Morgunblaðið - 31.10.2020, Page 36

Morgunblaðið - 31.10.2020, Page 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 Skurðstofa er að mörgu leyti sérkenni- legur vinnustaður. Ákvörðun hefur verið tekin hvað gera skal, aðgerð hefst og henni verður að ljúka, óháð öllu. Voru forsendur aðgerðar réttar? Eru aðstæður í aðgerðinni eins og við var búist? Ekkert af okkur vill vera sjúklingur, því fylgir kvíði og öll viljum við vera heilbrigð! Hlýja starfsfólks þarf því að vera fyrir hendi samfara ákveðni, til að klára verkið. Vinn- an er og á að vera tilfinningarík, en vinnubrögðin að sama skapi lærð og öguð. Skurðstofa er þannig spenn- andi vinnustaður, en krefjandi og það vissi Erlín vel. Henni leið vel í þessari hringiðu, fyrst sem starf- andi skurðhjúkrunarfræðingi á augndeildinni og síðar sem yfir- stjórnanda hjúkrunar á skurð- stofuganginum á Landspítala, Hringbraut. Hún var með góðan bakgrunn í skurðhjúkrun, hafði m.a. unnið til verðlauna á alþjóð- legri ráðstefnu skurðhjúkrunar- fræðinga fyrir meistaraverkefni sitt við Háskóla Íslands. Hún hafði gott geðslag, var jákvæð en ákveðin þegar á þurfti að halda. Á augndeildinni vann hún gott starf við að endurskipuleggja verklag. Flutningur augndeildar- innar frá Landakoti hafði umrót í för með sér og nýir verkferlar voru nauðsynlegir. Erlín var út- sjónarsöm og fljót að setja sig inn í hlutina og breyta þar sem þörf var á. Það er ekki auðvelt að stjórna vinnustað þar sem allir eru mik- ilvægir, margar skurðstofur í gangi, allt að gerast á sama tíma. Biðröð eftir að komast að með næstu aðgerðir. Vantar verkfæri hér, það er akút þar, og auk þess er kannski eitthvað af kóngum og drottningum í spilastokknum! Þetta verkefni sitt vann Erlín af alúð og umhyggju, var næm á til- finningar og aðstæður. Vinnu- þjarkur mikill, kom yfir Hellis- heiðina á hverjum morgni áður en flestir voru vaknaðir. Og lét þreyt- una líða úr sér á kvöldin við keyrsluna heim til fólksins síns. Við Erlín áttum þægilegar spjallstundir, oftar en ekki um dá- semd íslenska sveitaloftsins, heil- næmi þess og þá almennu vellíðan að vera í sveit. Við á augndeildinni drúpum höfði og þökkum gott samstarf, sem og allt annað starfsfólk á skurðstofum Hringbrautar. Að- standendum eru sendar hlýjar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Erlínar Óskarsdóttur skurðhjúkrunar- fræðings. Haraldur Sigurðsson. Árið 2020 átti að vera árið okk- ar, vinkvennanna. Við vorum allar að verða sjö- tugar á árinu og í janúar hittumst við til að skipuleggja skemmtilegt ár, meðal annars ferðir til Spánar og Kaupmannahafnar. En í staðinn munum við fylgja einni okkar í sumarlandið, það eru þungbær spor. Elsku Ellý okkar veiktist í Erlín Óskarsdóttir ✝ Erlín Ósk-arsdóttir fædd- ist 12. janúar 1950. Hún lést 19. október 2020. Sálumessa Erl- ínar fór fram 27. október 2020. sumar og var erfitt að horfa upp á þessa sterku og harðduglegu vin- konu okkar ganga í gegnum þessi erf- iðu veikindi. Erlín, eða Ellý eins og við kölluð- um hana, var mikill námsmaður. Hún var hjúkrunarfræð- ingur að mennt og starfaði við það af lífi og sál alla tíð. Hún var stöðugt að bæta við sig þekkingu á sínu sviði enda átti hjúkrunarfræðin hug hennar all- an. Ellý kynntist Adda sínum og giftu þau sig árið 1971. Fljótlega eftir giftingu ákváðu þau að fara til Þýskalands að vinna og afla sér frekari þekkingar á sínum svið- um. Tóku þau ástfóstri við það land og eignuðust góða vini, sem þau heimsóttu reglulega eftir komuna aftur til Íslands. Fljótlega eftir heimkomuna bjuggu þau sér heimili í Gaul- verjabæjarhreppi og fóru börnin að koma í heiminn; Vilborg, Katr- ín og Andri og eru barnabörnin orðin átta. Margt hefur komið upp í huga okkar síðustu daga. Kynni okkar hófust þegar Ellý kom í Gaggó Aust 1965. Þá lágu líka áhugamál- in saman en við stunduðum dans- nám og jazzballett