Morgunblaðið - 31.10.2020, Síða 49
EVRÓPUDEILDIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Albert Guðmundsson varð í fyrra-
kvöld annar Íslendingurinn og sá
fyrsti í tíu ár til að skora tvö mörk
í leik í riðlakeppni Evrópu-
deildarinnar í fótbolta.
Albert gerði þá bæði mörk hol-
lenska liðsins AZ Alkmaar í
heimasigri á Rijeka frá Króatíu,
4:1, og skoraði þar með sín fyrstu
mörk í riðlakeppninni.
Sá eini sem hefur áður leikið
þennan leik er Kolbeinn Sigþórs-
son og það gerði hann einmitt líka
fyrir AZ Alkmaar. Það var 15.
desember árið 2010, eða fyrir rétt
tæpum áratug, en Kolbeinn, sem
þá var á sínu fyrsta tímabili í að-
alliði AZ, skoraði tvö marka liðsins
þegar það vann BATE Borisov frá
Hvíta-Rússlandi, 3:0, á heimavelli.
Fimm skorað fyrir AZ
Albert er sextándi Íslending-
urinn sem skorar í riðlakeppni eða
útsláttarkeppni Evrópudeildar
UEFA frá því núverandi keppnis-
fyrirkomulag var tekið upp árið
2004. Leikið er í riðlum, eftir fjór-
ar umferðir í undankeppni, og eft-
ir það útsláttarkeppni frá 32ja liða
úrslitum.
AZ Alkmaar kemur mest við
sögu hjá Íslendingum í þessari
keppni því fimm af þeim sextán ís-
lensku fótboltamönnum sem hafa
skorað í henni hafa gert það í bún-
ingi AZ.
Jóhann Berg Guðmundsson
skoraði fjögur mörk fyrir liðið í
riðlakeppninni, Kolbeinn Sigþórs-
son þrjú, Albert er kominn með
tvö og þeir Grétar Rafn Steinsson
og Aron Jóhannsson gerðu sitt
markið hvor fyrir AZ í riðlakeppn-
inni. Sjötti Íslendingurinn sem hef-
ur leikið með AZ í Evrópudeildinni
er Jóhannes Karl Guðjónsson.
Rúnar Alex 35. Íslendingurinn
Rúnar Alex Rúnarsson varð 35.
Íslendingurinn til að spila í riðla-
eða útsláttarkeppni Evrópudeild-
arinnar í fyrrakvöld þegar hann
varði mark Arsenal gegn Dundalk
frá Írlandi. Hann er annar íslenski
markvörðurinn í keppninni en
Hannes Þór Halldórsson varði
mark Qarabag frá Aserbaídsjan í
tveimur leikjum í riðlakeppninni
haustið 2018.
Hinir fjórir Íslendingarnir sem
nú leika í riðlakeppninni, Albert,
Sverrir Ingi Ingason, Hörður
Björgvin Magnússon og Arnór Sig-
urðsson, léku allir sinn fyrsta leik
í keppninni í fyrstu umferðinni
fyrir rúmlega viku.
Þrennur Péturs og Ásgeirs
Evrópudeild UEFA varð til um
aldamótin þegar Evrópukeppni
bikarhafa og UEFA-bikarinn voru
sameinuð. Tveir Íslendingar skor-
uðu þrennur fyrir erlend félög í
gamla UEFA-bikarnum. Pétur
Pétursson tvívegis, fyrir Feye-
noord frá Hollandi gegn Malmö
frá Svíþjóð 1979 og fyrir Antwerp-
en frá Belgíu gegn Zürich frá
Sviss 1983. Ásgeir Sigurvinsson
skoraði þrennu fyrir Standard
Liege frá Belgíu gegn Dynamo
Dresden frá Austur-Þýskalandi í
16-liða úrslitum UEFA-bikarsins
árið 1980.
Þá skoraði Lárus Guðmundsson
sex mörk fyrir Waterschei frá
Belgíu og þrjú mörk fyrir Uerdin-
gen frá Þýskalandi í Evrópu-
keppni bikarhafa á árunum 1982
til 1985. Lárus skoraði m.a. í sigri
Waterschei á París SG þegar belg-
íska liðið komst í undanúrslit
keppninnar vorið 1983.
AFP
AZ Albert Guðmundsson í leiknum
gegn Rijeka í fyrrakvöld.
Albert fetar í fótspor Kolbeins
Einu Íslendingarnir sem hafa skorað tvö mörk í leik í riðlakeppni Evrópudeildarinnar
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020
Íslandsmótinu í fótbolta er
lokið þetta árið. Síðustu leikirnir
voru spilaðir dagana 4. til 6.
október en það vissum við þó
ekki fyrir víst fyrr en klukkan sex
í gær þegar KSÍ gjörði niður-
stöðu sína heyrinkunnuga.
