Morgunblaðið - 31.10.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020
Eitt fallegasta
hús Suðurlands
til sölu
Landsbankahúsið, Austurvegi 20, Selfossi er eitt þekktasta
kennileiti bæjarins, byggt eftir teikningum Guðjóns Samúels-
sonar fyrir Landsbankann. Eignin er skráð alls 1.214 m2.
• Hluti hússins er skráður sem 56,5 m2 íbúð en hinir 1.080,5 m2 sem
skrifstofuhúsnæði. Grunnflötur hverrar hæðar er um 340 m2. Húsið er
byggt úr steinsteypu á árunum 1949–53 eftir teikningum Guðjóns
Samúelssonar.
• Kjallari er með sérinngangi og þar er nú m.a. tæknirými,
starfsmannaaðstaða, bankahvelfing og geymslur. Rými sem skráð er sem
íbúð er í kjallara. Á fyrstu hæð er góð lofthæð. Jarðhæðin er að mestu opinn
salur en þó er hluti hæðarinnar afstúkaðar skrifstofur.
Á annarri hæð eru m.a. skrifstofur og salerni. Upprunalega var sú hæð
innréttuð sem tvær íbúðir. Í risinu er m.a. nýlega innréttað veislueldhús og
borðsalur. Frístandandi bílskúr er 77 m2, byggður árið 1949.
• Húsið er vandað og hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina,
utan sem innan.
• Lóðin er 7.312 m2 eignarlóð sem gefur mikla möguleika. Framhluti
lóðarinnar er malbikaður og frágenginn. Baklóð er gróin. Ekki er til
deiliskipulag fyrir lóðina. Skv. aðalskipulagi er hluti lóðarinnar skilgreindur
sem miðsvæði með nýtingarhlutfall í samræmi við það.
Árni Hilmar Birgisson
aðstoðarmaður fasteignasala
856 2300
arni@log.is
Hallgrímur Óskarsson
löggiltur fasteignasali
845 9900
halli@log.is
Steindór Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
862 1996
steindor@log.is
Sigurður Sigurðsson
löggiltur fasteignasali
690 6166
sigurdur@log.is
Nánari
upplýsingar veita:
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur fengið fyrir-
spurn um það hvort leyfi fáist til að
reisa nýbyggingu á lóðinni Banka-
stræti 3. Fyrir er á lóðinni friðað hús
úr tilhöggnu grágrýti, reist árið
1881. Snyrtivöruverslunin Stella
hefur verið rekin í húsinu síðan 1942,
eða í 78 ár.
Þessi lóð er í hjarta Reykjavíkur,
steinsnar frá Stjórnarráðshúsinu. Á
embættisafgreiðslufundi skipulags-
fulltrúa í júlí í sumar var lögð fram
fyrirspurn Stefáns Arnar Stefáns-
sonar arkitekts um uppbyggingu á
lóð nr. 3 við Bankastræti, sam-
kvæmt uppdráttum Argos ehf.
Fram kemur í greinargerð með
fyrirspurninni að tillaga að deili-
skipulagi fyrir reitinn var gerð 2005.
Byggt á Stjórnarráðsreitnum
Samkvæmt henni var heimilað að
byggja um 1.310 m² á lóðinni Banka-
stræti 3. Í nóvember 2018 fór fram
samkeppni um nýja viðbyggingu og
stækkun Stjórnarráðshússins, aust-
ast á reitnum og að Bankastræti.
Stækkunin skv. verðlaunatillögunni
er um 1.200-1.500 m². Deiliskipulag
vegna þessa var ekki gert og
grenndarkynning hefur ekki farið
fram, segir í greinargerðinni.
Lóðarhafinn, Herbertsprent ehf.,
hyggst reisa fjögurra hæða nýbygg-
ingu, alls 1.173 fermetra. Steinhúsið
á lóðinni er 175 fermetrar. Við hönn-
un nýbyggingar og skipulags á lóð-
inni hefur verið horft til þess að
skerða ekki ásýnd gamla steinhúss-
ins við Bankastræti sem var friðlýst
árið 2011 skv. lögum um húsafriðun.
Stærðir og hlutföll nýbygginga taki
mið af stærð gamla hússins og
möguleikum innan lóðar og afstöðu
til nálægra bygginga. Nýbyggingar
geti tengst gamla húsinu á jarðhæð
og 2. hæð en á 3. og 4. hæð sé mögu-
legt að gera þrjár íbúðir í nýbygg-
ingu á tveimur hæðum hverja um
sig, miðbæjaríbúðir. Gluggar á gafli
eru settir fram sem hugmynd, eld-
traust gler sem veitt getur útsýni yf-
ir miðbæinn en jafnframt brotið upp
lokaðan brunagafl sem ella væri.
