Morgunblaðið - 31.10.2020, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
3+1 TILBOÐ
af 120 ml
Amsterdam akrýl
Þú kaupir 3 færð 1 frítt
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Hún er eins og unglingur,stekkur léttfætt upp írúm, er hraust og ekkertfarin að gefa sig, nema
heyrnin,“ segir Elín Arnórsdóttir,
eigandi læðunnar Mörthu, sem fagn-
ar tvítugsafmæli á morgun, 1. nóv-
ember.
„Martha hefur ekki hreystina
og háan aldur frá mömmu sinni
Snældu, því hún varð ekki nema tíu
ára. Ætli Martha hafi þetta ekki frá
pabba sínum, en okkur grunar að
pabbi hennar sé köttur sá sem bjó í
næsta húsi við okkur fyrir tuttugu
árum, því hann og Martha eru ná-
kvæmlega eins á litinn,“ segir Elín
og bætir við að Snælda Mörthu-
mamma hafi á sínum tíma komið
óvart inn í líf fjölskyldunar þegar
Elín var aðeins átta ára.
„Snælda var sífellt að sniglast í
kringum húsið okkar og ég var alltaf
að koma með hana inn, en mamma
og pabbi bönnuðu mér það, sögðu
hana eflaust eiga heima annars stað-
ar. En fljótlega kom í ljós að hún hélt
til í skúr hjá smiðum sem voru að
vinna við blokkina okkar, svo hún
var greinilega heimilislaus. Þá kom
pabbi með Snældu til mín og leyfði
mér að eiga hana.“ Ári seinna kom
Martha í heiminn þegar Snælda gaut
óvænt þremur kettlingum. Snælda
hafði greinilega stolist til fundar við
fressið í næsta húsi.
Heitir eftir hundi Bítils
„Við systkinin vorum öll ást-
fangin af Mörthu af því hún hafði
eitthvað fram yfir hina kettlingana
tvo. Hún var mjög smávaxin með
risaeyru og var strax sterkur og
sjarmerandi persónuleiki. Hún var
skemmtileg og fjörug en líka mikill
kúrari. Við suðuðum að fá að halda
henni og mamma ogpabbi samþykkti
að lokum að hún fengi að búa hjá
okkur með því skilyrði þó að pabbi
fengi að nefna hana. Hann gaf henni
nafnið Martha, eftir hundinum hans
Pauls McCartneys Bítils, sem hann
samdi lagið um, Martha my dear.“
Hinir kettlingarnir tveir voru
gefnir á önnur heimili en mæðgurnar
Snælda og Martha undu hag sínum
vel saman.
„Martha var litli kettlingurinn
hennar mömmu sinnar í níu ár, því
Snælda elskaði hana mjög mikið og
hugsaði um hana eins og kettling alla
tíð, sá meira að segja alltaf um að
þrífa hana. Martha reyndi alltaf að
komast á spena þó hún væri fullorðin
og skellti sér á spena með litlu hálf-
systkinum sínum þegar Snælda
eignaðist kettlinga. Þær mæðgurnar
eignuðust reyndar báðar nokkrum
sinnum kettlinga yfir ævina. Martha
var ekkert sérstaklega spennt yfir
kettlingunum sínum sem hún eign-
aðist, en aftur á móti var Snælda
rosagóð mamma og líka amma, því
hún tók að sér að sjá um kettlingana
hennar Mörthu þegar unglingurinn
vildi vera úti að göslast og nennti
ekki að sinna afkvæmunum heima
fyrir.“
Mæðgur gutu báðar í einu
Martha hefur flutt þrisvar yfir
ævina, tvisvar með allri fjölskyld-
unni og nýlega með Elínu og Símoni
kærasta hennar á þeirra eigið heim-
ili.
