Morgunblaðið - 31.10.2020, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 31.10.2020, Qupperneq 53
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Líklega yrði allt vitlaust ef íslensk listasöfn reyndu að bæta erfiða rekstrarstöðu nú á tímum kórónu- veirufaraldursins með því að selja valin listaverk úr safneigninni. Mögulega þau verðmætustu til að fá sem mest út úr sölunni, til að mynda til að komast hjá því að segja starfs- fólki upp. En það er lítil hætta á að það gerist hér, slíkt þekkist ekki í þessum hluta heimsins, þar sem söfn eru yfirleitt í eigu samfélagsins og verkin í þeim sameign okkar allra, í stað þess að söfnin séu sjálfseignar- stofnanir eins og algengt er vestan- hafs. Svo er verð á verkum helstu meistara íslenskrar listasögu þar fyrir utan svo fáránlega lágt að and- virði lykilverka myndi mögulega duga til að greiða árslaun eins starfsmanns, kannski tveggja. En á þroskuðum listmörkuðum fjölmenn- ari samfélagi má fá milljarða króna fyrir stök verk og þar liggur freist- ingin í efnahagskrísu eins og þeirri sem veiruskrattinn veldur. Undanfarið hefur mátt sjá fjölda frétta um að menningarstofnanir er- lendis íhugi að selja og hafi selt verk, til að styrkja reksturinn. Og umræðan hefur skiljanlega verið heit um málið í fagmiðlum mynd- listarinnar. Selja til að vernda störf Mörgum þótti skiljanlegt að Royal Opera House í London skyldi selja ofurverðmætt málverk af fyrr- verandi stjórnanda hússins enda fengust fyrir verkið, sem var málað 1971 af David Hockney, einum virt- asta listamanni samtímans, hvorki meira né minna en 12,8 milljónir punda, um 2,3 milljarðar króna. Nú- verandi stjórnendur óperunnar bentu réttilega á að hún væri ekki listasafn og þetta fé myndi nýtast af- ar vel í að styðja við reksturinn á þessum tímum þegar enga aðgöngu- miða er hægt að selja en fjöldi fólks er á launaskrá. Óperuhús er vissulega ekki mynd- listarsafn en þegar slík söfn selja verk úr safneigninni, þá er skiljan- lega tekist á um það. Ef litið er til Bandaríkjanna þá hefur það þó vissulega þekkst að söfn fái að selja verk, en reglan hefur verið að það sé gert til að styrkja áherslur, til að mynda selja verk eldri meistara ef safnið einbeitir sér að samtímalist. Og einnig „grisja“ söfn oft út verk ef þau eiga nokkur eftir sama lista- mann og láta þá fara þau sem eru síst sýnd. Kaupendur finnast venju- lega að slíkum verkum því það að þau hafi verið í eigu virtra safna gef- ur þeim ákveðið gildi. Samtök safnstjóra vestra, AAMD, sem leggja línurnar hvað varðar um- gengni við safneignir, rýmkuðu ný- lega reglurnar svo að söfnum var veitt aukið svigrúm til að selja verk og þá til að nota andvirðið einnig til að vinna með safneignina, eins og þar segir. Í því getur falist að vernda störf þeirra sem sjá um verkin. Og ýmis verk fóru fljótlega út á markaðinn og sum hafa þegar verið seld. Everson-safnið í Syracuse seldi til að mynda „Red Composition“ frá 1946 eftir Jackson Pollock fyrir um 1,7 milljarða króna til að „hjálpa til við kaup nýrra listaverka eftir full- trúa minnihlutahópa og annast safn- eignina,“ eins og segir í ákvörðun stjórnar safnsins. Svipað orðalag býr að baki ákvörðun safnstjóra og stjórnar Brooklyn-safnsins um að selja allmörg verk. Þetta er gott safn með metnaðarfulla sýninga- dagskrá en hefur alls ekki aðgang að jafn digrum sjóðum og frægari systursöfn á Manhattan. Á dögunum seldi Brooklyn-safnið á uppboði tíu verk nokkurra listamanna fyrri alda fyrir 6,6 milljónir dala, hátt í millj- arð króna. Hæsta verðið fékkst fyrir málverk 16. aldar meistarans Lucas- ar Cranach eldri af Lúkretíu – fyrir það fengust nær 600 milljónir króna. Og Brooklyn-safnið selur nú í vik- unni verk eftir ýmsa meistara nær okkur í tíma, Claude Monet, Joan Miro, Henri Matisse, Edgar Degas og Jean Dubuffet, og fær eflaust nokkra milljarða