Eins og fram kemur hér til
hliðar eru Valur og Breiðablik Ís-
landsmeistarar karla og kvenna
árið 2020. Sem betur fer er um
nokkuð afgerandi sigra hjá báð-
um liðum að ræða. Valsmenn
voru komnir með afar vænlegt
forskot og Blikakonur voru búnar
að leggja keppinauta sína á Hlíð-
arenda að velli.
Sumt annað var langt frá því
að vera eins afgerandi og það er
vel hægt að kenna í brjósti um
Framara, sem missa af úrvals-
deildarsæti á markatölu, Magna-
menn og mitt gamla félag Leikni
á Fáskrúðsfirði sem falla úr 1.
deild karla á markatölu. FH-
konur sem voru svo nálægt því
að halda sér í úrvalsdeildinni.
Stjórn KSÍ var vandi á hönd-
um. Margir vildu ljúka mótinu á
eðlilegan hátt. Margir vildu láta
gott heita. Hjá mörgum fór þetta
eftir stöðu þeirra liða.
En eftir tíðindi gærdagsins var
erfitt fyrir KSÍ að halda því til
streitu að ljúka mótinu og spila
alla leiki. Óvissan var einfaldlega
of mikil. Í dag veit enginn hvort
hægt væri að halda áfram keppni
eftir 17. nóvember.
Eins og ég hef áður komið inn
á, þá tel ég þó að ákvörðunin um
að krýna enga bikarmeistara
2020 sé misráðin.
Hjá körlum og konum eru að-
eins fjögur lið eftir í undan-
úrslitum. Samtals sex leikir, sem
engin þörf var á að blása af
strax. Undanúrslit og úrslitaleiki
hefði mátt leika síðar í vetur.
Hugsanlega með áhorfendum!
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Aron Pálm-
arsson hafði nóg
að gera í starfi
sínu sem at-
vinnumaður í
handknattleik
fyrir helgi en Ar-
on og liðsfélagar
í liði Barcelona
léku tvo leiki á
sama sólar-
hringnum. Tóku
þeir á móti Benidorm í spænsku 1.
deildinni í gær en leiknum var
frestað á dögunum vegna kórónu-
veirusmits í röðum Barcelona. Á
fimmtudagskvöld lék liðið við Aal-
borg í Meistaradeild Evrópu og
vann góðan sigur, 42:33, þar sem
Aron var mjög áberandi, skoraði
fimm mörk og átti fimm stoðsend-
ingar. Hann tók það hins vegar ró-
lega í gær og skoraði eitt mark í
stórsigri Barcelona, 43:29.
Barcelona vann þar með sinn átt-
unda sigur í fyrstu átta leikjunum
og er með 16 stig á toppi deild-
arinnar en Bidasoa, Granollers og
Valladolid eru öll með 12 stig. Bida-
soa hefur unnið alla sína leiki eins
og Barcelona en hefur aðeins spilað
sex leiki. Nú vill svo vel til að leik-
mannahópur Barcelona er afar vel
mannaður og getur tekist á við dag-
skrá sem þessa.
Léku tvo
leiki á sama
sólarhring
Aron
Pálmarsson
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
Víðir Sigurðsson
sport@mbl.is
Stjórn Knattspyrnusambands Ís-
lands ákvað á fundi sínum í gær að
hætta keppni á Íslandsmótinu í
knattspyrnu og einnig í bikarkeppn-
inni. Fyrr í gær kynnti ríkisstjórnin
hertar sóttvarnaaðgerðir í barátt-
unni við kórónuveiruna og í fram-
haldinu funduðu stjórn sambands-
ins og mótanefnd.
„Þetta er auðvitað þungbær
ákvörðun og erfitt að taka hana. Við
teljum hana nauðsynlega og stjórn-
in var einhuga sem og mótanefndin.
Ef horft er til heildarhagsmuna þá
er þetta skynsamlegasta niður-
staðan,“ sagði Guðni Bergsson, for-
maður KSÍ, meðal annars í samtali
við mbl.is í gær.
Eins og fram hefur komið hefur
stjórn KSÍ heimild til að aflýsa Ís-
landsmótinu með þeim hætti að nú-
verandi staða gildi varðandi Ís-
landsmeistarana og hvaða lið fara á
milli deilda. Bráðabirgðareglugerð
var hönnuð í sumar með tilliti til
ástandsins í heiminum og gerir hún
stjórn KSÍ kleift að grípa til þess ef
2⁄3 Íslandsmótsins hafa verið af-
greiddir. Sú er raunin. Breiðablik
og Valur eru þar með Íslandsmeist-
arar árið 2020.
