Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 OPIÐ HÚS MÁNUDAGINN 2. NÓVEMBER KL. 17:00–17:30 Hamraborg 12 200 Kópavogur 416 0500 www.eignaborg.is ÁRANGUR Í SÖLU FASTEIGNA Engihjalli 19, 200 Kópavogur Verð 44,1 millj. Upplýsingar gefur Vilhjálmur Einarsson lgfs. í síma 864 1190 og villi@eignaborg.is Björt og falleg fjögurra herbergja íbúð á 6. hæð, merkt 6A, með glæsilegu útsýni. Endurnýjuð eldhúsinnrétting, þrjú svefnherbergi, rúmgóðar stofur og tvennar svalir. Íbúð – Stærð 97,4 fm Það kemur í sjálfu sér ekki áóvart að bandaríska meist-aramótið fari fram á netinuog tímamörk miðist við það sem gengur og gerist í at-skákmót- um, þ.e. 25:5. Sú tilhneiging að stytta umhugsunartímann er ríkjandi í dag eins og kom fram á Altibox-mótinu í Noregi á dögunum. Þar fengu menn tvær klukkustundir til að ljúka 40 leikjum og eftir það 10 sekúndur á hvern leik, þ.e. einhvers konar blanda af kappskák og hraðskák. Persónu- lega finnst mér óþarfi að skera af um- hugsunartímanum eftir því sem lengra líður á skákina og víst er að mörg athyglisverð endatöfl missa gildi sitt. Það getur verið erfitt að átta sig á ýmsum smáatriðum með nokkrar sekúndur á klukkunni og eðlilegra að takmarka umhugs- unartímann við byrjun skákar þegar flestir kunna sína lexíu. Bandaríska meistaramótið er skip- að nær öllum bestu skákmönnum Bandaríkjanna að Caruana og Kamsky undanskildum, en sá síð- arnefndi virðist ekki vera í náðinni hjá forsvarsmönnum skákmiðstöðv- arinnar í St. Louis. Eftir sjö umferðir af ellefu var Wesley So efstur með sex vinninga af sjö mögulegum. Í fyrstu umferð kom upp staða sem sýnir vel hvernig tiltölulega einfaldar jafnteflisstöður geta vafist fyrir mönnum með lítinn tíma aflögu: Bandaríska meistaramótið 2020: Wesley So – Alexander Lender- man Svartur lék nú 92. … Bb5 og eftir, 93. c6 Ba4 94. Kb7 Ke7 95. c7 Bd7 96. c8(D)+ Bxc8 97. Kc8 Kd6 98. Kb7 Kd7 99. b5, gafst hann upp. Það mátti verjast betur með því að bíða og láta síðan biskupinn vinna eftir lengri skálínum: 92. … Be2, t.d. 93. c6 Ke7 94. Kb8 Kd6 95. c7 Bg4 96. c8(D) Bxc8 97. Kxc8 Kc6 og nær b-peðinu. Wesley So varð í fyrra heimsmeist- ari í „Fischer-random“ er hann gjör- sigraði Magnús Carlsen í einvígi sem fram fór í Noregi. Hann er með léttan og skemmtilegan skákstíl sem minnir talsvert á Tal eða Anand. Lítum á skemmtilega sigurskák hans úr fjórðu umferð: Samuel Shankland – Wesley So Nimzo-indversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. f3 d5 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7. cxd5 Rxd5 8. dxc5 Da5 9. e4 Re7 10. Be3 0-0 11. Db3 Dc7 Þetta afbrigði Nimzo-indversku varnarinnar var afar vinsælt fyrir 30 árum og sést af og til í dag. 12. Bb5 e5 13. Re2 Be6 14. c4 Rbc6 15. Rc3 Ra5 16. Db4 Rec6 17. Da4 a6 18. Bxc6 Sú leikaðferð hvíts að reyna að koma riddara til d5 með því loka á biskupinn með 14. c4 var hæpin og í þessari stöðu átti hann ekki um ann- an leik að velja. 18. … Rxc4! 19. Bxb7 Rxe3 20. Bxa8 Dxc5 21. Rd5 Nú stendur svartur frammi fyrir tveimur kostum. 21. … Rxg2+? Lakari leikurinn. Eftir 21. … Rc2+ virðist hvítur geta haldið velli með 22. Ke2, t.d. 22. … Rxa1 23. Hxa1 Hxa8 24. Dc6!? eða 24. Hd1 en þegar betur er að gáð getur svartur unnið með 22. … Bxd5! t.d. 23. Bxd5 De3+ 24. Kd1 Dd3+ ásamt 25. … Rxa1 o.s.frv. 22. Kf1 Rf4 23. Dc6 Da5 24. Hd1? Eðlilegur leikur og sá er gallinn! Með 24. Ha2! valdar hrókurinn mik- ilvæga reiti eftir 2-reitaröðin og á vænlega stöðu. 24. … Bxd5 25. exd5 Dxa3 26. d6 Db2! Óþægilegur hnykkur. Hvítur er varnarlaus. 