Morgunblaðið - 31.10.2020, Side 50

Morgunblaðið - 31.10.2020, Side 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Það var kominn tími til að skrifa barnabók, enda fimm ár síðan sú síðasta, Dúkka, kom út. Það er svo skemmtilegt að skrifa barnabækur því þar fæ ég útrás fyrir meiri fíflalæti en í öðr- um verkum,“ segir Gerður Kristný rithöfundur en hún sendi nýlega frá sér barnabókina Iðunn og afi pönk. „Sagan átti að spretta út úr sam- tíma okkar þar sem reiðhjólastuldur og lúsmý angra sögupersónur. Þegar ég sat yfir bókinni í vor óttaðist ég mjög að lúsmýið hefði bara herj- að á okkur í fyrra og væri nú horfið á braut. Þess vegna varð ég mjög glöð þegar fréttist af fyrstu lúsmýsárásunum í sumar. Mig langaði líka að skrifa bók um nútímalegan afa, enda er fólkið af pönk-kynslóðinni orðið afar og ömmur. Sú kynslóð verður að fá að birtast í allri sinni pönkdýrð í barnabók og börnin að hitta þar fyr- ir ömmur sínar og afa. Ég efast ekkert um að þetta fólk prjóni og kunni stöku málshátt, en tímarnir breytast og ömmur og afar með,“ segir Gerður sem sjálf hefur rekist á stöku pönkara. „Þetta er afslappað og skemmtilegt fólk og krakkarnir sem ég hef kennt ritlist síðasta ára- tuginn láta engan eiga neitt inni hjá sér. Þau eru hugmyndarík og orðheppin. Mig langaði til að láta þannig stelpu og þannig afa mætast í bók,“ segir Gerður og bætir við að henni hafi fundist tilvalið að láta söguna gerast í Mosfellsbæ, því þar hafi hún oft kennt krökkum ritlist. „Ég man frá eigin bernsku hvað hjólastuldur var mikið mál í huga barns. Maður gat átt von á því að lenda í einhverjum hrekkjusvínum sem stoppuðu mann, læstu hjólinu og vildu svo fylgj- ast með hvernig maður opnaði. Þannig ætluðu hrekkjusvínin að hafa tök á að stela hjólinu síð- ar, en í þá tíð voru takkalásar sem átti að ýta inn og út eftir kúnstarinnar reglum. Hinir dulkóð- uðu takkalásar voru almesta leyndarmálið sem maður geymdi með sér en nú eru það eflaust lykilorð til að opna símann,“ segir Gerður og bætir við að nýja bókin hennar fjalli ekki aðeins um hjólaþjófnað heldur líka um fordóma. „Við eigum það til að ákveða fyrirfram hverjir séu vondir og hljóti að reyna að leggja stein í götu okkar hinna en komumst síðan yfirleitt að því að flestir eru bestu skinn inn við beinið.“ Gefðu mér bráku Þegar Gerður sest við að skrifa barnabók segist hún jafnan ímynda sér að það verði mjög auðvelt en hefur alltaf jafn rangt fyrir sér. „Vissulega er voða gaman að semja fyrstu þrjá kaflana, en svo er ég alltaf strand og veit ekkert hvað á að gerast næst eða hvernig ég ætla að segja frá því. Í fyrstu covid-bylgjunni róaðist líf mitt þegar ferðalög á erlendar bók- menntahátíðir lögðust af og mér var ætlað að sitja heima, skrifa og kenna syni mínum al- gebru. Þá færðist yfir mig værð og allt í einu vissi ég hvað átti að gerast næst í sögunni um Iðunni og afa pönk sem ég hafði byrjað á árið áður. Ég þarf að vera vel stemmd þegar ég skrifa barnabók í léttum tóni eins og þessa. Það er bannað að flýta sér.“ Gerður leikur sér með íslenska tungu í bók- inni um Iðunni og afa pönk því þar bregður fyrir orðum sem sum eru tungubrjótar og krakkar heyra kannski sjaldan núorðið. „Krakkarnir í mínum bekk í Álftamýrarskóla höfðu gaman af að leika sér með orð. Við feng- um sum orð á heilann og reyndum að tala gott mál. Þess vegna sögðum við ekki „give me a break“, eins og þá var í tísku, heldur: Gefðu mér bráku. Ég hef ekkert læknast af því að hafa gaman af orðum. Ég er enn á þessu stigi. Til dæmis finnst mér „brigsl“ rosalega fyndið orð en það kemur fyrir í nýju bókinni minni.