Morgunblaðið - 31.10.2020, Side 27

Morgunblaðið - 31.10.2020, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 Sprettur Nú verður sundlaugum lokað á ný, samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra, og þá verður gott að geta skellt sér í sjósund eins og þessi kona gerði í Garðabæ nýverið. Kristinn Magnússon Núverandi kjör- tímabili Alþingis lýkur eftir rétt um ár eða hinn 28. október 2021. Úr stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sem birtur var 30. nóv- ember 2017 segir: · „Skortur á hjúkr- unarrýmum veldur auknu álagi á sjúkrahúsin og skerðir lífsgæði aldraðra. Fyrir liggur að þörf fyrir uppbyggingu er veruleg á næstu fimm árum. · Ráðist verður í stórsókn í upp- byggingu og mun hún birtast á fjár- málaáætlun ríkisstjórnarinnar. Hluti fyrirhugaðs þjóðarsjóðs gæti nýst í þetta verkefni. · Einnig verður hugað að því að styrkja rekstrargrundvöll hjúkr- unarheimila, en áhersla verður einn- ig lögð á aðra þjónustuþætti svo sem heimahjúkrun, dagþjálfun og end- urhæfingu.“ Afskaplega skýr stefna. Ekki verður séð að þessari stefnu hafi verið vel fylgt enn sem komið er. Ríkið gerir raunar rekstur hjúkr- unarheimila sífellt erfiðari eins og kom vel fram í viðtali við Gísla Pál Pálsson, forstjóra Grundar- heimilanna, í frétta- tíma Stöðvar 2 hinn 23. október og í grein hans sem birtist hér í Morg- unblaðinu 27. október sl. Fram kom að í stað þess að auka við fjár- framlög umfram beinar launa- og verðlags- hækkanir, þá eru hjúkrunarheimilin, auk dvalar- og dagdeildar- heimila, krafin um nið- urskurð ár eftir ár og enn og aftur niður um hálft prósent skv. fjárlaga- frumvarpi fyrir árið 2021. Á sama tíma hefur nær öll önnur heilbrigð- isþjónusta fengið hækkanir á fjár- lögum umfram launa- og verðlags- hækkanir. Er það markmiðið að ríkisvæða rekstur hjúkrunarheimila? Það virðist vera markmið heil- brigðisráðherra að ríkisvæða sem mest af þessari starfsemi, sem ára- tugum saman hefur oftast verið rek- in með myndarbrag af sveitar- félögum, sjálfstætt starfandi félagasamtökum og sjálfseignar- stofnunum. Ríkið viðurkennir ekki húsnæðiskostnað hjúkrunarheimila, en er um leið tilbúið að fjárfesta í nýjum hjúkrunarheimilum og bera ábyrgð á rekstri og viðhaldi þeirra með ærnum tilkostnaði. Eins og rík- ið hafi ekki næg verkefni á sinni könnu. Of lítið er byggt, hjúkrunarheimili svelt og þjóðarsjúkrahúsið situr uppi með vandann. Ekki hefur verið þegið boð sjálfstætt starfandi aðila um að reka heilbrigðisþjónustu m.a. nýlega fyrir á annað hundrað skjól- stæðinga við Urðarhvarf í Kópavogi og boðin hafa verið laus hótelrými í Reykjavík. Á þjóðarsjúkrahúsinu kostar hvert rými tvöfalt eða þrefalt á við það sem er á hjúkrunarheim- ilum og ekki hægt að bjóða upp á þá endurhæfingu og aðra þjónustu sem hjúkrunarheimili veita. Þegar eitt- hvað bjátar á eins og núna kemur í ljós hvað mikilvægt er að nýta einnig sjálfstætt starfandi stofnanir, heil- brigðisstarfsfólk og sérfræðilækna, en leggja ekki allt á Landspítala. Hvað hefur Covid-19 kennt okkur? Það hefur komið í ljós í þessum Covid-faraldri hvað áhættusamt er að reka eingöngu eina sjúkrastofnun á Íslandi. Þegar hamfarir dynja yfir, hvort sem það er farsótt, öflugir jarðskjálftar, hópslys eða aðrar hamfarir, er áhættusamt að vera eingöngu með eina öfluga sjúkra- stofnun á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna er tímabært að und- irbúa rekstur á öðru sjúkrahúsi, ekki bráðasjúkrahúsi eða háskóla- og