í dansskóla Sigvalda. Síðar þótti okkur ekki leiðinlegt þegar við fórum að kom- ast inn í Glaumbæ, helst sem oft- ast. Það er ómetanlegt og þakkar- vert þegar vinátta myndast á ung- lingsárunum og helst og þróast ævilangt eins og hjá okkar góða hópi. Vinkonuhópurinn dreifðist víða um suðvesturhornið svo ekki voru alltaf tök á að hittast. Við munum minnast allra góðu stundanna, þegar við vinkonurnar komum saman á kaffihúsum og í heimahúsum, einnig í sumarbú- staðaferðunum sem við fórum nánast árlega í ásamt mökum okkar. Þar fór Ellý oft á kostum með góðum bröndurum og sögum. Við minnumst Ellýjar sem traustrar og góðrar vinkonu. Það var alltaf gott að leita til hennar því hún var góður hlustandi og ráðagóð. Ellý var búin að vera í mikilli vinnu gegnum árin, en nú stóð til að fara að njóta saman og hittast oftar. Við munum sakna þess að hafa þig ekki með okkur í hópnum, elsku vinkona. Góða ferð inn í sumarlandið, við hittumst þar síðar. Allt mun verða nýtt Inni í blámanum úti við ysta haf tekur við annar heimur þar sem þér hefur verið búinn staður utan efnis, tíma og rúms. Þar ríkir fegurð og friður, fyrirgefning og réttlæti, sumar og sátt, líf í fullri gnægð. Þú gengur á skýjum himins inn í endurnýjun lífdaga, þar sem allt verður nýtt og fegurðin varir að eilífu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Vinahópurinn vottar fjölskyldu Ellýjar innilega samúð við fráfall yndislegrar vinkonu. Hulda, Guðríður, Kristín, Svanhildur, Guðrún, Aðalheiður og strákarnir. Leiðir okkar Erlínar lágu fyrst saman fyrir þremur árum. Mér var falið að leiða verkefni á Land- spítalanum sem var bæði flókið, erfitt og snúið. Til að verkefnið mundi verða sem best unnið fékk ég úthlutað mér til stuðnings reynslumesta og færasta fólk Landspítalans og auðvitað var Erlín fremst í þeim hópi. Frá okkar fyrstu kynnum get ég ekki annað sagt en að ég var heilluð af persónuleika hennar, sterkri réttlætiskennd og víðsýni. Þrátt fyrir að vera komin að enda starfsferils síns var hún svo óend- anlega fróðleiksþyrst, opin fyrir nýrri tækni og veigraði sér ekki eitt andartak við að taka að sér flókin verkefni. Það sem hún kunni eða vissi ekki fyrir lærði hún eins og hendi væri veifað. Erlín var ekki bara vinnusöm heldur einstaklingur sem lét sig mjög varða velferð fólksins í kringum sig. Hún talaði alltaf svo fallega um manninn sinn, börnin sín og barnabörn. Hún sagði mér frá því að fjölskylda hennar hefði oft þurft að taka mikið tillit til vinnu hennar og ástríðu, en einhvern veginn hefði þetta allt saman blessast og hún var ljómandi ánægð með hópinn sinn. Í gegnum vinnu okkar var margt spjallað og það var svo heillandi að hlusta á frásagnir hennar af starfsferli sín- um. Mér fannst eins og ég fengi að skyggnast inn í sögu íslenskra hjúkrunarfræðinga og aðstæður þeirra í gegnum frásagnir hennar. Það er með hlýju og söknuði í hjarta sem ég kveð góða vinkonu og vinnufélaga og sendi fjölskyldu hennar mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Það voru hrein forrétt- indi og gæfa að fá að kynnast og vinna með jafn stórbrotinni og heillandi konu og Erlín var. Innst í hjarta sem gull ég þig geymi þú ert glóbjarta drottningin mín. Þó árin til eilífðar streymi fer aldrei burt myndin þín. (Kristján Ingólfsson) Dýrleif Jónsdóttir – HUT LSH. Það er margt sem fer í gegnum hugann nú þegar þegar við kveðj- um Erlínu Óskarsdóttur, skurð- hjúkrunarfræðing, samstarfs- konu og fyrrverandi yfirmann. Erlín var hjúkrunarfræðingur af lífi og sál. Hún kom ótrúlega miklu í verk á starfstíma sínum þar sem hún gegndi alltaf krefj- andi starfi bæði á Selfossi og síðar á Landspítalanum þar sem leiðir okkar lágu saman síðustu 15 árin. Það sem var mest áberandi í hennar fari var dugnaður og seigla. Hún tók að sér stór verk- efni bæði hér heima og í evrópsku samstarfi sem hlaut styrk