“ Mikið pönk í Halldóri Þegar Gerður er spurð að því hvaða bækur hafi verið í uppáhaldi hjá henni þegar hún var krakki, segist hún hafa lesið stelpubækur sem voru skrifaðar af konum. „Þannig bækur voru mér gefnar í afmælis- og jólagjafir og mér fannst þær óskaplega skemmtilegar. Ég hef uppáhaldsbarnabæk- urnar mínar í seilingarfjarlægð í vinnu- herberginu, svo ég muni nú hvernig þetta hófst allt saman, ást mín á bókum og að ég skyldi verða rithöfundur. Ég las bækurnar um Löbbu eftir Merri Vik og líka Lilju-bæk- urnar og Gunnu-bækurnar eftir Catherine Woolley. Kátu-bækurnar eftir Hildegard Diessel las ég líka og auðvitað flaut Astrid Lindgren inn á milli. Ég gleypti líka í mig bækurnar eftir Enid Blyton sem mér fannst dásamlegur höfundur. Af þessu má sjá að ég las bækur hvaðanæva, frá Svíþjóð, Banda- ríkjunum og Stuttgart, þar sem Kátu- bækurnar gerðust. Einhvern tímann hendist maður vonandi til þeirrar dularfullu borgar þar sem öll þessi mergjuðu ævintýri áttu sér stað. Þar hlýtur að vera boðið upp á Kátu- slóðaferð fyrir æsta lesendur,“ segir Gerður og bætir við að sér hafi fundist mikil hvíld í því þegar hún var krakki að geta brugðið sér inn í annan heim í bók. „Ég hafði mikla þörf fyrir að lesa um ann- að fólk og fá að vera það fólk um stundar- sakir. Það bjargaði ýmsu að geta seilst í skáldsögu þegar erfiðleikar eða leiðindi herj- uðu á – og gerir enn. Ég held það sé afar dýr- mætt fyrir börn, nú sem áður. Við krakkarnir lásum til að geta sett okkur í spor annarra og fá að kynnast heiminum, til dæmis í gegnum Tinnabækurnar. Mig langaði óskaplega til að ferðast á framandi slóðir þegar ég las Tinna- bækurnar og sennilega hefði ég aldrei orðið blaðamaður ef ég hefði ekki kynnst blaða- manninum Tinna. Ég lá líka í teiknimynda- sögum, svo sem Lukku-Láka og Ástríki. Þessar bækur voru svo vel þýddar, dugar þar að nefna orðaforða Kolbeins kafteins sem er magnaður „frá stefni og aftur í skut“ svo ég noti orðalag hans.“ Gerður segist hafa gefið Halldóri Bald- urssyni frjálsar hendur með teikningarnar í bókinni um Iðunni og afa pönk. „Ég treysti Halldóri og vissi að eitthvað sniðugt kæmi frá honum. Í kápumyndinni notar hann til dæmis litasamsetninguna í plötuumslagi pönkaranna í Sex Pistols, Nev- er Mind the Bollocks. Systrunum Jóu og Dídí svipar líka til Ramonesbræðra, langar og mjóar. Ég beið spennt eftir því hvernig afinn kæmi út og gæti ekki verið sáttari með hvernig hann birtist í teikningum Halldórs. Það er svo mikið pönk í Halldóri, hann bætir alltaf einhverju við textann með myndum sín- um.“ Morgunblaðið/Golli Pönk „Ég efast ekkert um að þetta fólk prjóni og kunni stöku málshátt, en tímarnir breytast og ömmur og afar með,“ segir Gerður en margir af pönk-kynslóðinni eru nú orðnir afar og ömmur. Pönkarar eru besta fólkið  „Ég þarf að vera vel stemmd þegar ég skrifa barnabók í léttum tóni eins og þessa. Það er bannað að flýta sér,“ segir Gerður Kristný sem sendi nýverið frá sér barnabókina Iðunn og afi pönk Jólalestur Gerður Kristný á jólum 1980 að lesa eina af Kátubókum Hildegard Diessel. VIÐSKIPTA Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi. Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is VIÐSKIPTAPÚLSINN VIÐSKIPTAPÚLSINN NÝTTU TÍMANN OG FYLGSTU MEÐ „Upphaf aldauðans“ er yfirskrift málþings, útgáfuhófs og sýningar sem verður opnuð í Ásmundarsal við Freyjugötu í dag, laugardag, en dag- skránni verður streymt á facebook- síðu sýningarsalarins. Vegna hertra reglna um samkomur verður dag- skráin, sem áður hafði verið kynnt að takmarkaður hópur gæti sótt, öll í streymi. Tilefni málþings og sýn- ingar er útgáfa bókar Gísla Páls- sonar, Fuglinn sem gat ekki flogið, um geirfuglinn. Í tilkynningu segir að tegundin hafi liðið undir lok „við Ísland, á Eld- ey við Reykjanes 3. júní 1844. Örlög geirfuglsins voru skráð í einstöku handriti, Geirfuglabókum, sem skráðar voru í Íslandsleiðangri tveggja Breta (1858) en lítið hefur verið fjallað um. Geirfuglinn varð til- efni almennrar umræðu á nítjándu öld um aldauða tegunda. Nú á tím- um vofir yfir allsherjar-aldauði teg- unda“. Dagskrá hefst í dag, laugardag, kl. 15 í Ásmundarsal með kynningu á bók Gísla. Þá verður líka opnuð sýning sem verður opin áfram, með myndverkum eftir Ólöfu Nordal, Ragnhildi Ágústsdóttir og Örlyg Kristfinnsson – ásamt verkum barna sem hafa tekið þátt í vinnustofu um fágæta fugla. Á morgun, sunnudag, hefst mál- þingið „Aldauði samtímans“ kl. 15. Stutt erindi flytja Gísli Pálsson mannfræðingur, Ólöf Nordal mynd- listarkona, Errol Fuller fuglafræð- ingur og Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur. Að erindum loknum verða umræður. Morgunblaðið/Ómar Geirfugl Þekkt verk Ólafar Nordal í Skerjafirði. Hún á líka verk á sýn- ingunni í Ásmundarsal. Dagskrá um geirfugla og aldauða samtímans

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.