Morgunblaðið - 31.10.2020, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020
PORSCHE NOTAÐIR BÍLAR
Skoðaðu úrvalið á benni.is
Krókhálsi 9
Sími: 590 2000
Virka daga 9 -18
Laugardaga 12 - 16
Upplifðu sanna ökugleði...
GHR01
Porsche Cayenne Turbo
HAU36
Porsche Cayenne E-Hybrid
FOU38
PorscheMacan S dísel
THP39
Porsche Cayenne E-Hybrid
Einstakur bíll og stórkostlegt tæki í alla staði.
Allt í senn, jeppi, sportbíll, tryllitæki og rúntari fyrir
alla fjölskylduna. Enda er Porsche Cayenne = sport
fyrir fimm! Lítið ekinn, mjög vel búinn og til í hvaða
ævintýri sem er.
Verð: 9.900.000 kr.
Nýskráður 23.05.2013 | Ekinn 74.000 km.
Nýjasta kynslóð Cayenne e-Hybrid, umhverfisvænt
sport fyrir fimm! Gríðarvel búinn og flottur bíll, allt í
leðri, stillanleg loftpúðafjöðrun, beygir að aftan, BOSE
hljómkerfi, skynvæddur hraðastillir o.s.frv., o.s.frv. Að
ógleymdu – 462 hestöfl og 5 sekúndur í hundrað!
Verð: 14.900.000 kr.
Nýskráður 12.10.2018 | Ekinn 7.000 km.
Porsche Macan á sér dyggan hóp aðdáenda, og ekki
að ósekju þar sem það er unun að keyra hann! Þetta
eintak er auk þessu sérlega elegant hvað varðar
búnað og umhirðu alla. Einn fyrri eigandi, lítið ekinn,
vel búinn og á frábæru verði.
Verð: 6.790.000 kr.
Nýskráður 09.10.2014 | Ekinn 53.000 km.
416 umhverfisvæn hestöfl í frábærum pakka á
frábæru verði. Lítið ekinn bíll, einn fyrri eigandi
og allt til alls.
Verð: 8.490.000 kr.
Nýskráður 12.07.2016 | Ekinn 74.000 km.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hrekkjavaka er í kvöld. Hátíðin
nefnist Halloween á ensku en það er
stytting á All Hallows’ Evening sem
er eins konar aðfangadagskvöld
allraheilagramessu 1. nóvember.
Anthony Bacigalupo, hönnuður og
listamaður, er frá Kaliforníu og hef-
ur búið hér í tíu ár. Hann hefur lagt
sig fram um að skreyta við heimili
þeirra Ýrar Káradóttur við Suður-
götu í Hafnarfirði, bæði fyrir
hrekkjavökuna og jólin.
„Ég ólst ekki upp við miklar
hrekkjavökuskreytingar á æsku-
heimili mínu í Kaliforníu og ég seg-
ist skreyta fyrir börnin, en líklega er
það aðallega fyrir sjálfan mig,“ sagði
Anthony. Hann er með litla verslun í
garðinum, The Shed, þar sem hand-
unnin listræn hönnun er til sölu. Op-
ið er eftir samkomulagi. Fólk getur
hist á svæðinu þar í kring. „Við
reynum að skapa notalega stemn-
ingu í bakgarðinum hjá okkur, eins
og í litlu sveitaþorpi. Þar kynnist ég
fólki úr nágrenninu. Mér finnst að
fólk eigi almennt að tala meira sam-
an. Það á kannski heima í sömu götu
en þekkist ekki. Líklega er það þess
vegna sem ég geri þetta.“
Anthony sagði að ítalska ættar-
nafnið hans, Bacigalupo, merkti
úlfskoss. Hann á Wolfman-búning,
varúlfsbúning, og hefur stundum
farið í hann á hrekkjavöku. Úlfur,
sonur þeirra Ýrar, á afmæli seint í
október og þau hafa oft verið með
afmælisveislu á hrekkjavökunni.
Ekki verður af því nú vegna farald-
ursins.
Anthony segist ekki skreyta til að
hræða enda hafi hrekkjavakan ekki
snúist um hrylling eða að hræða í
byrjun heldur verið meira eins og
öskudagur. Fólk kom þá saman
klætt búningum og skemmti sér.
Gott eða grikkur kom svo seinna.
Anthony er duglegur að setja mynd-
skeið á Instagram (@mono1984) um
það sem hann fæst við.
Dr. Árni Björnsson þjóðhátta-
fræðingur segir að hrekkjavaka eigi
sér ekki ýkja langa sögu hér á landi.
Hann hefur lengi barist fyrir því að
hrekkjavakan hjá okkur verði haldin
viku fyrr, á fyrsta vetrardag. Vetur-
nætur voru fimmtudagur og föstu-
dagur fyrir fyrsta vetrardag. Þá var
vetrarfagnaður til forna. Hann
færðist síðan yfir á allraheilagra-
messu.
Morgunblaðið/Eggert
Skemmtun Efnt var til hrekkjavökuhátíðar í gær í frístundaheimilinu Álftabæ.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafnarfjörður Anthony Bacigalupo hefur skreytt umhverfi heimilisins fyrir hrekkjavökuna.
Hrekkjavakan gefur vetrinum lit
Fjölbreytt skraut og draugaleg ljósker skapa stemningu Hrekkjavakan hefur breyst talsvert
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vefur Í Vesturbæ Reykjavíkur hefur kóngulóarvef verið haganlega komið fyrir í tré við hús á Hringbraut 69.