Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 Leirdalur 21, 260 Reykjanesbær Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 4ra herbergja neðri hæð með verönd, og bílskúr. Vönduð fullbúin eign, sem skilast með gólfefnum og tækjum. SÍÐASTA EIGNIN Verð kr. 54.500.000 139,5 m2 Það er býsna vinsæl dægradvöl hérlendis að rekja skyldleika fólksen þó eflaust einkum eigin ættmenna. Þar hefur snilldartólið Ís-lendingabók.is reynst mörgum vel og svalað fróðleiksþorst-anum. Hugtakið frændastyrkur kemur fyrir í Egils sögu, 64. kafla; Egill þykist „hafa til þess burði og frændastyrk hér í landi að hafa við Atla hinn skamma“. Halldór Laxness notar sama orð í Gerplu og leggur í munn Kötlu húsfreyju sem segir við Þormóð: „Megu það allir menn sjá að þú glepur Þórdísi. Neytir þú þess að vér eigum lítinn frændastyrk, mæðgur, að verja oss þá er vér erum svívirtar, en átt sjálfur höfðíngjafylgi af Ver- mundi frænda yðrum að fara að ekkjum og lítilmennum.“ Á öðrum stað í sögunni notar Halldór aðra mynd orðsins: frændstyrkur. Orðið frændstyrkur er haft í yfirfærðri merkingu í grein Guðmundar Finnbogasonar, „Hreint mál“, í Skírni 1928. Þar mælti hann kröftuglega fyrir nýyrðastefnunni en fann tökuorðum flest til foráttu og kallaði þau meðal annars „hægindi hugsunarletinnar“, „ógagnsæ“ og að þau væru „sem blindgluggar í höll málsins“. Guðmundur lagði ekki síst áherslu á að tökuorðin skorti það sem hann kallaði „frændstyrk í málinu“ og stæðu tökuorðin fyrir vikið „kuldaleg og heimskleg á svip innan um hin orðin“. Guðmundur tefldi fram til samanburðar orðum „af alíslenskum toga“ af einni og sömu rót, laus-: lausn, lausung, lausnari, leysa, leysingi o.s.frv. Þarna virtist ekkert vanta upp á frændstyrkinn. Guðmundur taldi að hin skyldu orð fengju „ljós sitt“ í senn frá „frummerkingu“ og því sem bæst hefði við rótina. Guðmundi hefði reyndar ef til vill verið óhætt að bæta við orðafjölskyld- una í dæmi sínu orðinu ljósmóðir – sem seinni tíma kannanir benda til að íslenskum málnotendum þyki orða fegurst. Sú skýring er til að fyrri hluti orðsins, ljós-, sé af sömu rót og laus, losa og leysa, sbr. orðasambandið að leysa kind frá konu (kind merkir hér barn). Enda þótt form orða sé innlent liggur ósjaldan til grundvallar erlent orð sem þýtt hefur verið, lið fyrir lið. Hér má taka sem dæmi orðin gróður- húsaáhrif (sbr. á ensku greenhouse effect), grænþvottur (sbr. á ensku greenwashing), lánalína (sbr. á ensku credit line) og hátækniiðnaður (sbr. á ensku high-tech industries). Í framhaldi af hartnær aldargamalli ádrepu Guðmundar Finnbogasonar um ókosti tökuorða er ekki úr vegi að minna á að í íslensku eru raunar fjöl- mörg tökuorð sem hafa með tímanum eignast afkomendur eða frændstyrk við eðlilega notkun í íslensku samhengi. Nefna má sem dæmi orðin spritt og sport. Fólk er sífellt hvatt til að spritta sig og hægt er að kaupa alls kon- ar sportlegar andlitsgrímur í sóttvarnaskyni. Upp af aðfengnum rótum hefur sprottið myndargróður í sátt við reglur málsins að öðru leyti. Frændstyrkur orðanna Tungutak Ari Páll Kristinsson aripk@hi.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Sóttvarnir Úrval andlitsgrímna. Kynni okkar Bryndísar Schram hófust haustið1948, þegar hún settist í 10 ára bekk í Mela-skólanum, sama bekk og við Atli HeimirSveinsson, síðar tónskáld, höfðum verið í frá átta ára aldri. Þá þegar fóru sögur af henni, sökum glæsileika og persónutöfra. Ekkert okkar þriggja vissi þá, að við ættum eftir að verða vinir til æviloka. Við strákarnir héldum okkur í hæfilegri fjarlægð frá þess- ari „prímadonnu“ sem þá var að verða til. Höfum sennilega verið