rannsóknarsjúkrahúsi, sem væri hvorki rekið af Landspítala né rík- inu en þó í nánu samstarfi við ríkið. Það sjúkrahús gæti sérhæft sig í til- teknum aðgerðum og unnið með Landspítala í að stytta biðlista og gera honum auðveldara að sinna verkefnum sínum sem bráða- og há- skólasjúkrahús. Atvinnuvalkostir yrðu auk þess fleiri fyrir starfsfólk eins og góð reynsla er af með rekstri sjálfstætt starfandi háskóla eins og Háskólans í Reykjavík. Þetta getur dregið fleira lækna og heilbrigðisstarfsfólk til landsins eins og var með háskólastarfsem- ina. Þörf fyrir ferðir sjúklinga til út- landa gæti einnig minnkað. Með slíkri starfsemi mætti einnig bjóða fram heilbrigðisþjónustu fyrir út- lendinga og skapa aukna atvinnu- möguleika og þjóðartekjur. Eldri borgarar stunda ekki mótmælagöngur eða veggjakrot Eldri borgarar fara ekki í verkfall, þeir fara ekki í kröfugöngur, þeir mála ekki á veggi slagorð eins og „Hvar er hjúkrunarheimilið mitt?“ Þeir kaupa ekki auglýsingaherferð í fjölmiðlum. Við í velferðarnefnd Sjálfstæðisflokksins viljum standa með eldri borgurum í að stytta bið- lista og leita að nýjum lausnum í heilbrigðismálum en halda í gamlar lausnir sem hafa reynst vel. Ljúka þarf trúverðugri framkvæmdaáætl- un varðandi hjúkrunarheimilin í anda stjórnarsáttmálans nú á síð- asta ári kjörtímabilsins. Ríkisvaldið, í samstarfi við sjálfstætt starfandi heilbrigðisstofnanir, hefur alla möguleika á að bæta úr húsnæð- isvanda þeirra sem þurfa hjúkr- unarþjónustu. Ótækt er að eldri borgarar þurfi að bíða misserum og jafnvel árum saman eftir viðunandi búsetuúrræði á hjúkrunarheimili. Við skorum á þessa ágætu rík- isstjórn að gera bragarbót í þeirra málum. Eftir Þorkel Sigurlaugsson »Ljúka þarf byggingu hjúkrunarheimila og styrkja rekstrargrund- völl þeirra samkvæmt stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar. Ríkisvæð- ing er ekki lausnin. Þorkell Sigurlaugsson Höfundur er formaður velferðar- nefndar Sjálfstæðisflokksins sem kos- in er á landsfundi Stöndum með eldri borgurum og hjúkrunarheimilum! Okkar bíður stórt verkefni og það má engan tíma missa. Óveðursskýin vofðu yfir íslensku efna- hagslífi í lok síðasta árs og kólnun hag- kerfisins var stað- reynd. Stóra álita- málið var og er hvernig skapa eigi verðmæti framtíðar. Á nýliðnu Iðn- þingi kom fram að skapa þarf 60 þúsund störf til ársins 2050 eða sem samsvarar 40 störfum á viku hverri næstu þrjá áratugina. Stórauka þarf einnig verðmætasköpun til að standa undir þeim samfélagslega kostnaði sem hlýst af kórónuveir- unni. Á sama tíma og hlúa þarf að þeim atvinnugreinum sem umfangs- mestar eru þarf að festa nýja stoð – fjórðu stoðina – í sessi. Brýnt er að skipta um kúrs og gera þetta að forgangsmáli. Í megindráttum eru þrjár stoðir útflutnings, sjávarútvegur, orku- sækinn iðnaður og ferðaþjónusta. Nú hriktir í tveimur stoðunum. Ferðaþjónusta á undir högg að sækja um heim allan vegna veiru- faraldursins. Hömlur eru á ferða- lögum og ferðavilji fólks er minni meðan á faraldrinum stendur. Þá eru blikur á lofti í orkusæknum iðn- aði á Íslandi, afkoma iðnfyrirtækja sem nýta raforku versnar og umsvif hafa dregist saman. Það yrði mikið áfall ef tvær stoðir létu undan á sama tíma. Fleiri Össur, Marel og CCP Með fjórðu stoðinni undir efna- hag Íslands sköpum við störf og verðmæti til að standa undir þeim lífsgæðum sem landsmenn þekkja og vilja búa við. Fjórða stoðin bygg- ist á hugviti og nýsköpun en sá brunnur er óþrjótandi á