og við- urkenningu frá Evrópusamband- inu. Hún skilaði alltaf framúrskar- andi verki. Vinnudagurinn var langur og keyrt var allan ársins hring milli Gaulverjabæjar og Landspítal- ans. Við samstarfsfólk hennar höfðum oft áhyggjur af þessum ferðum hennar í vályndum veðr- um. Þeir voru ekki margir dag- arnir á þessum 15 árum sem Erlín sleppti í vinnu. Ef veðurútlit var mjög slæmt þá var gist í bænum þannig að vinnunni yrði örugglega sinnt. Erlín var skurðhjúkrunarfræð- ingur og okkur er sérstaklega hugleikinn þáttur hennar í stjórn- un og skipulagningu diplómanáms í skurðhjúkrun. Þar kom ótrúleg orka hennar, skipulag og dugnað- ur vel í ljós, því þessu var sinnt á sama tíma og hún stýrði stórri deild, skurðstofum Landspítalans við Hringbraut. Stór hluti þeirra hjúkrunar- fræðinga sem starfa á skurðstof- um landsins í dag hefur farið í gegnum þetta nám sem hún átti svo stóran þátt í að skipuleggja og halda gangandi. Þegar Erlín veiktist í byrjun sumars var hún í stórum verkefn- um fyrir spítalann, m.a. uppbygg- ingu á nýrri augndeild á Landspít- alanum og stórum framfaraverkefnum fyrir dauð- hreinsun og skurðstofur. Þessi vinna hennar mun nýtast til fram- tíðar og við minnumst hennar fyr- ir fyrirhyggju og framtíðarsýn. Þegar við hugsum til baka þá varð Erlínu varla misdægurt öll þau ár sem við unnum með henni en veikindin sem komu fram í sumar sóttu hart og tíminn varð stuttur. Erlín var komin á þann aldur þegar flestir fara að hugsa um að hægja á og fara að sinna sjálfum sér og fjölskyldu betur. Hún átti hins vegar mikið eftir og var jafn áhugasöm og áður um þau verk- efni sem hún tók að sér og var treyst fyrir enda óhrædd við að takast á hendur verkefni þar sem sérfræðiþekking hennar naut sín. Það ræður enginn sínum loka- degi en við syrgjum og söknum góðs samstarfsfélaga sem var tek- inn svo alltof fljótt frá okkur. Hug- ur okkar er hjá Ástráði, börnum og barnabörnum, þeirra er miss- irinn mestur. Fyrir hönd samstarfsmanna á skurðstofum Landspítalans við Hringbraut, Áshildur, Elín Ýrr, Helga og Herdís. „Elsku stelpan mín, ert þetta þú?“ var kveðjan sem ég fékk yfirleitt þegar ég kom að heimsækja Öddu. Þeg- ar ég hitti Öddu í fyrsta sinn fékk ég strax að kynnast hlýju hennar, góðvild, umhyggju, samkennd og einskærri ást á börnum. Fljót- lega kom í ljós að við vorum ekki sammála um uppeldisaðferðir, ég gat haft hátt en Adda vildi mýkri leiðir og sagði mér oft til. Hún gerði það með virðingu fyrir mín- um leiðum en benti mér mjúklega á að það væru nokkur vel valin út- skot í uppeldinu sem mætti nýta. Adda hafði til að bera einstakt æðruleysi og hún hafði hæfileika til þess að hrósa fólki og uppörva, en var um leið mjög stríðin og hló síðan dillandi hlátri þegar ætlun- arverkinu var náð, enda oft ein- staklega orðheppin. Ég fann alla tíð fyrir væntumþykju hennar í minn garð og hún sagði oft við mig: „Þú ert nú bara eins og ein af stelpunum mínum.“ Adda hafði einlægan áhuga á því sem börnin Arnbjörg Þórðardóttir ✝ Arnbjörg Þórð-ardóttir fæddist 22. mars 1938. Hún lést 17. október 2020. Útför Arnbjargar fór fram 29. október 2020. í kringum hana voru að gera. Þeir voru ófáir leikirnir sem Adda og Gummi mættu á til að fylgjast með Lárusi eða barna- börnunum að spila fótbolta. Hún lifði sig inn í leikinn af miklum ákafa og hvatti leikmennina áfram. Adda var mikil fjölskyldumanneskja, og vildi hafa fólkið sitt hjá sér, enda þegar boðið var í mat, kaffi eða í afmæli á Kirkjuveginum svign- uðu borð undan kræsingum og aldrei kom maður að tómum kof- unum. Hún passaði alltaf upp á að eiga eitthvað með kaffinu fyrir gesti. Adda missti mikið þegar hún missti Gumma en hún ákvað fljótlega að nota æðruleysið og talaði mikið um að svona væri líf- ið bara og ekki mikið við því að gera. Ég er þakklát fyrir kynni mín af Öddu og það sem hún kenndi mér. Ég sé fyrir