Morgunblaðið - 31.10.2020, Síða 32
32 UMRÆÐAN
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020
Pantið tíma í einkaskoðun
í síma 898-9396
eða á hakon@valfell.is
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími 570 4824
hakon@valfell.is | valfell.is
STILLHOLT 21 - AKRANESI
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar
og seljast fullbúnar án gólfefna nema
forstofa, þvottahús og baðherbergi
flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur
og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu.
Sýningaríbúð á 1. hæð.
Aðeins
örfáar íbúðir
eftir
ÁRBÆJARKIRKJA | Vegna samkomubanns
verður streymt helgistund á heimasíðu
Árbæjarkirkju og fésbókarsíðu hennar. Prest-
ur er Þór Hauksson, organisti er Krisztina
Kalló Szklenár.
ÁSKIRKJA | Hin mæta morgunstundin. Tón-
list, ritningarorð og morgunhugvekja úr Ás-
kirkju flutt á heimasíðu kirkjunnar; askirkja-
.is, kl. 9.30 á sunnudögum og fimmtu-
dögum. Almennar sunnudagsguðsþjónustur í
Áskirkju falla niður um óákveðinn tíma vegna
Covid-19-veirufaraldursins.
DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti
| Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl.
10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö.
kl. 8. Lau. kl. 18 er vigilmessa og messa á
pólsku kl. 19.
FELLA- og Hólakirkja | Allra heilagra
messa 1. nóvember kl. 11 Vegna samkomu-
takmarkana verður ekki hefðbundin guðs-
þjónusta á allra heilagra messu eins og
venja er.
Þess í stað verður guðsþjónustunni streymt
frá facebooksíðu kirkjunnar kl. 11. Þar verð-
ur minnst látinna og sérstaklega þeirra sem
látist hafa á árinu.Við hvetjum ykkur til þess
að taka þátt með því að kveikja á kerti heima
til minningar um látna ástvini á meðan horft
er á stundina.
GRAFARVOGSKIRKJA | Allra heilagra
messa. Vegna samkomutakmarkana getum
við ekki haldið hefðbundna minningarguðs-
þjónustu í Grafarvogskirkju. Þess í stað verð-
ur streymt frá minningarstund á Facebook-
síðu kirkjunnar kl. 17. Þar minnumst við sér-
staklega látinna og þeirra sem látist hafa á
árinu. Prestar kirkjunnar annast stundina
ásamt organista og öðru tónlistarfólki.
Sunnudagskóla kirkjunnar verður streymt á
facebooksíðu kirkjunnar kl. 10. Umsjón hafa
Ásta Jóhanna Harðardóttir og Hólmfríður
Frostadóttir.
GRENSÁSKIRKJA | Helgistundir, hugvekjur,
kyrrðarstundir og sunnudagaskóla er að
finna á heimasíðum og FB-síðum kirknanna í
Fossvogsprestakalli. Fylgist með á grensas-
kirkja.is og kirkja.is.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgistund í
streymi á facebooksíðu Seltjarnarneskirkju
kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik
Vignir Stefánsson er organisti. Þóra H. Pas-
sauer syngur. Margrét Albertsdóttir og Guð-
mundur Einarsson lesa ritningarlestra. Ingi-
björg Hannesdóttir les bænir. Tæknimaður er
Sveinn Bjarki Tómasson. Streymi verður á
bænastund frá Seltjarnarneskirkju miðviku-
daginn 4. nóvember kl. 12.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Viðvíkurkirkja
ORÐ DAGSINS: Jesús
prédikar um sælu.
(Matt. 5)
Þann 27. október sl.
birtist í Morgunblaðinu
grein eftir Ólaf Steph-
ensen, framkvæmda-
stjóra Félags atvinnu-
rekenda. Í greininni er
komið víða við í leit að
svari við spurningunni
sem fólgin er í yf-
irskrift greinarinnar –
„Eru forsendur tolla-
samnings við ESB
brostnar?“
Víða er drepið niður fæti og nauð-
synlegt er að útskýra og koma fleiri
sjónarmiðum á framfæri því að alltaf
er það svo að það eru fleiri en ein hlið
á málum. Auk þess eru í grein Ólafs
fullyrðingar sem eru rangar og verð-
ur að leiðrétta og þá með stað-
reyndum frá fyrstu hendi, en byggja
ekki á óstaðfestum fullyrðingum.
