Morgunblaðið - 31.10.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 31.10.2020, Síða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga í síma 482 4800, arborgir@arborgir.is ÞorsteinnMagnússon lgf s. 894 2045 Þórir Ólafsson lgf s. 865 9774 Landsbankahúsið við Austurveg á Selfossi til sölu Fallegt og reisulegt hús í hjarta Selfossbæjar sem stendur á 7.312 m2 eignarlóð miðsvæðis á Selfossi. Húsið er byggt fyrir starfsemi Landsbanka Íslands eftir grunnteikningu frá Guðjóni Samúelssyni arkitekt og er tekið í notkun árið 1953. Eignin er heildina skráð 1.214 m2 og er í leigu að hluta og fylgja þeir leigusamningar eigninni. Eignin, sem er uppsteypt og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, skiptist í kjallara, tvær hæðir og ris auk þess 77 m2 bílskúr. Lóðin er stór og býður uppá margvíslega nýtingu. Frábært tækifæri fyrir fjárfesta að eignast þetta fallega og reisulega hús. Alexander Gunnar Kristjánsson alexander@mbl.is Allt íþróttastarf og sviðslistir um allt land eru óheimil. Þá eru krár, skemmtistaðir og sundlaugar um allt land lokuð. Veitingastaðir með vínveitingaleyfi mega þó vera opnir til klukkan 21. Sem fyrr er grímu- skylda þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra reglu. Regl- urnar fylgja í öllu tillögum sótt- varnalæknis, ef frá er talið að sótt- varnalæknir lagði til að tuttugu mættu koma saman við útfarir, ekki þrjátíu. Í minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis til ráðherra segir að síðustu daga hafi daglegur fjöldi smita að undanskildum hópsmitum verið um 13-28. Áhyggjuefni sé að með svo mikið samfélagssmit kunni að brjótast út nýjar hópsýkingar og valda enn meira álagi á heilbrigðis- kerfið. Lilja Alfreðsdóttir menntamála- ráðherra hefur sagt að nýjar reglur um takmarkanir á efstu stigum grunnskólans verði kynntar á morg- un. Reglurnar muni gilda út skóla- árið. „Allt samfélagið þarf að vinna saman að því að kveða niður veiruna. Við erum hins vegar að forgangs- raða í þágu menntunar og skólahald verður áfram. Það verða ákveðnar takmarkanir fyrir efstu stig grunn- skóla og framhaldsskóla,“ segir Lilja. Samhliða boðar ríkisstjórnin svo- nefnda viðspyrnustyrki, sem ætlað er að styðja við rekstur fyrirtækja á næstu mánuðum. Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra segir í sam- tali við mbl.is að frekari fjárútlát væru vissulega íþyngjandi og að út- haldið væri ekki endalaust. „En staðan var góð fyrir þennan faraldur og það hefur gert það að verkum að við getum gert það sem við höfum verið að gera,“ segir Katr- ín. Hún segist telja að landsmenn séu nú hálfnaðir með faraldurinn. „Ef við horfum á það sem talað er um úti í heimi og spár um bóluefni ganga eftir þá er ekki ósanngjarnt að segja: við erum hálfnuð í ánni. Miðað við það held ég að með þeirri stefnu að þjóna vel við almenning og atvinnulíf muni þetta fara hratt og vel af stað,“ segir Katrín. Morgunblaðið/Eggert Blaðamannafundur Ríkisstjórnin kynnti í Hörpu í gær hertar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar. Fleiri fá að sækja jarðarfarir en lagt var til í minnisblaði. Mikið samfélagssmit áhyggjuefni  Hertar sóttvarnareglur tóku gildi um allt land á miðnætti  Hálfnuð í ánni segir forsætisráðherra Helstu sóttvarnaráðstafanir frá 31. október Störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, Alþingis og dómstóla Almennings- samgöngur, hópbifreiðar og innan- landsflug Störf viðbragðs- aðila Fjöldatakmarkanir gilda ekki um Íþróttir óheimilar 30 manns að há-marki í útförum en 10 í erfidrykkjum10 manna fjöldatak-mörkun meginregla 50 manna hámarks-fjöldi í lyfja- og matvöruverslunum en reglur um aukinn fjölda með hlið- sjón af stærð húsnæðisins 10 manna fjöldatakmarkanir eiga ekki við þegar fleiri búa á sama heimili Krám og skemmti- stöðum lokað Veitingastaðir með vínveitingaleyfi mega ekki hafa opið lengur en til 21.00 GRÍMUSKYLDA þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra ná- lægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Börn fædd 2015 og síðar undanþegin 2 metra reglu, fjöldatakmörkun og grímu- skyldu (gilti áður um börn fædd 2005 og síðar). Sviðslistir óheimilar Sundlaug- um lokað Það eru vonbrigði að þurfa að til- kynna ákvarðanir um hertar að- gerðir, sagði Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir dómsmálaráðherra í færslu á facebooksíðu sinni í gær- kvöldi. Hún telur aðgerðirnar til þess fallnar að ná tökum á faraldr- inum eins skjótt og hægt er. „Staðreyndin er einfaldlega sú að þær aðgerðir sem hafa verið í gildi að undanförnu virka ekki sem skyldi,“ sagði hún. Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerir athuga- semdir við sóttvarnaaðgerðirnar. „Minnisblað sóttvarnalæknis, þar sem þessar hörðu aðgerðir eru lagðar til, er lítið rökstutt og blaða- mannafundur ríkisstjórnarinnar bætti þar engu við,“ sagði hún í samtali við mbl.is í gær. Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki sannfærður um gildi aðgerðanna. „Við verðum að taka með í reikn- inginn hvaða áhrif það hefur á lýð- heilsuna að fjöldi manns missi vinn- una, komist ekki í nausðynlegar aðgerðir og fleira þar fram eftir götunum.“ Hann segir umræðuna á villigöt- um. Allir þeir sem ekki fylgi þríeyk- inu í öllum málum séu úthrópaðir fyrir að vilja að fólk deyi, en það sé af og frá. „Ég segi að við eigum að einblína á þá sem eru í áhættuhóp- um og nota mannskapinn og pen- ingana í að verja þá,“ segir Brynjar. Vonbrigði Ekki eru allir sammála um ágæti aðgerða stjórnvalda. Sjálfstæðismenn ekki á einu máli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.