mér Gumma taka á móti henni í sumarlandinu og ímynda mér að þar verði mikl- ir fagnaðarfundir. Elsku Helga, Fríða, Jóhann, Anna Þóra og Lárus Arnar, ég votta ykkur og fjölskyldum ykkar mínar dýpstu samúðarkveðjur. Berglind Sigurðardóttir. Elsku mannvin- urinn hann Þórir er floginn burt á vit nýrra ævintýra. Líf- ið hans varð ekki langt, hann hefði orðið 62ja ára í dag, en hann lifði lífinu fallega og nýtti tímann sinn vel. Þórir fór ótroðnar slóðir í lífinu, faðir hans og eldri bræður stund- uðu viðskipti en Þórir braut hefð- ina og fór utan til listnáms þar sem hann kynntist sálufélaga sín- um, Sigrúnu Olsen, sem síðar varð eiginkona hans. Það er með sanni hægt að segja að saman hafi Sigrún og Þórir lif- að óhefðbundnu lífi, tilgangur lífs- ins var þeim alla tíð hugleikinn og fyrir rúmum tuttugu árum fundu þau sinn stað í tilverunni þegar þau heimsóttu Brahma Kumaris á Indlandi og í framhaldi af því settu á stofn Lótushús þar sem þúsund- ir Íslendinga hafa sótt námskeið og fyrirlestra um leiðina til betra lífs. Sigrún var í forsvari Lótus- húss á meðan hún lifði, en eftir að hún féll frá í apríl 2018 kom Þórir meira fram á sjónarsviðið. Með sínu fullkomna rólyndi og kærleik lagði hann línuna fyrir þá sem eft- ir koma. Fram á síðasta dag var hann að hnýta lausa enda, jafnvel eftir að hann var kominn á líkn- ardeildina var hann að fá hug- myndir um eitt og annað smá- vægilegt sem mætti lagfæra eða gera betur. Undanfarin ár hefur Þórir ferðast víða um heiminn og gefið fyrirlestra, undir það síðasta var hann með fjarfundi á netinu og fjallaði m.a. mjög opinskátt um dauðann og hvernig upplifun það væri að mæta honum. Það hefur verið vermandi fyrir fjölskyldu og Þórir Barðdal ✝ Þórir BarðdalÓlason fæddist 31. október 1958. Hann lést 14. októ- ber 2020. vini að lesa kveðjur frá öllum heims- hornum sem bárust Þóri eftir að heilsu hans hrakaði, sem og til fjölskyldunnar eftir að hann féll frá. Í kveðjunum kemur skýrt fram hvernig Þórir snerti hjörtu hvers og eins á ólík- an hátt, hann hafði einstakt næmi fyrir því að mæta hverjum og einum á þeim stað þar sem viðkomandi var staddur, hann horfði einhvern veginn inn í sálina í fólki og sá það góða og fallega í manneskjunni, þetta er sérstakur eiginleiki sem fáum er gefið. Í einlægu spjalli stuttu fyrir andlát sitt sagði Þórir mér að eftir að Sigrún fór hefði hann ekki syrgt hana, heldur hefði hann ver- ið fullur þakklætis fyrir tímann sem þau áttu saman, hann þakkaði fyrir allt það sem þau áorkuðu og einnig fyrir gleðina, húmorinn og léttleikann sem Sigrún kom með inn í lífið hans. Fyrir mig var þetta gott veg- arnesti, á vissan hátt naut ég þess að fylgjast með honum þessa síð- ustu mánuði, hann kenndi mér hvernig hægt er að sættast við hluti sem við fyrstu sýn virðast óá- sættanlegir og taka öllu sem ger- ist í sátt og kærleik. Það var ómet- anleg lífsreynsla að fylgjast með honum mæta dauðanum af full- komnu æðruleysi, vitandi að hann væri að fara inn í ljósið og inn í betri heim. Ljósið í lífi hans síðustu mán- uðina var Sara dóttir hans, í fal- legri kveðjuathöfn fyrir fjölskyldu og vini þann 23. október sl. stóð Sara upp og flutti minningarorð um föður sinn, það var einstök upplifun sem við sem þarna vorum munum geyma í hjartanu. Guð blessi minningu Þóris Barðdal. Margrét Kjartansdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Minningargreinar Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐRÚNAR HELGU KARLSDÓTTUR, Sólvangsvegi 2. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sólvangs fyrir hlýhug og góða umönnun. Jón Karl Kristjánsson Hafdís Finnbogadóttir Hrafnhildur Kristjánsdóttir Stefán Gunnarsson Reynir Kristjánsson Helga Hauksdóttir Þór Kristjánsson Magný Ósk Arnórsdóttir barnabörn, lagnömmubörn og langalangömmubörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.