Morgunblaðið - 31.10.2020, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 39
Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar hefur áhuga á að í Ráðagerði verði heimiluð veitingaþjónusta í flokki II, skv.
17. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 1277/2016. Flokkur II er skilgreindur
þannig: Umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu,
svo sem með háværri tónlist og kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu. Vegna þessa þarf að breyta
aðalskipulagi og deiliskipulagi fyrir Ráðagerði. Í núgildandi aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar, sem var staðfest
21. febrúar 2017, er Ráðagerði innan íbúðarsvæðis ÍB-10, Bygggarða. Í skipulaginu er mörkuð stefna um að
innan íbúðarsvæða sé ekki gert ráð fyrir veitingastöðum í flokki II og því nauðsynlegt að breyta stefnu um
landnotkun til þess að slík starfsemi geti verið heimil í húsinu. Tillaga um breytingu á aðalskipulagi mun fela
í sér afmörkun nýs reits í flokki verslunar og þjónustu, sem nær utan um húsið og svæði fyrir bílastæði norður
af húsinu, að Norðurströnd.
Deiliskipulag Vestursvæðis tók gildi í september 2017. Tillaga um breytingu á deiliskipulaginu mun fela í sér
afmörkun bílastæða norðan við húsið, hugsanlega göngutengingar að því og landmótun. Bílastæðið mun einnig
þjóna útivistarsvæðinu. Lóð fyrir Ráðagerði er þegar skilgreind í gildandi deiliskipulagi en tilgreindri notkun
lóðarinnar verður breytt í veitingahús í flokki II.
Gerð hefur verið lýsing, þar sem fyrirætlunum og staðháttum er lýst. Bæjarstjórn samþykkti þann 28. október
sl. að kynna lýsingu á breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi. Lýsingin er fyrsta skrefið í framangreindum
skipulagsbreytingum og er hún sett fram og kynnt í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga,
nr. 123/2010 og skipulagsreglugerð nr. 90/2013.
Hægt er að kynna sér lýsinguna á heimasíðu bæjarins undir liðnum skipulagsmál – fréttir af skipulagsmálum
www.seltjarnarnes.is/thjonusta/umhverfi/skipulag/frettir/. Einnig er hægt að nálgast lýsinguna hjá sviðsstjóra
skipulags- og umhverfissviðs á skrifstofu hans að Austurströnd 1, Seltjarnarnesi, samkvæmt samtali við hann þar
sem aðgengi að skrifstofu er takmarkað sem stendur. Símatímar sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs eru
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, kl. 11:00 - 12:00. Mikilvægt er að íbúar kynni sér efni lýsingarinnar vel
og skili inn ábendingum ef þeir telja að eitthvað megi betur fara.
Öllum þeim sem vilja koma ábendingum á framfæri er boðið að senda þær skriflega á bæjarskrifstofu
Seltjarnarnesbæjar, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnesi eða í tölvupósti til postur@seltjarnarnes.is, í síðasta lagi
13. nóvember 2020, en lýsingin verður til sýnis með fyrrgreindum hætti fram á þann dag.
Einar Már Steingrímsson,
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Verslun og þjónusta í Ráðagerði
Lýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Seltjarnarnesbæjar 2015-2033
og á deiliskipulagi Vestursvæðis sbr. 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
seltjarnarnes.is
Sviðsstjóri matvælaöryggis-
og lýðheilsusviðs
Matís leggur áherslu á hagnýtar
rannsóknir sem auka verðmæti íslenskrar
matvælaframleiðslu, stuðla að öryggi og
heilnæmi afurða og sjálfbærri nýtingu
náttúruauðlinda.
Hjá Matís starfar kraftmikill hópur sem
brennur fyrir því að finna nýjar leiðir til að
hámarka nýtingu hráefnis, auka sjálfbærni,
tryggja matvælaöryggi og efla lýðheilsu.
Nánari upplýsingar má finna á:
www.matis.is
• Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Víðtæk þekking og reynsla á matvælaöryggi og
áhættumati á sviði matvæla
• Reynsla af stjórnun og stefnumótun
• Góð færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
• Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku og góð hæfni
til að miðla upplýsingum í ræðu og riti
Menntunar- og hæfniskröfur:Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
Matís ohf. leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að leiða verkefnasvið Matís á sviði
matvælaöryggis og lýðheilsu. Sviðsstjóri heyrir beint undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn Matís.
Hlutverk Matís er að efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs og tryggja matvælaöryggi,
lýðheilsu og sjálfbæra nýtingu umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu.
• Yfirábyrgð á verkefnum og verkefnaöflun sviðs
• Stefnumótun og þróun sviðs
• Þátttaka í framkvæmdastjórn
• Samskipti við hagaðila á sviði matvælaöryggis og
lýðheilsu
• Áætlanagerð og markmiðasetning
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2020. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja
ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
Nú u
þú það sem
þú eia að
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA