Morgunblaðið - 31.10.2020, Blaðsíða 48
48 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020
England
Wolves – Crystal Palace ......................... 2:0
Staðan:
Everton 6 4 1 1 14:9 13
Liverpool 6 4 1 1 15:14 13
Wolves 7 4 1 2 8:8 13
Aston Villa 5 4 0 1 12:5 12
Leicester 6 4 0 2 13:8 12
Tottenham 6 3 2 1 16:8 11
Leeds 6 3 1 2 12:9 10
Southampton 6 3 1 2 10:9 10
Crystal Palace 7 3 1 3 8:11 10
Chelsea 6 2 3 1 13:9 9
Arsenal 6 3 0 3 8:7 9
West Ham 6 2 2 2 12:8 8
Manch.City 5 2 2 1 8:8 8
Newcastle 6 2 2 2 8:10 8
Manch.Utd 5 2 1 2 9:12 7
Brighton 6 1 2 3 10:12 5
WBA 6 0 3 3 6:14 3
Burnley 5 0 1 4 3:9 1
Sheffield Utd 6 0 1 5 3:9 1
Fulham 6 0 1 5 5:14 1
B-deild:
Coventry – Reading ................................. 3:2
Staða efstu liða:
Reading 9 7 1 1 17:6 22
Bournemouth 8 4 4 0 11:6 16
Millwall 8 4 3 1 10:5 15
Swansea 8 4 3 1 10:5 15
Watford 8 4 3 1 8:4 15
Þýskaland
Schalke – Stuttgart .................................. 1:1
Staðan:
RB Leipzig 5 4 1 0 12:3 13
Bayern München 5 4 0 1 22:8 12
Dortmund 5 4 0 1 11:2 12
Stuttgart 6 2 3 1 11:7 9
Leverkusen 5 2 3 0 6:3 9
Mönchengladbach 5 2 2 1 8:8 8
Werder Bremen 5 2 2 1 7:7 8
E. Frankfurt 5 2 2 1 7:9 8
Hoffenheim 5 2 1 2 9:7 7
Wolfsburg 5 1 4 0 4:3 7
Augsburg 5 2 1 2 6:6 7
Union Berlin 5 1 3 1 8:6 6
Freiburg 5 1 3 1 6:9 6
Arminia Bielefeld 5 1 1 3 4:8 4
Hertha Berlín 5 1 0 4 9:12 3
Köln 5 0 2 3 5:9 2
Schalke 6 0 2 4 3:20 2
Mainz 5 0 0 5 4:15 0
Belgía
B-deild:
Lierse – Lommel...................................... 1:3
Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn
með Lommel.
Kasakstan
Astana – Kairat Almaty.......................... 0:1
Rúnar Már Sigurjónsson kom inn á hjá
Astana á 76. mínútu.
Kairat Almaty tryggði sér nánast meist-
aratitilinn með sigrinum. Liðið er með 41
stig og á fjóra leiki eftir en Astana er í 2.
sæti með 27 stig og á fimm leiki eftir.
Pólland
Pogon Szczecin – Jagiellonia................. 3:0
Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Jagiellonia.
Danmörk
B-deild:
Viborg – Helsingör.................................. 3:0
Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark
Viborg.
Katar
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Al Markhiya – Al-Arabi .......................... 0:2
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
og skoraði fyrra mark Al-Arabi.
Spánn
Barcelona – Benidorm........................ 43:29
Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir
Barcelona.
Efstu lið: Barcelona 16, Bidasoa 12, Gra-
nollers 12, Atlético Valladolid 12, Ademar
León 10, Cuenca 9.
Danmörk
Odense – Aarhus United..................... 33:27
Thea Imani Sturludóttir skoraði ekki
fyrir Aarhus United.
Frakkland
B-deild:
Nice – Besancon ............................... frestað
Markvörðurinn Grétar Ari Guðjónsson
leikur með Nice.
Svíþjóð
Önnered – Guif .................................... 32:27
Markvörðurinn Daníel Freyr Ágústsson
leikur með Guif.
Spánn
Zaragoza – Unicaja Málaga ............... 63:92
Tryggvi Snær Hlinason lék í 17 mínútur
með Zaragoza, skoraði 8 stig og tók eitt frá-
kast.
Aron Einar Gunnarsson, landsliðs-
fyrirliði í knattspyrnu, skoraði
fyrra mark Al-Arabi í gær þegar
liðið sigraði Al Markhiya, 2:0, í und-
anúrslitum bikarkeppninnar í Kat-
ar. Er þetta bikarkeppnin 2019-20
sem ekki tókst að ljúka á réttum
tíma vegna útbreiðslu kórónuveir-
unnar. Heimir Hallgrímsson þjálfar
Al-Arabi og Freyr Alexandersson
er mættur til félagsins til að taka
við starfi aðstoðarþjálfara.
