum og átta gestum
eða þremur starfsmönnum og sjö gestum.“
Hann segir að þetta sé m.a. alvarlegt högg
fyrir veitingahúsin í Reykjavík, sem þó hafi
hingað til ekki tapað jafn háu hlutfalli veltu
sinnar og margir ferðaþjónustuaðilar úti um
landið.
„Veitingahúsin hafa getað haldið úti þjón-
ustu inni á stöðunum en það er orðið mjög
hæpið nú. Og þessar miklu takmarkanir í stað
þess að skipa þeim að loka gera í raun illt
verra í mörgum tilvikum því þau geta þar
með ekki sótt um lokunarstyrki. Þeim er í
raun gert að loka nær alveg, en uppfylla þó
ekki skilyrðin til að geta fengið styrkinn.“
Jóhannes Þór segist þó bera þá von í
brjósti að fyrirliggjandi frumvarp um stuðn-
ing við atvinnulífið vegna hinna hertu aðgerða
muni taka breytingum í meðförum þingsins
og að tillit verði tekið til þeirra sem ekki er
beinlínis meinað að starfa en sé gert það nær
ómögulegt. Nú eru aðeins 54 dagar til jóla og
segir Jóhannes Þór að veitingamenn hafi eðli-
lega miklar áhyggjur af stöðunni sem uppi er.
„Mörg veitingahús sækja 25-30% tekna
sinna í desember. Vissulega halda allir í von-
ina um að það verði búið að rýmka samkomu-
takmarkanir upp í t.d. hundrað manns þegar
kemur inn í desember en ef það gerist ekki
eykur það enn á áfallið fyrir greinina.“
Spurður út í framhaldið og hvernig fyrir-
hugaðar launahækkanir á grundvelli lífskjara-
samninganna orki á hann stendur ekki á
svari.
„Ég hef sagt það um alllangt skeið og hef
ekki skipt um skoðun við þessi nýjustu tíðindi
að það er fullkomlega galið að ætla að halda
launahækkunum til streitu. Það verður að
fresta þeim nú þegar við siglum inn í dýpstu
kreppu síðari tíma. Kjarasamningar eru gerð-
ir til að skipta verðmætum sem orðið hafa til.
Það er ekki hægt að skipta því sem ekki er
til.“
Hann segist halda í vonina um að hægt
verði að ná lendingu um þetta stóra hags-
munamál en verkalýðshreyfingin hafi þó ekki
viljað opna á þennan möguleika.
„Ef það breytist ekki er boltinn hjá stjórn-
völdum.“
15% hótelrýmis í Reykjavík opin
Framkvæmdastjóri SAF segir veitingamenn enn halda í von um jólavertíð sem taki mið af aðstæðum
„Hreinlega galið“ ef fyrirhuguðum launahækkunum um áramót verði ekki slegið á frest að sinni
Staða hótelanna um mánaðamótin sept./okt. 2020
• Northern Light Inn lokað
• Kjarnalundur lokaður á Akureyri
• Hótel Saga tilkynnti lokun 1. nóvember 2020
• Mikið um helgaropnanir á landsbyggðinni
Icelandair Hotels
Fjöldi hótela: 9. Lokuð: 3
• Alda, Canopy, Hilton og
Natura í Reykjavík opin
• Icelandair Hotel Akur-
eyri og Icelandair Hotel
Hérað á Egilsstöðum opin
• Marina, Konsulat og
Mývatn lokuð
Íslandshótel
Fjöldi hótela: 17. Lokuð: 12
• 5 hótel opin af 17: Grand
Hótel, Fosshótel Jökulsár-
lón, Húsavík, Stykkis-
hólmur (helgaropnun) og
Reykholt (helgaropnun)
KEA Hotels
Fjöldi hótela: 10
Lokuð: 7
• 6 hótel lokuð í
Reykjavík af 7
• Gígur lokað
• Hótel Borg, Katla
og KEA Akureyri opin
Center Hotels
Fjöldi hótela: 8
Lokuð: 6
• Miðgarður og
Plaza opin
Ætla má að um
15% hótelgisti-rýmis í
Reykjavík séu opin
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fjölskylduhjálp Íslands ætlar að
fjölga úthlutunardögum vegna höfð-
inglegrar matargjafar Kaupfélags
Skagfirðinga og dótturfyrirtækja
sem ætla að gefa sem samsvarar
40.000 máltíðum til jóla. Ásgerður
Jóna Flosadóttir, formaður Fjöl-
skylduhjálparinnar, sagði að það yrði
gert bæði í Reykjavík og Reykja-
nesbæ.