meðan náttúruauðlindir landsins, sem hin- ar þrjár stoðirnar byggjast á, eru takmarkaðar. Því eru hins vegar engin takmörk sett hversu mikil verðmæti má skapa með því að virkja hugvitið. Össur, Marel og CCP eru gjarn- an nefnd sem dæmi um fyrirtæki í fjórðu stoðinni og hefur verið sagt að eitt slíkt fyrirtæki verði til á ára- tug á Íslandi. Mörg önnur fyrirtæki sem tilheyra fjórðu stoðinni eiga möguleika á því að vaxa og verða næsta Össur, Marel og CCP. Ef rétt er á málum haldið gætu þrjú til fimm fyrirtæki náð þessari stærð- argráðu á hverjum áratug. Jarðvegurinn er frjór Á síðasta áratug eða svo hefur umgjörð nýsköpunar verið styrkt svo um munar en þar skipta um- bætur sem Alþingi samþykkti í vor mestu. Stjórnmálamenn eiga hrós skilið fyrir að hvetja til nýsköpunar og atvinnulífið hefur svarað kallinu. Hugmyndaríkt fólk hefur unnið hörðum höndum að því að skapa nýjungar og selja þær. Hvatarnir hafa sannað gildi sitt, jarðvegurinn er frjór og fræjum hefur verið sáð. Framundan getur hæglega verið áratugur nýsköpunar – áratugur uppskeru þar sem sprotar blómstra og skapa mikilvæg verðmæti. Þann- ig verður fjórða stoðin fest í sessi með fjölmörgum nýjum störfum, út- flutningsverðmætum og auknum fjölbreytileika í atvinnulífinu sem eykur stöðugleika til framtíðar. Umbætur og sókn Tvö meginverkefni eru á borði stjórnvalda svo fjórða stoðin verði fest í sessi. Annars vegar er það að efla samkeppnishæfni landsins og hins vegar að sækja tækifærin. Mótun atvinnustefnu er öflugasta leiðin til að efla samkeppnishæfni. Stefnan grundvallast á umbótum á fjórum meginsviðum. Í mennta- málum þannig að mannauður lands- ins styðji við sýn um fjórðu stoðina, með því að tryggja að innviðir landsins séu traustir og leggi grunn að verðmætasköpun, að umgjörð nýsköpunar sé eins og best verður á kosið þannig að hugvit landsmanna verði virkjað í ríkari mæli og starfs- umhverfi fyrirtækja sé hagkvæmt, skilvirkt og stöðugt. Þannig er hlúð að þeim atvinnugreinum sem stærstar eru um leið og fjórða stoð- in er reist. Umbætur einar og sér duga þó skammt ef ekki er sagt frá þeim dyrum sem þær opna. Sækja þarf tækifærin með markvissum og skipulegum hætti og markaðssetja Ísland á breiðari grunni en verið hefur. Með samstilltu átaki stjórn- mála, stjórnsýslu, Íslandsstofu og atvinnulífs er hægt að laða að er- lenda fjárfestingu, ný fyrirtæki og þekkingu í ríkari mæli. Við höfum dregist aftur úr á þessu sviði í sam- anburði við mörg önnur ríki og þurfum að sækja tækifærin með kröftugri markaðssetningu – frá upplýsingatækni til kvikmynda- framleiðslu, frá líftækni til grænnar tækni. Hlaupum hraðar Efnahagsleg framtíð Íslands er í húfi. Með fjórðu stoðinni verða til ný störf, aukin verðmæti til að standa undir þeim lífsgæðum sem landsmenn þekkja og vilja búa við og verðmæti til að greiða fyrir þann kostnað sem hlýst af kórónuveir- unni. Leiðin liggur fyrir en verk- efnið er rétt að hefjast. Við þurfum að hlaupa hraðar og setja þetta verkefni í forgang. Þannig verður Ísland áfram í fremstu röð. Fjórða stoðin – til mikils að vinna Eftir Árna Sigurjónsson og Sigurð Hannesson »Með fjórðu stoðinni undir efnahag Ís- lands sköpum við störf og verðmæti til að standa undir þeim lífs- gæðum sem landsmenn þekkja og vilja búa við. Árni Sigurjónsson Árni er formaður Samtaka iðnaðar- ins, Sigurður er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Sigurður Hannesson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.