Í dag skýrist hvort mótherji í úr-
slitaleiknum verður Al Duhail eða
Al Sadd. sport@mbl.is
Al Arabi komið
í bikarúrslit
Morgunblaðið/Eggert
Katar Aron Einar Gunnarsson leik-
ur til úrslita í bikarkeppninni.
Tvær breytingar til viðbótar voru
gerðar á landsliðshópi karla í hand-
knattleik í gær en Ísland tekur á
móti Litháen á miðvikudaginn.
Kristján Örn Kristjánsson getur
ekki nýtt tækifærið sem bauðst
þegar hann var kallaður inn í hóp-
inn í vikunni. Tveir liðsfélagar hans
í Aix í Frakklandi greindust með
kórónuveiruna og Kristján gæti því
lent í sóttkví. Óðinn Þór Ríkharðs-
son var kallaður inn í hópinn í gær í
stað Kristjáns. Þá var Hákon Daði
Styrmisson valinn í stað Odds Gret-
arssonar sem á ekki heimangengt.
Veiran gerir
Kristjáni óleik
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Frakkland Kristján Örn kemst ekki
heim í landsleikinn.
GRASRÓTIN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Siguróli Kristjánsson, betur þekkt-
ur sem Moli, heimsótti mörg af
minni bæjarfélögum landsins í sum-
ar þar sem hann stóð fyrir bæði
knattspyrnuæfingum, studdi við
bakið á þjálfurum í bæjarfélaginu
og setti upp fjölbreyttar fótbolta-
búðir.
Alls tóku um 600 til 700 krakkar
þátt í verkefninu sem KSÍ setti á
laggirnar sumarið 2019 og var
Siguróli því að heimsækja bæjar-
félögin í annað sinn í sumar.
Siguróli, sem er fæddur árið
1966, er uppalinn á Akureyri en
hann lék 82 leiki í efstu deild fyrir
Þórsara fram að 1990 og þá lék
hann einnig 2 A-landsleiki á sínum
ferli.
Hann var síðan lengi þjálfari í
neðri deildum og var meðal annars
aðstoðarþjálfari kvennaliðs Þórs/
KA árið 2012 þegar liðið varð Ís-
landsmeistari í fyrsta sinn.
„Þetta er verkefni sem hófst á
síðasta ári,“ sagði Siguróli í samtali
við Morgunblaðið. „Síðasta sumar
heimsótti ég 33 staði á landsbyggð-
inni og í ár gerði ég gott betur og
heimsótti 34 staði. Verkefnið var
öðruvísi í ár enda tíminn mun
knappari vegna kórónuveirufarald-
ursins. Ég komst ekki af stað fyrr
en í maí og svo kom aftur stopp í
ágúst. Ég náði hins vegar að taka
góðan hring um Vestfirðina í ágúst-
mánuði þannig að þetta blessaðist
allt að lokum.“
Lofuðu að minnka tölvu- og
símanotkun um helming
„Fyrirmynd verkefnisins kemur
frá UEFA og þetta er ennþá í hálf-
gerðri þróun hjá okkur. Markmiðið
er fyrst og fremst að kveikja ljós ef
svo má segja í minni bæjarfélögum.
Það er svo bara skilgreiningaratriði
hvaða bæjarfélög eru lítil á Íslandi.
Ég ætlaði mér að heimsækja bæði
nýja og fleiri staði í sumar en það
breyttist þar sem ég lofaði öllum
krökkunum síðasta sumar að ég
myndi snúa aftur í ár.
Á sama tíma tók ég loforð af þeim
um að minnka bæði tölvu- og síma-
noktun um helming og hreyfa sig
daglega. Þau þurftu alls ekki að
hreyfa sig í fótbolta heldur bara í
því sem þeim leið vel með að gera.
Ég fann þess vegna mikla þörf hjá
sjálfum mér að fara aftur á sömu
staðina en ég hefði líka viljað fara á
fleiri nýja staði en það er bara nýtt
verkefni fyrir næsta sumar,“ sagði
Siguróli ennfremur.
Battavöllurinn vinsæll
Siguróli ferðaðist um landið í
sendibíl með battavöll í farangurs-
rýminu en völlurinn er í minni kant-
inum og vakti mikla lukku hjá yngri
kynslóðinni.
„Árið 2019 tók ég með mér einn
lítinn battavöll sem KSÍ fékk lán-
aðan hjá Ungmennafélagi Íslands,
UMFÍ. Við leigðum okkur svo bara
sendibíl og keyrðum hringinn um
landið. Planið var að vera með bæði
fjölbreyttar og skemmtilegar æf-
ingar fyrir krakkana til þess að fá
þau til þess að mæta á svæðið. Þess
þurfti hins vegar ekki þegar ég var
kominn á staðinn því um leið og ég
mætti með battavöllinn á svæðið
vildu allir vera með. Þetta var svo
bara eintóm gleði, allan tímann, og
aðalatriðið var ekki hver ynni eða
neitt slíkt.