Um milliríkjasamninga, tilvist
þeirra og framkvæmd
Í grein Ólafs vitnar hann m.a. í að-
ila sem hafa tjáð sig um málið í fjöl-
miðlum og telur hann að þeir virðist
vilja snúa klukkunni til baka og
draga úr fríverslun. Einnig ber hann
því við að það samrýmist ekki samn-
ingnum um Evrópska efnahags-
svæðið að draga úr fríverslun.
Það virðist vera einhver mikill
misskilningur í gangi hér. Í fyrsta
lagi er verið að kanna hvort um for-
sendubrest sé að ræða, þ.e. að þær
aðstæður sem voru lagðar til grund-
vallar tollasamningi hafi brostið m.a.
með þeim breytingum sem eiga sér
stað við útgöngu Bretlands úr ESB
(BREXIT). Það á ekki neitt skylt við
það hvort eitthvað sam-
rýmist samningnum
um EES og um að
„halda áfram viðleitni
sinni til að auka smám
saman frjálsræði í við-
skiptum“. Það má einn-
ig segja, þessu til við-
bótar, að nú á síðustu
mánuðum hafa verið að
koma upp mál sem
benda til að um alvar-
legan misbrest sé að
ræða við tollafgreiðslu
vara sem tengjast um-
ræddum samningi Íslands og ESB.
Þessi mál eru m.a. komin til umræðu
á Alþingi og í nefndum þingsins.
Stjórnsýslustofnanir eru einnig
komnar með þetta mál til meðhöndl-
unar. Það er full ástæða til að staldra
við, fara yfir forsendur samninga,
m.a. m.t.t. BREXIT og fleiri þátta.
Greinarhöfundur fullyrðir einnig
að með skyrútflutningi hafi einkum
verið horft til markaða á Norður-
löndum. Þetta er eins rangt og það
getur orðið. Skyrútflutningur með
væntanlegum kvóta var fyrst og
fremst hugsaður fyrir Bretlands-
markað, sem stendur okkur hvað
næst og hafði jafnframt verið í upp-
byggingu um hríð með framleiðslu
og útflutningi á skyri frá Íslandi. Það
er staðreyndin og annað ekki. Það
voru áherslur bænda og afurða-
stöðva og var því komið á framfæri
við stjórnvöld. Jafnframt var því
komið á framfæri að fyrirhugaður
ostakvóti ESB til Íslands væri allt of
mikill og ósanngjarn – en hann nem-
ur um 9-10% af innanlandsmarkaði.
Íslenskir bændur og afurðastöðvar
þeirra vildu og komu því á framfæri
að ESB fengi hluta af auknum að-
gangi á íslenskan markað í formi
smjörs, en fulltrúar ESB höfnuðu
því. Það var væntanlega ekki fýsilegt
fyrir þá m.a. vegna þess að verð á
smjöri er lágt á Íslandi sem og var
þeim meiri þörf á útflutningi ann-
arra vara frá ESB.
En Ísland, sem átti ekkert smjör
aflögu, m.a. vegna ójafnvægis sem
þá var að myndast á markaði og hef-
ur aukist mikið síðan, ekki síst vegna
innflutnings á ostum, þurfti að sætta
sig við að taka út hluta af sínum
markaðsaðgangi í formi smjörs. Það
má segja að þarna hafi líklega gætt
mikils aflsmunar við samningagerð.
Forsendur og forsendubrestur
Eins og fyrr segir hefur komið í
ljós á undanförnum mánuðum að
mikill misbrestur á sér stað við
skráningu á innflutningi og tollar
hafa verið sniðgengnir. Þær op-
inberu stofnanir sem eiga að fylgjast
með innflutningi virðast ekki hafa
sinnt því eftirliti sem átti að vera til
staðar lögum samkvæmt. Allir tapa,
ríkissjóður og þar með almenningur,
bændur og fyrirtæki sem fara að
lögum á markaði.
