Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 ✝ Halldór AgnarJónasson fædd- ist í Bolungavík 2. febrúar 1940. Hann lést á sjúkrahúsinu á Ísafirði 21. októ- ber 2020. Foreldrar hans voru Jónas Guð- mundur Halldórs- son, fæddur 28. júlí 1912, dáinn 1. febr- úar 1995, og Sigríð- ur Þórlaug Guðríður Magn- úsdóttir, fædd 17. apríl 1915, dáin 10. maí 1992. Systkini Hall- dórs Agnars eru: Þorbjörg Maggý Jónasdóttir, fædd 13. júlí 1937, maki Bragi Helgason, fæddur 12. júní 1933, dáinn 17. desember 2015. Gylfi Jónasson, fæddur 19. janúar 1942, maki Margrét Finnbogadóttir, fædd 6. apríl 1947, dáin 8. apríl 2008. Foreldrar Halldórs Agnars bjuggu á Minni-Bakka í Skála- vík þar sem Halldór ólst upp ásamt systkinum sínum, Þor- björgu Maggý og Gylfa. Árið 1963 fluttist fjölskyldan til Bolungarvíkur þar sem Halldór bjó lengst af þar til hann lést. Halldór Agnar var til sjós mestalla sína ævi, meðal annars á olíuskip- inu Haferninum sem notað var sem síldarflutningsskip. Halldór stundaði einnig veiðar á Álftinni með Gunnari Halldórssyni föðurbróður sínum, og á Hag- barði sem gerður var út frá Keflavík. Halldór eignaðist svo sinn eigin bát, Þristinn, sem hann gerði út ásamt Jónasi föð- ur sínum. Útförin fer fram í dag, 31. október 2020, frá Hólskirkju í Bolungarvík. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu ætt- ingjar og vinir viðstaddir at- höfnina. Hann Dóri frændi minn hef- ur kvatt. Hann var orðinn þreyttur, heilsan orðin afar slæm og honum fannst lífið allt orðið lítið spennandi. Hann veiktist skyndilega, var fluttur á sjúkrahús og dó daginn eftir. Dóri var barn að aldri þegar foreldrar hans fluttu að Minni- Bakka í Skálavík, þar ólst hann upp og vann á búi foreldra sinna fram undir tvítugt þegar hann fór að vinna í frystihúsinu í Bolungarvík. Þegar foreldrar hans hættu búskap árið 1963 fór Dóri til starfa í síldarverk- smiðjunni í Bolungarvík og vann þar í mörg ár. Árið 1968 keypti hann ásamt föður mín- um og föður sínum vélbátinn Álftina ÍS 55 og gerðu þeir út á handfæri í mörg sumur og var samvinna þeirra góð og farsæl. Dóri var um tíma, líklega í tvö ár, á Haferninum, sem var síld- arflutningaskip í eigu Síldar- verksmiðju ríkisins, skipið flutti síld á sumrum af fjar- lægum miðum en að vetrinum olíu til landsins og lýsi á er- lenda markaði. Seinna reri Dóri með Halldóri Guttormi frænda sínum á vélbátnum Hagbarði frá Keflavík og kunni því vel. Oft var Dóri á rækju að vetr- inum á ýmsum bátum. Seinna keypti hann ásamt föður sínum vélbátinn Þrist og reru þeir feðgar á honum í nokkur sumur og eftir að Jónas fór í land reri Dóri einn þar til fyrir þó nokkrum árum að hann seldi bátinn. Dóri var handlaginn og gat gert við ýmislegt. Hann hafði gaman af að lesa og var vel að sér um flesta hluti. Dóri var með ákveðnar skoðanir og fastur á þeim, vildi helst aldrei bakka. Dóri var vel gefinn og átti gott með nám, en átti ekki kost á lengra námi en hefð- bundinni skólagöngu. Dóri hafði gaman af að ferðast. Hann fór í margar ferðir til annarra landa, kynntist fólki í þeim og naut þeirra ferða vel. Hann ferðaðist einnig mikið hér innanlands og þá sérstak- lega á meðan foreldrar hans lifðu. Þá fóru þau þrjú um land- ið, Jónas tók myndir og sagði frá á lifandi hátt, Dóri ók og gerði foreldrum sínum mögu- legt að njóta landsins í ríkum mæli. Hann Dóri var ekki fé- lagslyndur en átti þó góða kunningja. Eftir að Dóri varð einn, fór hann að æfa sig í mat- artilbúningi og varð bráðflinkur kokkur með tímanum. Hann sagði að ástæða þess að hann varð svo lipur í matargerð væri sú að að þegar hann var að stíga sín fyrstu spor í elda- mennskunni hefði hann ævin- lega borið það undir köttinn hvernig honum líkaði maturinn. Kötturinn hefði verið það mikill smekkköttur á mat. Dóri kall- aði köttinn Magnús, sem var reyndar læða. Dóri var snyrti- menni og vildi hafa reglu á hlutunum, hann var ekki nýj- ungagjarn en fannst oft nútím- inn vera galinn. Frændi minn hafði gaman af að spjalla