Morgunblaðið - 31.10.2020, Side 11

Morgunblaðið - 31.10.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 Skipholti 29b • S. 551 4422 SKOÐIÐ NETVERSLUN LAXDAL.IS Fylgdu okkur á facebook LAXDAL ER Í LEIÐINNI GLÆSILEG DÚNKÁPA m/hettu Kr. 64.900 Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.isEngjateigi 5 // 581 214 // hjahrafnhildi.is SKOÐIÐ hjahrafnhildi.is MOSMOSH DAGAR 29. OKTÓBER – 1. NÓVEMBER 20% AFSLÁTTURAF ÖLLUM VÖRUM Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdir við byggingu göngu- og reiðbrúar yfir Þjórsá fyrir ofan Þjófafoss eru hafnar. Lágmarks- rennsli er nú í ánni og er sá tími not- aður til að steypa stöpla brúarinnar í farvegi árinnar. Landsvirkjun byggir brúna. Framkvæmdin er liður í mótvægis- aðgerðum vegna Búrfellsstöðvar 2 sem gangsett var fyrir rúmum tveimur árum. Tilgangurinn er með- al annars að bæta aðgengi að Búr- fellsskógi en hann hefur losnað að- eins úr tengslum við umhverfið eftir framkvæmdirnar við stækkun Búr- fellsstöðvar. Þá mun brúin tengja saman kerfi reiðvega og göngustíga sem eru beggja vegna Þjórsár, í sveitarfélögunum Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Öllum tilboðum hafnað Landsvirkjun bauð í sumar út byggingu 102 metra langrar stálbitabrúar í þremur höfum og með timburdekki. Þrjú tilboð bárust og voru þau á bilinu 190 til 243 millj- ónir en kostnaðaráætlun Lands- virkjunar hljóðaði upp á tæpar 126 milljónir kr. Öllum tilboðum var hafnað og ákveðið að skipta verkinu upp. Sam- ið var við Ístak sem átti lægsta tilboð í útboðinu um að byggja undirstöður brúarinnar. Björn Halldórsson, verkefnisstjóri hjá Landsvirkjun, segir að það sé flóknasti hluti verks- ins og sá sem mest óvissa ríki um. Framkvæmdir hófust fyrir rúm- um hálfum mánuði og er nú verið að undirbúa það að steypa undirstöður. Þær eru fjórar, ein við hvorn enda brúar og tveir stöplar ofan í ánni. Stefnt er að því að ljúka þessum áfanga fyrir lok ársins. Þá segir Björn að farið verði yfir hvernig staðið verður að framhaldinu en stefnt sé að því að brúin verði tilbúin um miðjan ágúst á næsta ári. Íslenskt timbur notað Áhersla hefur frá upphafi verið á að reyna að nýta innlent timbur sem mest við gerð brúarinnar og var gert samkomulag við Skógrækt ríkisins um að afla timburs til fram- kvæmdanna. Límtré Vírnet sér síð- an um að vinna efnið frekar og gera á því nauðsynlegar prófanir. Þver- bitar í brúargólfi verða límtrésbitar. Fyrir utan timbrið í brúna sjálfa verður lerki og greni notað í girðing- arstaura en einnig verður gerð til- raun með innlendan við í handlista brúarinnar. Ljósmynd/Björn Halldórsson Traust Byrjað er að steypa undirstöður göngubrúar yfir Þjórsá við Búrfell. Hafin bygging göngu- brúar yfir Þjórsá  Opnar Búrfellsskóg og tengir sama stígakerfi við ána Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Síðasta útgáfa íslenskra frímerkja kom út í fyrradag en þá voru gefin út 11 frímerki í sjö flokkum. Sigríður Ástmundsdóttir, fulltrúi í frímerkja- sölu Íslandspósts, segir að þótt nýrri útgáfu sé nú hætt séu til birgðir til nokkurra ára og eldri merki verði endurútgefin ef þörf verður á því. „Við verðum að eiga til frímerki,“ segir hún. Fyrsta frímerkið kom út á Eng- landi 1840 eða fyrir rúmum 180 ár- um. Fyrstu íslensku frímerkin, skildingafrímerkin, komu út 1873, og í formála II. bindis af bókinni Frí- merki íslenska lýðveldisins 1944- 2014, sem Íslandspóstur gaf út, kemur fram að á þeim tíma hafi komið út 607 frímerkjaútgáfur með 1.319 frímerkjum. Til að byrja með voru frímerki hugsuð sem sönnun á greiðslu sendingarkostnaðar en söfnunarþátturinn hefur orðið æ rík- ari með árunum. Fjölbreytt útgáfa Í flokknum „Íslenskur jarð- argróður til manneldis“ komu að þessu sinni út tvö frímerki, annað með mynd af gulrótum og hitt af rófu. Þemað í flokknum „Norðurlanda- frímerki 2020“ var spendýr og ís- lenska frímerkið sýnir mink. „Sepac-frímerki 2020“, samstarfs- verkefni smáþjóða í Evrópu, er með mynd af Skjaldbreið eftir málverki Jóns Stefánssonar frá 1937, en þem- að í ár var „Listaverk í þjóð- listasafni“. Eitt frímerki var gefið út í tilefni 250 ára afmælis Landsnefndarinnar fyrri og smáörk í tilefni þess að 800 ár eru frá upphafi Sturlungaaldar. Á næsta ári verður 100 ára afmæli fálkaorðunnar og því voru gefin út þrjú frímerki með mismunandi myndum af orðunni. Í flokknum „Jólafrímerki 2020“ eru tvær tegundir, önnur með mynd af rjúpu og hin af ref. Síðasta útgáfa ís- lenskra frímerkja  Íslandspóstur á miklar birgðir Heiður Ein gerð fálkaorðunnar. Sómi Önnur gerð orðunnar. Refur Jólafrí- merki 2020. Rófa Íslenskur jarðargróður. Sæmd Þriðja tegundin. ÞG verktakar, Reykjavík, áttu lægsta tilboð í smíði brúar yfir Jök- ulsá á Sólheimasandi, endurgerð vegarins beggja vegna og gerð bráðabirgðavegar. Nýja brúin verð- ur tvíbreið og leysir af hólmi ein- breiða brú sem byggð var 1967. Alls bárust fimm tilboð í verkið og hljóðaði tilboð ÞG verktaka upp á 734,6 milljónir króna. Var það 84,2% af áætluðum verktakakostnaði, sem var 891.7 milljónir. Næstlægsta til- boðið átti Eykt ehf., Reykjavík, 742,4 milljónir. Hærri tilboð bárust frá Ístaki hf., Mosfellsbæ, JÁ- VERKI ehf., Selfossi og Suðurverki hf. og Metrostav Íslandi ehf., Kópa- vogi sameiginlega. Nú er verið að fara yfir tilboðin hjá Vegagerðinni. Nýja brúin, sem Verkís hannar, verður eftirspennt bitabrú í fimm höfum, alls 163 metrar. Hún verður reist á sama stað og sú gamla, sem verður rifin. Bráðabirgðabrú verður gerð sem vinnuflokkur Vegagerð- arinnar smíðar. sisi@mbl.is Tölvumynd/Verkíð Sólheimasandur Nýja brúin verður væntanlega tilbúin í árslok 2021. ÞG verktakar buðu lægst í nýja brú

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.