Leitað var álits Minjastofnunar
Íslands og fjallaði húsfriðunarnefnd
um erindið. Fært var til bókar að
nefndin telur fram komna hugmynd
að nýbyggingu á baklóð Banka-
strætis 3 yfirskyggja hið friðlýsta
hús að umfangi og hæð, raska stærð-
arhlutföllum og rýra ásýnd þess í
umhverfinu. Telur nefndin ekki
æskilegt að nýbyggingin nái lengra
til vesturs en gafl gamla hússins.
Bent er á að hlaðinn veggur, sem af-
markar lóðina til vesturs, sé orðinn
100 ára gamall og er jafnframt áfast-
ur hluti af hinu friðlýsta húsi. Legg-
ur Minjastofnun til að tillaga að upp-
byggingu á baklóð Bankastrætis 3
verði endurskoðuð með tilliti til
þeirra ábendinga sem fram koma í
bókun húsafriðunarnefndar.
Fram kemur í greinargerð verk-
efnisstjóra skipulagsfulltrúa að sam-
kvæmt aðalskipulagi sé Bankastræti
3 á svæði sem skilgreint er sem M1a,
Miðborgarkjarni.
Á svæði M1a sé að finna lykil-
stofnanir stjórnsýslu, menningar og
mennta, líflegustu verslunargötur
landsins, litríka flóru veitingastaða
auk fjölbreyttrar sérfræðiþjónustu.
Á jarðhæðum er verslunar-, veit-
inga- og menningar-, félags- og
þjónustustarfsemi opin almenningi í
forgangi en á efri hæðum skrifstofu-
og íbúðarhúsnæði auk gistiþjónustu.
Unnið verður deiliskipulag
Í ljósi þess að ekki er í gildi deili-
skipulag fyrir lóðina Bankastæti nr.
3 og hversu hugmyndir þær sem
lagðar eru fram í erindinu eru stórar
og umfangsmiklar leggur verkefn-
isstjórinn til að hafinn verði undir-
búningur við gerð deiliskipulags fyr-
ir reitinn, sem afmarkast af Lækjar-
götu, Hverfisgötu, Ingólfsstæti og
Bankastræti. Skipulagsfulltrúinn
féllst á tillöguna og fól verkefna-
stjóra að hefja undirbúning að deili-
skipulagi.
Vilja byggja hús í Bankastræti
Nýtt 1.173 fermetra hús í hjarta Reykjavíkur Snyrtivöruverslunin Stella rekin þarna í 78 ár
Morgunblaðið/Hari
Bankastræti 3 Snyrtivöruverslunin Stella hefur verið í húsinu síðan 1942.
Tölvumynd/Argos
Nýbygging Húsið mun rísa norðan
við hið friðaða hús í Bankastræti.
Húsið í Bankastræti 3 var byggt
1881, fyrsta íbúðarhúsið í
Reykjavík sem byggt var úr til-
höggnu grágrýti með svipuðum
hætti og Alþingishúsið. Líklega
unnu sömu iðnaðarmenn að
byggingunni, steinsmiðirnir
Lyders og Julius Schau. Húsið
var byggt fyrir Sigmund Guð-
mundsson prentara sem rak þar
prentsmiðju sína. Árið 1883
eignaðist Sigurður Kristjánsson
prentsmiðjuna og var rekin
bókaverslun og útgáfa í húsinu
undir hans nafni fram til 1985. Í
bakhúsi rak Herbert sonur Sig-
mundar prentsmiðju (1929-
1931), sem kennd var við eig-
anda sinn. 1931 tók sonur Her-
berts, Haukur, við keflinu en frá
1977-2008 rak ekkja Hauks, Ása
Ársælsdóttir, starfsemina og
eftir hennar dag hefur verslunin
Stella verið í umsjón dóttur
þeirra, Eddu Hauksdóttur.
Landsbanki Íslands hóf starf-
semi sína í húsinu við stofnun
árið 1886 en flutti fljótlega í hús
sitt við Austurstræti. Engu að
síður dregur Bankastræti nafn
sitt af þeirri starfsemi sem
hófst í húsinu.
Úr tilhöggnu
grágrýti
BANKASTRÆTI 3