og hafði skoðun á öllu. Þegar ég var 15 ára vorum við saman á Álftinni með pabba, ég enginn sjómaður og hálfvesæll í brælu. Stundum þegar var tregt, stóð pabbi uppi og skakaði en við frændur vorum niðri í lúkar, Dóri að fá sér kaffi en ég að bíða eftir að dagurinn liði. Þá áttum við oft gott spjall frændur og nafnar um lífið og tilveruna. Ég á um þetta sjósumar mitt ljúfar minningar og Dóri er partur af þeim. Ég fel Halldór frænda minn þeim Guði sem sólina hef- ur skapað. Agnar Halldór Gunnarsson. Halldór Agnar Jónasson ✝ Helgi SigurðurIngimundarson fæddist 27. desem- ber 1929 í Trölla- tungu í Kirkjubóls- hreppi. Hann lést 22. október 2020 á Heilbrigðisstofn- uninni á Hólmavík. Foreldrar hans voru Ingimundur þ. Ingimundarson, f. 11. sept. 1894, d. 30. maí 1976, og María Helga- dóttir, f. 15. apríl 1890, d. 14. jan. 1966. Systkini Helga voru Magnús Ingimundarson, f. 27. des. 1922, d. 8. feb. 1977, Kristín Ingimundardóttir, f. 4. maí 1924, d. 11. júní 2003, Ingimund- ur Kristján Ingimundarson, f. 4. okt. 1927, d. 7. júní 2020, og 1975, kvæntur Sigurrósu G. Þórðardóttur, saman eiga þau 3 börn og 2 barnabörn. Guðrún Elínborg Þorvaldsdóttir, f. 9. apríl 1979, gift Júlíusi F. Jóns- syni, saman eiga þau tvö börn. Helgi Jóhann Þorvaldsson, f. 25. desember 1980, og á hann tvö börn. Júlíus Garðar Þorvalds- son, f. 3. febrúar 1987. 3) Flosi Helgason, f. 16. janúar 1967, hann er kvæntur Friðbjörgu Blöndal, f. 18. apríl 1973. Börn þeirra eru Flosi Flosason, f. 27. maí 2000, Sigfríður Sól Flosa- dóttir, f. 17. janúar 2006, og María Flosadóttir, f. 12. nóv- ember 2010. Helgi Sigurður ólst upp á Hólmavík og bjó þar alla sína ævi ásamt konu sinni og sonum. Hann starfaði meiri hluta ævi sinnar á sjó og um 1981 gerðist hann starfsmaður Orkubús Vestfjarða og vann þar til hann varð áttræður í desember 2009. Útför Helga fer fram frá Hólmavíkurkirkju í dag, 31. október 2020, klukkan 14. Steinunn Helga Ingimundardóttir, f. 29. sept. 1933, er hún búsett á Ísa- firði. Helgi Sigurður kvæntist 23. apríl 1955 Sigfríði Jó- hönnu Björns- dóttur, f. 8. júní 1930, d. 24. febrúar 2001. Þau eign- uðust þrjá syni og bjuggu þau á Hólmavík alla sína ævi. Synir Helga eru 1) Hilmar Helgason, f. 10. maí 1951. 2) Þorvaldur Garðar Helgason, f. 23. ágúst 1955, hann er kvæntur Bryndísi Hauksdóttur, f. 18. maí 1957. Börn þeirra eru Sigurður Marinó Þorvaldsson, f. 2. sept. Elsku afi minn. Nú er komið að kveðjustund. Nú hugsa ég um allar minningarnar sem ég á um þig sem ég mun aldrei gleyma. Þú varst alltaf svo góður og umhyggjusamur. Þú hafðir endalausa þolinmæði þegar ég vildi sýna þér dansspor sem ég var að læra eða leikþátt sem ég samdi á staðnum. Ég man eftir þegar ég var úti að leika og sá þig rúnta um bæinn og ég stoppaði þig svo ég gæti verið með þér á rúntinum. Það var svo gaman að heyra sögurnar þínar þegar við keyrðum um bæinn. Mér mun alltaf þykja vænt um skötuveislurnar heima hjá þér á Þorláksmessu, þér fannst alltaf jafn skrítið að ég vildi ekki prófa skötu, en leyfðir mér samt alltaf að stelast í konfekt- ið. Þú varst alltaf svo glaður, og brosið og hláturinn lét manni alltaf líða vel. Ég er svo heppin að geta kallað þig afa minn og ég mun aldrei gleyma góðu stundunum okkar saman. Ég elska þig afi, þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Þín afastelpa, Guðrún Júlíana. Á fimmtudaginn síðasta fékk ég símtalið sem ég hef kviðið fyrir í langan tíma, að þú, elsku afi minn, gullið mitt, værir að kveðja okkur. Allt frá fæðingu hefur þú verið svo stór partur af lífi mínu. Allur kóngabrjóstsykurinn sem við borðuðum á rúntinum, allar sögurnar sem þú sagðir mér, skutlið, skötuveislurnar á Þorláksmessu, allt konfektið sem við laumuðumst í og öll knúsin þín eru mér mikilvægar minningar sem ég mun geyma í hjarta mínu alla tíð. Elsku afi, ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með þér, og þykir mér forréttindi að börnin mín hafi fengið að kynn- ast þér, langalangafabörnin þín. Gleðin