Auk þess hefur þetta haft bein
áhrif á starfsskilyrði fyrirtækja
bænda sem taka við framleiðslu
þeirra og greiða þeim verð fyrir inn-
lagðar afurðir. Skýrar vísbendingar
eru að koma í ljós um að þessi brot
séu þegar byrjuð að valda ójafnvægi
á innanlandsmarkaði með alvar-
legum fjárhagslegum afleiðingum.
Í umfjöllun um innflutningsheim-
ildir Íslands til Bretlands, vitnar
greinarhöfundur í tölur og segir
m.a.: „Þessar innflutningsheimildir
eru byggðar á viðskiptum ríkjanna
undanfarin ár.“ Þetta er mjög
áhugaverður snertiflötur. Í ljós hef-
ur komið að það er m.a. bein afleið-
ing af tollasniðgöngu og rangri toll-
flokkun að hagtölur er ekki réttar
m.t.t. þess vörumagns landbún-
aðarvara sem skráðar eru í milli-
ríkjaviðskiptum í einstökum toll-
flokkum. Röng tollun leiðir, eðli máls
samkvæmt, til rangra hagtalna. Og
svo segir greinarhöfundur: „Þessar
innflutningsheimildir eru byggðar á
viðskipum ríkjanna undanfarin ár“!
Samningar byggjast þá upplýs-
ingalega ekki á nógu traustum
grunni.
Að lokum
Sem kúabóndi og í forsvari fyrir
stórt fyrirtæki bænda, þar sem
rekstrargrundvöllur fyrirtækisins
skiptir öllu, hvort unnt sé að tryggja
þeim greiðslur fyrir sínar afurðir,
get ég ekki fært aðrar fréttir en þær
að bændur eru reiðir. Bændum
finnst á sér brotið með ólögmætum
hætti. Bændur eru því uggandi um
framtíð sína þar sem þeir eiga allt
sitt undir. Allt sitt ævistarf og fjár-
festingu í sínum búum. Nú er verið
að vega að þessu öllu – með vinnu-
brögðum og aðferðum sem fara bæði
á svig við ákvæði milliríkjasamninga
og eru að öllum líkindum einnig
ólögmætar. Forsendur samninga
eru brostnar. Þetta eru skilaboðin
sem ég heyri frá bændum – þeim er
hér með komið á framfæri.
Já – forsendur tollasamnings
við ESB eru brostnar
Eftir Ágúst
Guðjónsson »Eins og fyrr segir
hefur komið í ljós á
undanförnum mánuðum
að mikill misbrestur á
sér stað við skráningu á
innflutningi og tollar
hafa verið sniðgengnir.
Ágúst Guðjónsson
Höfundur er kúabóndi og stjórnar-
formaður Auðhumlu svf. – samvinnu-
félags kúabænda.
Flutningur Arnars Jónssonar í Út-
varpinu á Sjálfstæðu fólki var list.
Halldór Laxness skýrði tilurð sög-
unnar í Úngur eg var 1976. Umræð-
an um bókina núna í sambandi við
útvarpsflutninginn hefur ekki tekið
tillit til skýringar hans. Í grein í
Morgunblaðinu 1987 reyndi ég að
hreyfa við bókmenntafræðingum að
vinna úr skýringu Halldórs, sbr.
Bókmenntasögur mínar 2012. Sig-
urjón Björnsson sálfræðingur samdi
bók um leið Gunnars Gunnarssonar
til skáldskapar í samráði við hann.
Enn er ástæða til að semja bók um
tilurð skáldsögunnar Sjálfstæðs
fólks og yfirleitt um leið Halldórs til
skáldskapar, í ljósi þess sem fram
kemur í Úngur eg var og í Í túninu
heima (1975).
Skyldi annars vera til sá listamað-
ur, sem lyftir Dalalífi Guðrúnar frá
Lundi með lestri sínum líkt og Arnar
lyfti Sjálfstæðu fólki?
Björn S. Stefánsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-
1100 frá kl. 10-12.
Útvarpssaga
Dalalíf Bindin urðu alls fimm
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og
birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auð-
velt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfs-
fólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur
skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda
greinar allan sólarhringinn.