Krakkarnir voru fyrst og fremst
mættir til þess að spila fótbolta. Þar
sem völlurinn rúmaði í raun bara
tvo til fjóra í einu biðu hinir fyrir
utan og þá reyndi ég að hvetja
krakkana til þess að æfa sig með
bolta á meðan þau biðu eftir að röð-
in kæmi að þeim. Þau voru svo líka
dugleg að lifa sig inn í leiknn og
hrópa hvatningarorð til vina sinna á
hliðarlínunni. Í sumar fjárfesti KSÍ
svo í tveimur battavöllum sem ég
tók með mér og það vakti mikla
lukku að mæta með tvo velli í ár.“
Tvær mikilvægar reglur
Siguróli telur að verkefnið hafi
slegið í gegn og að það hafi aukið
vægi KSÍ á landsbyggðinni.
„Þetta gefur krökkunum hrika-
lega mikið og eins bæjarfélögunum
í heild sinni. Þegar ég kom aftur í
sumar hitti ég sömu þjálfarana og
sömu foreldrana og ég hitti síðasta
sumar. Við fengum mikla virðingu
fyrir verkefnið 2019 en sú virðing
jókst enn frekar í sumar því 70-80%
af krökkunum komu aftur í sumar,
annað árið í röð.
Ég held að krakkarnir hafi líka
verið ánægðir með þær tvær reglur
sem voru iðulega í gildi. Það á ann-
ars vegar að vera gaman í fótbolta
og hins vegar má gera mistök. Það
eru skilaboðin sem krakkarnir fá
þegar þau fara inn á battavöllinn
og því fleiri mistök, því betra.
Ég tók af þeim annað loforð í
sumar, að minnka símanotkun
ennþá frekar, fara snemma að sofa
á kvöldin og vera dugleg að hreyfa
sig. Það er þess vegna aftur komin
pressa fyrir næsta sumar að heim-
sækja staðina enn á ný og vonandi
bætast fleiri við í kjölfarið.“
Metnaðurinn til staðar
Þjálfarinn er viss um að margar
af framtíðarstjörnum Íslands
leynist á landsbyggðinni.
„Þetta eru fyrst og fremst góðir
krakkar með foreldra sem hafa mik-
inn metnað og áhuga á því sem
börnin þeirra eru að gera. Þau eru
að keyra krakkana sína langar
vegalengdir á hverjum degi til þess
að koma þeim á æfingar.
Foreldrarnir og krakkarnir þurfa
að gefa mikið af sér bara til að kom-
ast á æfingar og það eitt og sér býr
strax til mjög sterka karaktera.
Karakter er gríðarlega mikilvægur í
fótbolta og hann er mikilvægastur
ásamt fótbolta- og íþróttamanninum
í þér.“
Eflir lýðheilsu barna
„Okkur hefur tekist að efla meiri
áhuga á landsbyggðinni með þessu
framtaki og þetta hefur eflt lýð-
heilsu barna sem var aðalmarkmiðið
þegar við lögðum af stað í þetta.
Það er fullt af mjög efnilegum
krökkum sem æfa úti á landi og
þetta eru klárlega framtíðarlands-
liðsmenn Íslands einn góðan veð-
urdag,“ bætti Siguróli við í samtali
við Morgunblaðið.
Landsliðsfólk framtíðar
leynist í litlu bæjunum
Siguróli Kristjánsson mætti með battavöll í minni bæjarfélög landsins
Ljósmynd/KSÍ
Austfirðir Siguróli Kristjánsson ásamt fótboltakrökkum á Stöðvarfirði sem var einn viðkomustaðanna.
Siguróli Kristjánsson heimsótti 31 byggðarlag á ferðalagi sínu um landið í
sumar og hélt þar fótboltanámskeið fyrir krakka frá samtals 34 byggðar-
lögum. Staðirnir voru Borg í Grímsnesi, Breiðdalsvík, Búðardalur, Djúpi-
vogur, Eyrarbakki, Flateyri, Flúðir, Grundarfjörður, Hofsós, Hólmavík,
Höfn, Kirkjubæjarklaustur, Kjalarnes, Mývatnssveit, Ólafsvík, Patreks-
fjörður, Raufarhöfn, Seyðisfjörður, Skagaströnd, Stokkseyri, Stykkis-
hólmur, Stöðvarfjörður, Suðureyri, Súðavík, Varmahlíð, Vík í Mýrdal,
Vogar, Vopnafjörður, Þingeyri, Þorlákshöfn og Þórshöfn. Til Patreks-
fjarðar komu líka krakkar frá Tálknafirði og Bíldudal og til Raufarhafnar
komu krakkar frá Kópaskeri. Myndir sem teknar voru á öllum stöðunum
má sjá á mbl.is/sport/fotbolti.
Þátttakendur frá 34 stöðum