og brosin þín þegar þú hittir þau ylja mér um hjartarætur í sorginni. Ég veit að amma verður glöð að fá þig til sín og ég veit að þú munt skila kveðju til hennar frá okkur. Góða ferð elsku afi minn, takk fyrir samveruna og vænt- umþykjuna. Ég elska þig. Afastelpan þín, Elísa Mjöll. Elsku afi Helgi, nú er komið að kveðjustund. Við afi áttum sama áhugamálið sem var bú- skapur. Við eyddum miklum tíma saman í sveitinni, og er það mér mikilvægur tími og góðar minningar sem ég mun aldrei gleyma. Afi hafði ótrúlega gaman af öllum dýrum og þau hændust að honum, eins og þegar við fórum í Miðdalsgröf í fjárhúsin var eins og allar kindurnar væru orðnar gæfar því hann hafði klappað þeim svo mikið og þétt. Afi hefur aldrei keyrt hratt, og voru rúntarnir með honum alltaf frekar langir. Hann fór aldrei hraðar en 60 km/klst en það var allt í lagi af því að á leiðinni fékk ég að heyra marg- ar sögur frá þér, elsku afi. Þeg- ar afi fór að fækka ferðunum í sveitina spurði hann mig alltaf hvað væri að frétta úr sveitinni, og gátum við spjallað um það í langan tíma. Ég mun sakna knúsanna þinna, sögustundanna, rúnt- anna og klappsins sem þú gafst mér alltaf á handarbakið þegar við töluðum saman. Góða ferð elsku afi minn, ég elska þig. Þinn afastrákur, Marinó Helgi. Helgi Sigurður Ingimundarson Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG RAGNHEIÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR, Drekagili 18, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 23. október. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 6. nóvember klukkan 13.30. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Margrét Árnadóttir Auður Árnadóttir Gunnlaug Steinunn Árnad. Gunnar Jóhannes Jóhannsson barnabörn og barnabarnabörn Hjartkær amma mín, tengdamóðir og frænka, SVAVA SIGURÐARDÓTTIR, fyrrverandi fulltrúi og ritari Hæstaréttar Íslands, lést á Hrafnistu í Laugarási sunnudaginn 18. október. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 2. nóvember klukkan 15. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Fyrir hönd ættingja, Jóhannes Markús Magnússon Sigríður E. Jóhannesdóttir Þórhildur Sigurðardóttir Helga Sigurðardóttir, Hörður Pétursson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir, mágur og frændi, KRISTINN GUÐNI RAGNARSSON pípulagningameistari frá Vestmannaeyjum, til heimilis að Faxabraut 7, Keflavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu sunnudaginn 25. október. Útförin fer fram frá Safnaðarheimili Keflavíkurkirkju, Kirkjulundi, miðvikudaginn 4. nóvember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á ttps://www.facebook.com/groups/2803581819879035/ Fyrir hönd aðstandenda, Sesselja Birgisdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALDIMAR JÓNSSON, skipasmiður og fv. yfirlögregluþjónn, lést í faðmi ástvina sinna á heimili sínu í Hafnarfirði föstudaginn 23. október. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 6. nóvember klukkan 13. Aðeins nánustu aðstandendur verða viðstaddir en streymt verður frá athöfninni á: www.mbl.is/andlat. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins eða Hjartaheill. Aðalheiður Halldórsdóttir Jóhanna Valdimarsdóttir Grétar Örn Marteinsson Anna Valdimarsdóttir Guðmundur Örn Jónsson Halldóra K. Valdimarsdóttir Jónatan Guðnason Margrét G. Valdimarsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN ÞORGILS KRISTJÁNSSON, fyrrverandi skólastjóri, Ásabraut 11, Sandgerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 25. október. Útförin fer fram frá Sandgerðiskirkju föstudaginn 6. nóvember klukkan 14. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu ættingjar vera viðstaddir útförina. Athöfninni verður streymt á https://youtu.be/08bJF9XZYMM Ólöf Björgvinsdóttir Björgvin Guðjónsson Margrét Lind Steindórsdóttir Sæunn G. Guðjónsdóttir Guðmundur Rúnar Jónsson Kristján Þorgils Guðjónsson Hildur Hilmars Pálsdóttir og barnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.