„Við erum að auglýsa eftir sjálf-
boðaliðum. Okkur vantar karla og
konur sem vilja koma og hjálpa okk-
ur,“ sagði Ásgerður en senda má póst
á hjalp@fjolskylduhjalp.is og bjóða
fram aðstoð. Hún sagði að von væri á
matvælum í næstu viku og Eimskip
ætlaði að geyma þau í Sundafrosti.
Mikil hjálp væri í því.
Ásgerður sagði að fleiri hefðu haft
samband og tilkynnt um aðstoð. Fisk-
vinnslufyrirtæki fyrir vestan ætlar að
senda nokkur bretti af fiski. Maður
sem á fyrirtæki á Suðurnesjum hefur
gefið Fjölskylduhjálpinni í Reykja-
nesbæ jólamat fyrir 100 einstaklinga
undanfarin ár. Nú ákvað hann að gefa
matvæli fyrir 500 þúsund á mánuði í
október, nóvember og desember.
Aldrei upplifað svona tíma
„Þetta er frábært framtak hjá KS
og til fyrirmyndar. Vonandi verður
það öðrum hvatning,“ sagði Vilborg
Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálp-
arstarfi kirkjunnar. Hún kvaðst gera
ráð fyrir því, samkvæmt frétt
Morgunblaðsins í gær, að haft yrði
samstarf við félagasamtök um þessa
úthlutun. Vilborg benti á að fyrir jólin
væru samstarfshópar um aðstoð víða
um land. Þannig ynnu öll hjálpar-
samtök í Árnessýslu saman og eins í
Eyjafirði og víðar. Almennt er stuðn-
ingur Hjálparstarfsins í formi inn-
eignarkorta í verslunum en nú eru
óvenjulegir tímar.
„Almennt séð höfum við aldrei
upplifað svona tíma eins og núna,“
sagði Vilborg. „Þetta er það erfiðasta
sem ég hef séð vegna þess að það er
svo flókið. Í bankahruninu gat fólk
verið saman brjálað niðri í bæ, fundið
sökudólginn og fengið útrás fyrir
reiðina. Nú getur þú ekki bent á
sökudólg, ert atvinnulaus, tekjulaus,
einmana, einangraður og matarlaus.
Þetta bætist ofan á óvissuna.“
Vilborg sagði að vonandi yrðu hert-
ar sóttvarnaaðgerðir nú til þess að
hægt yrði að mæta fólki fyrir jólin og
veita því aðstoð.
Mikil hjálp í
matargjöfinni
Ástandið er mjög erfitt hjá mörgum
Morgunblaðið/Eggert
Mataraðstoð Hægt verður að
hjálpa fleirum vegna framlags KS.
Eftir að tilkynnt hafði verið um hertar sóttvarna-
aðgerðir, sem taka gildi í dag, fóru að myndast biðraðir
fyrir utan ýmsar verslanir á höfuðborgarsvæðinu, m.a.
fyrir utan Vínbúðina í Skeifunni. Einnig voru raðir fyr-
ir utan sumar matvöruverslanir og örtröð var í Ikea,
sem nú hefur ákveðið að loka verslun sinni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Biðraðir mynduðust við verslanir
Robert Burke flotaforingi og yfir-
maður bandaríska sjóhersins í Evr-
ópu segir bandaríska herinn vera að
íhuga aukna fjárfestingu hér á landi
sem myndi fjölga þjónustusvæðum
fyrir flotann við Íslandsstrendur.
Herinn sé að kanna hvort „eitthvert
verðmæti sé í litlu, varanlegu fót-
spori frá Bandaríkjunum“ á Íslandi.
Hann segir herinn líta sérstaklega
til Austurlands þar sem slíkur staður
væri „hentugri“ fyrir hernaðar-
aðgerðir en t.d. höfuðborgarsvæðið,
vegna nálægðar við svæðin þar sem
rússneskir kafbátar athafna sig
reglulega. Auk þess myndi slík að-
staða geta stutt undir öflugri leit og
björgun á hafsvæðum umhverfis Ís-
land.
Ekki er búið að ræða við íslensk
yfirvöld um þessi áform en hug-
myndinni hefur verið velt upp, að
sögn Burkes. „Ég veit ekki hve mót-
tækileg ríkisstjórnin ykkar er í
þessu máli, svo við verðum að eiga
það samtal.“ jonn@mbl.is
Bandaríkjaher áhugasamur
um aðstöðu á Austurlandi
Flotaforingi vill skoða varanlega aðstöðu hersins
Flotaforinginn Robert Burke ræðir
hugmyndirnar við stjórnvöld.