hræddir við hana og það sama sýndist mér eiga við um menntaskólaárin. Fyrir skömmu kom út bók eftir Bryndísi, sem heitir Brosað gegnum tárin, sem er eins konar uppgjör hennar við stormasamt líf. Framan af er bókin lifandi og skemmtileg. Svo tekur sársauki og harmleikur við. Hvort ætli móti okkur öll meira – velgengni eða erf- iðleikar í lífinu? Sjálfur held ég að það séu erfiðleikarnir, sem um leið eru þroskandi og geta leitt til aukinnar þraut- seigju. Við strákarnir, sem vorum samtíma Bryndísi í skóla, litum upp til hennar og bárum mikla virðingu fyrir henni. Þeirri upplifun lýsti ég í bók minni Í köldu stríði – Barátta og vinátta á átakatímum, sem út kom hjá Veröld 2014 með þessum orðum: „En þrátt fyrir vaxandi pólitísk umsvif höfðu þeir okkar, sem heima sátum, tíma til að fara í Þjóðleikhúsið þessi misseri – aftur og aftur, sát- um þar gjarnan á fremsta bekk og störðum – orðlausir af aðdáun – á hina nýju prímaballerínu Þjóðleikhúss- ins, Bryndísi Schram, svífa um sviðið.“ Samfélag okkar á þeim árum var bæði fordómafullt og þröngsýnt. Þegar samband þeirra Jóns Baldvins Hannibalssonar og Bryndísar var orðið lýðum ljóst man ég eftir umtali um þessa vini mína, þar sem furðu var lýst yfir að heildsaladóttir úr Vesturbænum tæki saman við son alþýðuhetjunnar Hannibals Valdemars- sonar. Þeir fordómar og sú þröngsýni birtust líka í því, sem fram kemur í bókinni og ég fylgdist með á þeim tíma, að þegar Jón Baldvin kom heim frá námi, með há- skólapróf í hagfræði, fékk hann hvergi vinnu vegna þess að hann var sonur Hannibals. Þess vegna fór hann að kenna í Hagaskóla. Lifandi lýsingar Bryndísar af Vesturgötunni og fólk- inu þar og frá Ísafirði eru skemmtilegar sem og marg- víslegar frásagnir hennar af samskiptum þeirra Jóns Baldvins við erlenda stjórnmálamenn, þekkta og óþekkta. Þegar ég var að lesa bókina rifjuðust upp fyrir mér orð, sem annar bekkjarbróðir okkar úr Melaskólanum, Hörður heitinn Sigurgestsson, síðar forstjóri Eim- skipafélagsins, lét einu sinni falla í samtölum okkar: Umtalið er grimmt, sagði Hörður. Og það er rétt. Umtalið í svo fámennu samfélagi getur verið ótrúlega grimmt. Og það er sú grimmd, sem Bryndís á erfitt með að sætta sig við. Umfjöllun hennar um þann þátt mannlífsins vekur þá spurningu, hvort viðkvæmni hennar hafi verið og sé slík, að hún hafi þolað illa þá grimmu pólitísku veröld, sem var ver- öld þeirra Jóns Baldvins. Fyrir allmörgum árum flutti ég ræðu á ársfundi Rot- ary-félaga, sem haldin var í Kópavogi. Þema þeirrar ræðu var: Ef þið viljið eiga farsælt líf, haldið ykkur frá fjölmiðlum. Að sumu leyti má segja að þau Jón Baldvin hafi lifað lífi sínu í fjölmiðlum – ekki vegna þess fyrst og fremst að þau hafi sótzt eftir því, heldur vegna þess, að þau gátu varla hreyft sig án þess að fjölmiðlar væru á eftir þeim. Og reyndar ekki bara fjölmiðlar. Fyrir nokkrum áratugum fór ég með þeim á milli nokkurra öldurhúsa. Alls staðar þyrptist fólk að þeim báðum og ég gat ekki betur séð en það væri samkeppni á milli þeirra um athyglina. Hún vann alltaf. Fyrr á árum voru ekki til margar slíkar „stjörnur“ á Íslandi. Og það er ekki endilega farsælt að vera „stjarna“. Það eru líka dökkar hliðar á þeirri tilveru. En allt eru þetta aukaatriði í lífi þeirra Bryndísar og Jóns Baldvins, sem skipta engu máli þegar kemur að alvöru lífsins. Fráfall Snæfríðar dóttur þeirra í blóma lífsins var áfall, sem aldrei hverfur, og sá harmleikur sem tengist Aldísi dóttur þeirra ólýsanlegur. Ég man vel eftir því, þegar Aldís fæddist. Í mig hringdi æskuvinur okkar allra, Ragnar Arnalds, síðar formaður Alþýðubandalagsins, þingmaður og ráðherra, og sagði: Veiztu hver eignaðist barn í gær? Nei, sagði ég. Bryndís Schram sagði hann. Það getur ekki verið sagði ég, ég hitti hana í fyrradag og hún var ekki ófrísk. Aldís fæddist og fyrir rúmu ári töluðum við saman á fundi í Iðnó á vegum Lýðræðisflokks Benedikts Lafleur (hún flutti ljóð). Það var upplifun að sjá persónutöfra móður hennar og ræðusnilld föður hennar sameinast í einni og sömu manneskju. Fyrir u.