Morgunblaðið - 31.10.2020, Page 20

Morgunblaðið - 31.10.2020, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Heiðagæs hefur í auknum mæli numið land á láglendi á síðustu ár- um. Þekkt var að hún sótti neðar í Skagafirði, en á síðustu árum hefur þetta einnig gerst í Öxarfirði, á Út- héraði, sunnan Vatnajökuls og víð- ar, að sögn Halldórs Walters Stef- ánssonar, fuglafræðings hjá Náttúrustofu Austurlands. Hann segir heiðagæs vera ótrúlega teg- und, sem hafi sýnt mikla aðlög- unarhæfni. Í um 40 ár hefur verið fylgst með heiðagæsum á Snæfellsöræfum og talsverðar rannsóknir hafa verið á heiðagæsum á vatnasviði Kára- hnjúkavirkjunar, sem tók til starfa í lok árs 2007. Þá hafa breskir vís- indamenn fylgst með fuglinum hér á landi og settu meðal annars fyrstu GPS-senda á tvo karlfugla árið 2013. Síðan hafa þeir bætt í og sett tugi senda á heiðagæsir, ýmist á vetrarstöðunum í Bretlandi eða vítt og breitt hér á landi. Reyndu varp sem næst lóninu Náttúrustofa Austurlands hefur gert það sama síðustu ár, en frá 2005 til þessa árs hefur Náttúru- stofa Austurlands vaktað heiðagæs- ina í samvinnu við Landsvirkjun. Sumarið 2017 setti náttúrustofan senditæki á fimm heiðagæsir á Vesturöræfum, en fjórar gæsir bera nú slíka senda. Meðal niðurstaðna af þeirri vökt- un var að sögn Halldórs að þegar byrjað hafi að hækka í Háslóni 2007 hafi flotið yfir um 500 hreiður. Árið á eftir hafi gæsirnar reynt að verpa sem næst lóninu, en eftir það flutt sig upp á hásléttuna í 650-700 metra hæð yfir sjávarmáli, sem er hátt í 100 metrum hærra en Þjórsárver. Þarna séu vel gróin svæði, en gæs- irnar taki talsverða áhættu því þarna vori um tveimur vikum seinna heldur en á gamla varp- staðnum áður en lónið kom. Aftur og aftur í sömu hreiðrin Heiðagæs hefur fjölgað mjög á vatnasviði Kárahnjúkavirkjunar á síðustu áratugum og er staðan sú sama þar og annars staðar. Virkj- unarframkvæmdir hafa því ekki haft áhrif til fækkunar. Halldór seg- ir að spurningar hafi vaknað um hvort þær gangi of nærri gróðri og því hafi verið ráðist í gps/gsm- merkingar á heiðagæsum á svæðinu og eins varðandi landrof og sandfok. Gripið hafi verið til ýmissa for- varna, t.d. með girðingum, sand- gryfjum, varnargörðum og upp- græðslu sem tíminn eigi eftir að leiða í ljós hvernig virka. Þegar harðindi séu að vori færi sumar gæsirnar sig neðar og verpi þá í minni hæð. Þekkt sé að fugl- arnir leiti aftur og aftur á sömu svæðin og í sömu hreiðrin, þannig að fugl sem klekst úr eggi á lág- lendi sé líklegri til að verpa þá sjálf- ur á láglendi. Halldór segir að senditækin hafi gefið margvíslegar upplýsingar um ferðir fuglanna og búsvæði, t.d. hvaða gróðurlendi gæsin nýtir og hvernig. Eitt af því sem senditæki hafi sýnt sé að um leið og ungar verði fleygir fari gæsirnar af Vesturöræfum og út á Fljótsdals- heiði og austur fyrir Snæfell. Þar er lítið varp og geta gæsirnar nýtt sér að þar hefur lítið verið bitið yfir sumarið. Halldór rifjar upp að eitt vorið hafi Náttúrustofan fengið póst frá breskum vísindamönnum. Þeir hefðu haft áhyggjur af heiðagæs með senditæki og óttuðust að hún væri dauð, þar sem hún hefði ekki bært á sér um tíma þar sem hún var inni í Fljótsdal. Þegar að var gáð lá gæsin á hreiðri inni í miðjum lerkiskógi, en heiðagæsir eru ekki þekktar fyrir að verpa á láglendi inni í miðjum skógi. Þetta dæmi sé eitt af mörgum sem sýni hversu vel heiðagæsin aðlagast. Gæsirnar sem Náttúrustofan hef- ur merkt héldu af landi brott í sept- embermánuði, eftir sumardvöl á hefðbundnum slóðum á Snæfells- og Brúaröræfum. Þær bera flestar nöfn starfskvenna á stofunni og senda þær Áslaug, Katrín, Erlín/ Elín og Kristín samstarfsfólki sínu mikilvægar upplýsingar daglega. Halldór segir að tvær