FH og KR falla
Breiðablik er Íslandsmeistari
kvenna og fær þar með Íslandsbik-
arinn í 18. skipti. Hlutfall stiga mið-
að við leiki ræður þar með endan-
lega úrslitum samkvæmt reglu-
gerðinni sem KSÍ gaf út í júlí-
mánuði. Þar sem KR á eftir að spila
tvo frestaða leiki, auk þeirra
tveggja umferða sem eftir var að
spila, þarf að grípa til stigahlutfalls-
ins til að úrskurða um þriðja sætið
og um neðstu sætin í deildinni. Val-
ur er í öðru sæti og fær eins og
Breiðablik keppnisrétt í Meist-
aradeild kvenna 2021-22 en Ísland
fær frá og með næsta hausti tvö lið
í þeirri keppni í stað eins áður.
FH og KR falla niður í 1. deild.
Tindastóll og Keflavík taka sæti FH
og KR í deildinni tímabilið 2021
sem tvö efstu lið 1. deildar kvenna,
Lengjudeildarinnar, en þau höfðu
þegar tryggt sér fyrsta og annað
sætið.
Fjölnir og Völsungur falla úr 1.
deild kvenna, sem þá þegar lá fyrir,
en sæti þeirra taka Grindavík og
HK. Grindavík er meistari 2. deild-
ar þrátt fyrir að hafa verið með
færri stig en HK, vegna stigahlut-
falls.
Keflavík og Leiknir fara upp
Valsmenn eru Íslandsmeistarar
karla og fá þar með Íslandsbikarinn
í 23. skipti. Þar sem einn frestaður
leikur er óleikinn, milli Stjörnunnar
og KR, auk þeirra fjögurra umferða
sem eftir var að spila, þarf að grípa
til stigahlutfallsins til að úrskurða
um sæti þrjú til fimm í deildinni.
FH og Stjarnan hafna í öðru og
þriðja sæti og fá Evrópusætin tvö
sem veitt eru fyrir árangur í deild-
inni. Breiðablik er í fjórða sæti og
fær síðasta Evrópusætið þar sem
bikarkeppni KSÍ hefur verið end-
anlega slegin af. Engir bikarmeist-
arar verða krýndir árið 2020.
Grótta og Fjölnir falla niður í 1.
deild. Keflavík og Leiknir R. taka
sæti Gróttu og Fjölnis í deildinni
tímabilið 2021 sem tvö efstu lið 1.
deildar karla, Lengjudeildarinnar.
Þó er viðbúið að Fram láti á það
reyna hvort lögmætt sé að Leiknir
fái sætið á betri markatölu en
Leiknir R. og Fram enda með jafn-
mörg stig eftir jafnmarga leiki.
Magni og Leiknir F. falla úr 1.
deild karla en sæti þeirra taka Kór-
drengir og Selfoss. Víðir og Dalvík/
Reynir falla úr 2. deild karla en
sæti þeirra taka KV og Reynir úr
Sandgerði. Álftanes og Vængir
Júpíters falla úr 3. deild karla en
sæti þeirra taka ÍH og KFS. Eina
deildin þar sem tókst að ljúka
keppni var 4. deild karla.
„Erfiður biti að kyngja“
„Við gerum okkur fyllilega ljóst
að þetta er efiður biti að kyngja
fyrir marga. Sérstaklega þau sem
voru í þeirri stöðu að berjast um
að fara upp um deild, þau sem voru
að berjast fyrir áframhaldandi
veru í deild og þau sem voru í bar-
áttu um Evrópusæti. Þetta tekur á
okkur öll sem erum í stjórn KSÍ
enda erum við öll með bakgrunn í
fótboltanum,“ sagði Guðni einnig í
gær.
Í tilkynningunni frá heilbrigðis-
ráðuneytinu er tekið fram að ráð-
herra geti veitt undanþágu við
banni frá íþróttastarfi. Þar er sér-
staklega nefnt að slíkt geti átt við
um alþjóðlega keppnisleiki. Þar af
leiðandi má draga þá ályktun að
líklegt sé að leikirnir sem fara eigi
fram næsta miðvikudag séu á áætl-
un. Annars vegar karlalandsleikur
í handknattleik í Laugardalshöll á
milli Íslendinga og Litháa og hins
vegar Evrópuleikur í Meist-
aradeild kvenna í knattspyrnu á
milli Vals og HJK Helsinki.
„Nú er næsta atrenna að fara í
það mál. Við höfum skilað inn fjöl-
mörgum undnaþágubeiðnum og
ýmsum greinargerðum varðandi
fótboltaumhverfið á síðustu mán-
uðum,“ sagði Guðni Bergsson, for-
maður KSÍ.
Mótslok í skugga veiru
Breiðablik og Valur eru Íslandsmeistarar í knattspyrnu árið 2020
Ákveðið var í gær að hætta keppni bæði á Íslandsmótinu og í bikarkeppninni
Morgunblaðið/Íris
Meistarar Breiðablik náði tvívegis að fagna sigri á sínum helstu keppinautum í Val í sumar.