27. De4 Dg2+ 28. Ke1 Dxh1+ 29. Kd2 Dxh2+ 30. Kc3 Re2+ 31. Kc4 Rd4 32. d7 Da2 33. Kc5 Da3+ 34. Kb6 Db3+ – og hvítur gafst upp. Síbreytilegur umhugsunartími Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ég er með nokkrar spurningar til Þórólfs Guðnasonar sótt- varnalæknis og þar sem ég geri ráð fyrir að fleiri en ég væru forvitnir að vita svörin ákvað ég að bera þær fram í opnu bréfi. Mér finnst gæta nokkurrar þversagnar í umfjöllun um flensubólusetn- ingar, svo mig langaði að til að fá málin á hreint. Í síðustu viku hlustaði ég á sótt- varnalækni í fréttum sjónvarps hvetja fólk til að láta bólusetja sig við inflúensu, en í sömu frétt sagði hann jafnframt að ekki væri vitað hvaða inflúensustofn myndi herja á landsmenn í vetur. Spurningar mínar eru því: 1) Hvernig er hægt að bólusetja fólk fyrir inflúensustofni sem eng- inn veit hver er? 2) Hvaða inflúensustofn er þá í bóluefninu? 3) Er ál eða kvikasilfur notað sem fylliefni/rotvarnarefni í þessu bóluefni? 4) Í Bandaríkjunum fá læknar greitt sérstaklega fyrir hverja bólusetningu. Er það eins hér á landi? Og svo er það Covid Nýlega kom svo inn á borð til mín skýrsla sem birt var 13. júlí síðastliðinn bæði á vefsíðu CDC (Center for Disease Control) í Bandaríkjunum og FDA (Federal Drug Administration) en hlekk- urinn hér að neðan er frá síð- arnefndu stofnuninni. https:// www.fda.gov/media/134922/download Á blaðsíðu 39 í þeirri skýrslu stendur orðrétt í lauslegri þýð- ingu: Þar sem enginn mælanlegur veiru- stofn af 2019-nCoV er fyrir hendi sem stendur hafa mæl- ingar til að skima eða nema 2019-nCoV RNA (RKS pólý- merasi) verið gerðar með ágiskunar- eiginleikum RNA í fullri lengd í til- raunaglasi … Því er ég forvitin að vita hvort við höf- um verið skimuð hér með þessum ágiskunareiginleikum RNA eða hvort hér hafi tekist að einangra 2019-nCoV-veiruna? Ef það hefur ekki tekist, hvaða veiru höfum við þá verið skimuð fyrir? Annað sem ég er forvitin um snýr að fjöldatakmörkunum. Ný- lega var föðurbróðir minn jarð- settur. Í kirkjunni máttu vera fimmtíu manns, en í erfidrykkju eftir útförina máttu einungis vera tuttugu. Sami hópur og þegar hafði setið í kirkjunni gat því ekki flutt sig yfir í safnaðarheimili kirkjunnar, þrátt fyrir að það væri það stórt að vel hefði verið hægt að virða tveggja metra regluna. Á hvaða rökum eða rannsóknum eru þessar fjöldatakmarkanir byggðar? Opið bréf til sóttvarnalæknis Eftir Guðrúnu Bergmann »Mér finnst gæta nokkurrar þver- sagnar í umfjöllun um flensubólusetningar, svo mig langaði að til að fá málin á hreint. Guðrún Bergmann Höfundur er rithöfundur og lífsstílsráðgjafi. gb@gudrunbergmann.is Séra Páll Hjaltalín Jónsson prófastur fæddist 31.10. 1871 á Krossnesi í Eyrarsveit á Snæ- fellsnesi. Foreldrar hans voru Jón Á. Thorsteinssen, bóndi á Krossnesi, og Guðný Jóhanns- dóttir. Tíu ára fluttist fjöl- skyldan til Grímsstaða í Reykjavík. Páll var bók- hneigður og sextán ára fór hann í Latínuskólann og útskrifaðist þaðan 1893. Síðan fór hann í Prestaskólann og lauk embætt- isprófi í guðfræði árið 1895 með láði. Þá tók við kennsla barna og skrifstofustörf í tvö ár á höf- uðborgarsvæðinu. Hann giftist Ingveldi Einarsdóttur 8. maí 1987 og þremur dögum síðar vígðist Páll til Fjallaþinga í Norður-Þingeyjar- prófastsdæmi, sem þótti ekki sérlega gott brauð vegna þess hve fámennt og afskekkt það var. Ungu hjónin hafi kunnu vel við sig í fegurð umdæmisins og Páll, sem þótti afspyrnu góður ræðumaður, fékk fljótlega tvö önnur umdæmi, Svalbarð- sprestakall og Hofsprestakall, og sókn hans því orðin ærið víð- feðm. Hjónin fluttu til Sval- barðs og voru þar til 1928 þegar þau fluttu til Raufarhafnar. Páll var skipaður prófastur 1908 og gegndi því starfi til 1941. Páll lést 12. mars 1942 og var jarð- sunginn á Raufarhöfn að við- stöddu miklu fjölmenni. Merkir Íslendingar Séra Páll Hjaltalín Jónsson Morgunblaðið/Heimasíða Uppsala Teflt í Uppsala Íslendingar hafa verið sigursælir á alþjóðlega unglinga- mótinu í Uppsala í Svíþjóð. Dagur Ragnarsson og Hilmir Freyr Heimisson unnu þar árin 2016 og 2018. Gengi Vignis Vatnars, sem þarna teflir við Viktoríu Radevu frá Búlgaríu, og Hilmis Freys var í meðallagi í ár. Þeir hlutu báðir fimm vinninga af níu mögulegum. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.