Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020
B Æ J A R L I N D 1 4 - 1 6 2 0 1 K Ó P AV O G U R S Í M I 5 5 3 7 1 0 0 L I N A N . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
Jólasendingin er komin
Ragnar Árnason, prófessor em-eritus í hagfræði, ritaði í vik-
unni afar athyglisverða grein um
borgarlínuna svokölluðu. Hann
benti á að miðað við markmiðin
með borgarlínunni
um að 12% ferða
fari með almenn-
ingsvögnum í stað
þeirra 4% sem nota
þá nú sé hug-
myndin með borg-
línunni „sú að
leggja auknar tafir
á 88-96% borgarbúa til að flýta
för 4-12% þeirra. Þar að auki
verða þessi 88-96% borgarbúa
sem verða fyrir auknum töfum í
umferðinni að borga þorrann af
fjárfestingunni í borgarlínunni
sem nemur tugum milljarða sem
og rekstrartapið af strætisvögn-
unum“.
Þetta eru auðvitað vafasömáform, en batna ekki þegar
Ragnar hefur útskýrt að útreikn-
ingar sem nýlega voru kynntir um
þjóðhagslegt gildi borgarlínunnar
og forsendur þeirra ganga ekki
upp. Ragnar bendir á að það sé
ekki rétt sem haldið var fram
þegar skýrsla um meinta hag-
kvæmni var kynnt að borgarlínan
sé þjóðhagslega hagkvæm.
Þetta útskýrir hann á skýranhátt og segir jafnframt að
þegar útreikningar hafa verið
lagfærðir og forsendur færðar í
raunsæisátt þá komi í ljós „að
framkvæmdin hefur verulega nei-
kvætt núvirði“.
Loks bendir Ragnar á að op-inber gögn bendi til þess að
að á höfuðborgarsvæðinu séu all-
margar framkvæmdir í sam-
göngumálum sem hafi verulega
jákvætt núvirði og muni nýtast
öllum. Hvers vegna er ekki ráðist
í þær fremur en óhagkvæma og
ofurdýra borgarlínuna?
Ragnar Árnason
Óhagkvæm
ofurframkvæmd
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fulltrúar fimm stéttarfélaga starfs-
manna álversins í Straumsvík og
Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd
Rio Tinto undirrituðu nýjan kjara-
samning fyrir starfsmenn í fyrra-
kvöld. Samningurinn gildir til 31.
maí á næsta ári og er afturvirkur frá
og með 1. júní sl. Samkomulag um
þennan skammtímasamning náðist í
seinustu viku en undirritun stéttar-
félaganna var frestað þar sem félög-
in vildu freista þess að ná samningi
til lengri tíma eða í samræmi við
gildistíma lífskjarasamninganna.
,,Þeir höfðu ekki heimild
til að gera lengri samning“
Var boðuðum verkfallsaðgerðum
þá frestað til 5. nóv. á meðan gerð
yrði tilraun til að ná samningi til
lengri tíma. Það tókst þó ekki og er
samningurinn sem undirritaður var
sl. fimmtudag óbreyttur. „Það eru
engar viðbætur við þetta. Þetta er
eingöngu árssamningur og er aftur-
virkur frá 1. júní,“ segir Kolbeinn
Gunnarsson, formaður Hlífar. Menn
verði því að hefja viðræður fljótlega
eftir áramót um kjarasamning sem
taki við þegar samningurinn rennur
út 1. júní nk. „Þetta er staðan núna
og við ákváðum að taka bara þetta
eina ár. Þeir höfðu ekki heimild til að
gera lengri samning.“ omfr@mbl.is
Skrifuðu undir nýjan samning
Stéttarfélögunum tókst ekki að ná
fram lengri samningi en til eins árs
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Straumsvík Samningar hafa tekist
við starfsmenn Rio Tinto.
„Vakin er athygli á því að borgin
hefur nýlega farið í átak til að hvetja
íbúa til að sniðganga pappírsbækl-
inga en borgin fer sjálf gegn eigin
hvatningu með því að dreifa pappír
inn um allar lúgur óumbeðin.“
Þetta segja borgarráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í fyrirspurn
sem þeir lögðu fram á fundi ráðsins
á fimmtudaginn.
„Inn um lúgur borgarbúa er að
berast litprentaður bæklingur útgef-
inn af Reykjavíkurborg upp á 64 bls.
um Græna plan borgarinnar og fast-
eignaþróunarverkefni. Borgarstjóri
lætur sér ekki nægja að upplýsa
borgarbúa, heldur sendir hann
bæklinginn í nágrannasveitarfélög
Reykjavíkurborgar. Þetta er bruðl
að mati borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins,“ segja þeir ennfremur.
Borgarfulltrúarnir segja augljóst
að Reykjavíkurborg sé komin langt
út fyrir hlutverk sitt. Það sé ekki
hlutverk borgarinnar að auglýsa
Græna planið, sem ekki er búið að
samþykkja, og fasteignaverkefni á
kostnað útsvarsgreiðenda. Í þessu
samhengi megi velta fyrir sér af
hverju þeir sem eru að selja eldri
fasteignir fái þá ekki sambærilega
auglýsingu frá útsvarsgreiðendum.
Þeir óska jafnfram eftir upplýs-
ingum, m.a. um hvar og hvenær
ákvörðun um útgáfu bæklingsins og
auglýsinga var tekin og hvaða fjár-
heimildir hafi legið fyrir ákvörð-
uninni. Ennfremur hvort gerð bækl-
ingsins og dreifing hafi farið í útboð.
„Hver var heildarkostnaður við
vinnslu blaðsins og auglýsinga og í
hverju fólst hann?“ er spurt.
Fyrirspurninni var vísað til um-
sagnar skrifstofu borgarstjóra og
borgarritara. sisi@mbl.is
Telja að nýútgefinn
bæklingur sé bruðl
Borgin fari gegn
eigin hvatningu með
því að dreifa pappír
Reykjavík Bæklingnum var dreift
víða á höfuðborgarsvæðinu.