þ.b. þremur áratugum sátu þau feðgin í stof- unni heima hjá mér, við Jón Baldvin rifumst eins og við höfum gert alla tíð og ég staðhæfði að hann hefði aldrei orðið sami alþýðuforingi og pabbi hans, Hannibal, var. Þá sagði Aldís: „Hann pabbi? Hann hefur aldrei keppt við neinn ann- an en pabba sinn.“ Mér varð litið á Jón Baldvin, þegar hún sagði þetta, og sá að hún hafði hitt hann í hjarta- stað. Bryndís hefur í bók sinni tilhneigingu til að kenna sjálfri sér um. Í því er fólgin of mikil sjálfsásökun. Á síðustu rúmri hálfri öld hafa margvíslegar rann- sóknir leitt margt í ljós um sálarlíf barna. Barnaverk- efni Ásmundar Einars Daðasonar barnamálaráðherra, sem mun birtast á Alþingi innan skamms, snýst um að taka á málum, sem enginn vissi neitt um í þá daga. Bók Bryndísar Schram er verðugt innlegg í þær um- ræður. Velgengni eða erfiðleikar … … hvort mótar okkur meira? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Nú líður að lokum forsetakjörsinsbandaríska, en allur heimurinn fylgist með því, enda eru Bandaríkin langöflugasta hagkerfi og herveldi heims. Án þess hefðu þeir Stalín og Hitler líklega skipt Norðurálfunni allri á milli sín upp úr 1940. Spek- ingar þeir, sem koma fram þessa dagana í fjölmiðlum, segja flestir lík- legast, að Joe Biden, fyrrverandi varaforseti, muni sigra. Þetta er rangt. Líklegast er, að Donald Trump, núverandi forseti, muni tapa. Þeir, sem kjósa Biden, eru langflestir að kjósa á móti Trump. Þetta leiðir hugann að einum mun á því að kjósa úti í kjörbúð og inni í kjörklefa. Úti í kjörbúð kýs maður með krónunum sínum þá vöru, sem hann vill. Inni í kjörklefa kýs hann með höndunum þann frambjóðanda, sem hann vill stundum ekki, en telur illskárri en keppinauturinn. Biden vekur ekki traust. Hann er gleyminn og reikull í tali og leyfir fjölskyldu sinni að hagnast á nafni sínu. Hann ber með sér, að hann er orðinn 77 ára. En hann nær líklegast kjöri, því að hinn spræki keppinautur hans vekur víða stæka andúð, sem er ekki með öllu óskiljanleg. Annar galli á kjörklefalýðræðinu, ólíkt kjörbúðalýðræðinu, er að menn vita ekki alltaf, hvað þeir kjósa yfir sig. Úti í kjörbúð geta menn skoðað vöruna, lesið sér til um innihaldið og séð, hvað hún kostar. En inni í kjör- klefanum geta menn sjaldnast séð fyrir, hvað muni gerast, sérstaklega í löndum með hlutfallskosningar og samsteypustjórnir, en líka í löndum með tveggja flokka kerfi eins og í Bandaríkjunum, þótt kostir séu þar skýrari. Og jafnvel þótt bandarískir kjós- endur ættu nú orðið að þekkja þá Joe Biden og Donald Trump, vita þeir ekki, hvað kjör þeirra muni kosta. Biden hyggst hækka skatta á hina tekjuhærri og takmarka vinnslu jarðefna. Þetta er hvort tveggja vel fallið til vinsælda, en gæti haft neikvæðar afleiðingar í at- vinnulífinu. Kjarni málsins er sá, að vilji ein- staklinganna kemur miklu betur fram, þegar þeir kjósa daglega með krónunum úti í kjörbúð en þegar þeir kjósa með höndunum inni í kjörklefa á fjögurra ára fresti. Þess vegna ætti að flytja sem flestar ákvarðanir frá stjórnmálamönnum og skriffinnum til neytenda og skatt- greiðenda. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Kjörbúðir og kjörklefar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.