gæsanna hafi undanfarið verið á mörkum Skot- lands og tvær norðan við Liverpool, en allar þvælast þær mikið um. Aukakrókur hjá Kristínu Á meðfylgjandi korti má sjá að ein gæsanna (Kristín) hefur tekið mikinn hlykk norður fyrir Hjaltland á suðurleiðinni. Halldór segir það ekki óvenjulegt því vindstrengir geti borið þær af leið. Hann nefnir einnig að þegar ein af gæsunum, sem Bretar höfðu merkt, var á leið á vetrarstöðvarnar eitt haustið hafi ein gæsin villst af leið. Venjan sé sú að þær taki strik- ið frá Grænlandi til Íslands og það- an til Bretlands. Þessi fugl hafi hins vegar villst af leið og flogið norður fyrir Ísland og út á reginhaf milli Íslands og Noregs. Þar hafi hún verið kyrrstæð á hafinu í þrjá daga meðan hún áttaði sig á stöðunni. Eftir hvíld á hafinu hafi hún tekið stefnuna beint í vestur og hlaðið batteríin á Fjarðarheiði í vikutíma áður en hún hélt áfram til Bret- lands. Mikil aðlögunarhæfni heiðagæsa  Hefur fjölgað mikið á vatnasviði Kárahnjúkavirkjunar eins og annars staðar  Sendar gefa marg- víslegar upplýsingar  Leita meira á láglendi  Ein gæsin hitti ekki á Ísland á leið til vetrarstöðva Heiðagæsin verpur aðeins á Svalbarða, Grænlandi og Íslandi. Hún er al- ger farfugl hér og hefur aðallega vetursetu í Skotlandi en einnig í vaxandi mæli í Englandi. Sameiginlegur stofn Íslands og Grænlands hefur tæp- lega tuttugufaldast frá 1950. Stofninn var ríflega 500 þúsund fuglar haustið 2015 og hefur lítið breyst síðan. Á sama tíma og stofn heiðagæs- ar hefur stækkað hefur grágæs gefið eftir og einnig blesgæs sem fer hér um vor og haust. Mikill meirihluti heiðagæsa verpur hér á landi og er Ísland helsta varp- land hennar í heiminum en flestir geldfuglarnir fella fjaðrir á Grænlandi. Þjórsárver voru löngum stærsta varpið en nú er það í Guðlaugstungum norðvestan Hofsjökuls. Það er jafnframt stærsta heiðagæsavarp í heim- inum. Varpstöðvarnar eru í votlendum hálendisvinjum, meðfram ám og lækjum, oft í gljúfrum. Heiðagæs er grasbítur eins og aðrar gæsir og sækir nokkuð í ræktar- land á vorin, en annars éta þær einkum mýragróður: starir, hálmgresi, fífu, einnig elftingar og kornsúru. Síðsumars leggjast þær í berjamó og kornsúrurætur, segir á fuglavefnum. Hreiður í hálendisvinjum STÆRSTA VARP HEIÐAGÆSAR Í GUÐLAUGSTUNGUM Ljósmynd/Halldór Walter Stefánsson Merkt í bak og fyrir Heiðagæsin Katrín er ein gæsanna sem bera senditæki. Mynd af Vesturöræfum. Senditæki voru sett á heiðagæsirnar á Vestur- öræfum sumarið 2017 af Náttúrustofu Austurlands Kortið sýnir leið fjögurra merktra gæsa sem lögðu af stað til Bretlands 15.-23. september 2020 Ferðalag heiðagæsa til vetrarstöðvanna á Bretlandseyjum ÍSLAND ÍRLAND ENGLAND SKOT- LAND NOREGUR Fleiri tegundir Halldór með helsingja sem merktur var við Jökulsárlón í júlí fyrrasumar. Vinna við systurskipin Vilhelm Þor- steinsson EA og Börk NK er í full- um gangi hjá Karstensens- skipasmíðastöðinni í Skagen í Dan- mörku. Vilhelm er væntanlegur til Samherja upp úr áramótum, en Börkur til Síldarvinnslunnar á vor- mánuðum. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er rætt við Karl Jóhann Birgisson sem fylgist með framkvæmdum fyrir hönd fyrirtækisins. Hann segir að unnið sé alls staðar í skipinu; til dæmis er byrjað að klæða veggi, það er unnið í pípulögnum, verið að koma öllum vindum fyrir og eins er unnið í rafkerfinu. „Mörg þessara verka eru umfangsmikil og má nefna hvað rafkerfið varðar að lagðir verða 90 kílómetrar af köpl- um,“ segir Karl Jóhann meðal ann- ars. Styttist í komu systurskipanna Ljósmynd/Karl Jóhann Birgisson Nýsmíði Vilhelm Þorsteinsson EA (t.v.) og Börkur NK á athafnasvæði Karstensens í Skagen í Danmörku.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.