„Þegar foreldrar mínir fluttu
fyrst þá keyptu þau fokhelt hús og
læðurnar Snælda og Martha bjuggu
einar á neðri hæðinni á meðan verið
var að klára húsið. Við bjuggum hjá
ömmu og afa á meðan. Eitt kvöldið
þegar pabbi kom í húsið til að vinna,
þá voru mæðgurnar búnar að eign-
ast samtals tólf kettlinga. Þær höfðu
gotið á sama tíma og enginn vissi
hvor þeirra átti hvaða kettlinga, þær
lágu saman í sófanum með tólf kett-
linga á milli sín. Þær hugsuðu saman
um þessa kettlingahrúgu á vakta-
skiptum. Vissulega var mjög fjörugt
þegar við svo fluttum inn í húsið þeg-
ar það var tilbúið, með fjórtán kisum.
Nýja sófasettið varð ónýtt strax, al-
veg útklórað og alltaf einhverjir
kettlingar hangandi í gardínum.
Þetta var sannarlega mikið stuð,“
segir Elín og hlær.
„Vinur hans pabba á einn kett-
ling úr því goti sem heitir Tumi og
hann er ennþá lifandi, orðinn 17 ára.
Ætli Martha sé þá ekki mamma
hans, fyrst hann nær svona háum
aldri.“
Hún rekur okkur upp í rúm
Elín segir að Martha hafi verið
mjög virkur útiköttur á sínum yngri
árum og þá hafi hún verið þvengmjó,
enda alltaf á ferðinni.
„Hún fór mjög langar vega-
lengdir þegar hún var úti. Við bjugg-
um á Holtinu áður en við fluttum á
Vellina og hún hélt lengi áfram að
fara upp á Holt. Það hefði verið gam-
an að geta fylgst með ferðum hennar
með gps-ól eins og margir kattar-
eigendur í dag gera. Martha var
mikill töffari og stjórnaði öllu í göt-
unni og kom drulluskítug heim á
kvöldin með hvíta feldinn nánast
brúnan af drullu.“
Þegar Martha var fimmtán ára
hætti hún að fara út, af því að hún
var þá farin að missa heyrn.
„Hún kíkir út á svalir hér hjá
okkur, en er annars orðin værukær
inniköttur. Hún er mjúk sem lamb,
með sérstaklega þykkan feld. Það
besta við Mörthu er að hún er svo
mikil kúrikona, hún vill helst vera
allan daginn uppi í rúmi með okkur.
Hún er mjög félagslynd og vill láta
klóra sér og klappa endalaust. Hún
er dekurrófa og sefur allar nætur
uppi í rúmi hjá okkur, mér og kær-
astanum mínum. Hún rekur okkur
upp í rúm á kvöldin þegar hún vill
fara að sofa.“
Elín segir að þegar Martha hafi
verið eins eða tveggja ára, þá festist
strá uppi í nefinu á henni og það
þurfti að svæfa hana til að ná stráinu.
„Við það sködduðust radd-
böndin hennar og hún hefur verið
með ráma viskírödd allar götur síðan
þá. Hún talar mjög mikið, spjallar
við okkur á sínu kattamáli. Hún mal-
ar sjúklega hátt, eins og traktor.
Hún Martha er nautnaseggur sem
vill láta elska sig mikið alla daga.“
Tvítugur töffari með viskírödd
Hún fagnar tveggja áratuga afmæli á morgun hún
Martha, en þá ætla eigendur hennar að opna kampa-
vínsflösku, elda kjúkling handa henni og kúra með
henni eins mikið og hún vill. Minna má það nú ekki
vera fyrir læðu sem nær svo háum aldri. Martha vildi
lítið tjá sig þegar blaðamaður spurði hana um lífs-
gönguna en mamma hennar úr mannheimum tók að
sér að tala fyrir hana og sagði sögu hennar.
Morgunblaðið/Eggert
Vinir Elín segir að Martha sé mjög félagslynd og vilji láta klóra sér og klappa endalaust. „Hún er nautnaseggur.“
Nett Martha er eins og unglingur þótt hún sé 20 ára, sem er hár aldur katta.
Ást og knús Þær hafa búið saman í tuttugu ár og elska hvor aðra mikið.