króna úr að moða. Sölu mótmælt í Baltimore Á miðvikudaginn var ætlaði annað gott bandarískt safn, það í Balti- more, að sækja fé með sama hætti, með því að selja á uppboði stór mál- verk eftir Clyfford Still og Brice Marden. Saman eru þau metin á hátt í fimm milljarða kr. Svo hugðist safnið fá enn meira fyrir stórt verk Warhols af síðustu kvöldmáltíðinni. En þá varð allt vitlaust og mót- mæli heyrðust úr ýmsum áttum, enda var um að ræða einu eða bestu verkin eftir listamennina í safneign- inni. Einkasafnarar sem höfðu ánafnað safninu fjölda verka drógu það til baka, stjórnarmenn sögðu af sér og bæði íbúar í Baltimore og fjöldi virtra listamanna skrifuðu undir mótmæli. Ítrekað kom fram að þótt ástandið væri vitaskuld erfitt þá mættu stjórnendur safnsins ekki gleyma meginhlutverki þess, að sýna, varðveita og miðla menningar- arfinum. Niðurstaðan varð sú að verkin eftir Still og Marden voru tekin af uppboðinu. En vandinn er ærinn í heimsfar- aldri og í samfélögum sem hafa ekki stuðningsnet og samfélagssáttmála um sameiginlegt gildi listarinnar, eins og á Norðurlöndum, þá þurfa stjórnendur að finna fjármagn til að halda stofnunum á floti. Og þá er freistandi að horfa á verðmiðann á dýrmætum listaverkunum. Bjargar sala á verkum söfnunum? Dýrt Royal Opera House í London seldi á dögunum portrettmálverk eftir David Hockney af fyrrv. forstjóra, sir David Webster, á 2,3 milljarða kr. Gersemi Brooklyn-safnið fékk um 600 milljónir króna fyrir verk eftir Lucas Cranach eldri og selur fleiri. Stoppað Baltimore-safnið ætlaði að selja verkið „3“ eftir Brice Marden en verðmatið er um 2,1 milljarður. »… á þroskuðum list-mörkuðum má fá milljarða króna fyrir stök verk og þar liggur freistingin … Björgunaraðgerð Everson-safnið í Syracuse seldi á dögunum eitt verðmæt- asta listaverk sem það átti, eftir Jackson Pollock, fyrir 1,7 milljarða kr. MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2020 Þriðja þáttaröðin af Venjulegu fólki, sem kom í heild sinni í Sjón- varp Símans Premium 14. október, hefur nú þegar slegið áhorfsmetið í Sjónvarpi Símans Premium. Sam- kvæmt upplýsingum frá Pálma Guðmundssyni, dagskrárstjóra Sjónvarps Símans, var Venjulegt fólk spilað um 200.000 sinnum á einni viku. „Okkur þykur óskaplega vænt um viðtökurnar og það segir okkur að áskrifendur okkar eru sólgnir í vandaða íslenska dagskrárgerð,“ segir Pálmi. Venjulegt fólk eru grínþættir með dramatísku ívafi sem fjalla um vinkonurnar Völu og Júlíönnu sem hafa verið vinkonur frá því í menntaskóla. „Fjallað er á gamansaman hátt um hæðir þeirra og lægðir í lífinu, gleðina sem og þau áföll sem upp koma. Fjármál vinkvennanna eru ólík sem býr til spennu milli þeirra og setur mögu- lega vinskap þeirra í uppnám,“ seg- ir í kynningu á þáttunum. Með hlut- verk vinkvennanna fara Vala Kristín Eiríksdóttir og Júlíana Sara Gunnarsdóttir, en í öðrum lykil- hlutverkum eru Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst Backman. Töff Arnmundur, Júlíana, Vala og Hilmar. Venjulegt fólk með metáhorf Rúnar Örn Jóhönnu Marinósson opnar fyrstu einkasýningu sína í dag, laugardag, í Midpunkt í Hamraborg í Kópavogi milli kl. 12 og 19. Sýningin ber yfirskriftina Leyniþjónustan eða Secret Services og fjallar „um skáldaða óopinbera stofnun, eins konar sálríkislög- reglu, sem gegnir því hlutverki að rannsaka og útrýma óeðlilegum, dularfullum, yfirskilvitlegum, undarlegum og óstýrilátum fyrir- bærum. Hvað flokkast sem slíkt getur verið erfitt að segja til um en hér virðast einhverskonar draugar vera á kreiki. Draugar geta átt sér ýmsan mis- munandi upp- runa, gleymd minning, mis- eftirminnileg at- vik, slæm hug- mynd, óþörf manneskja, jörð- uð tilfinning. En óvíst er hvort þörf sé á að örvænta, Leyniþjón- ustan tekst á við hið torskiljanlega svo við þurfum ekki að gera það,“ eins og segir í tilkynningu. Rúnar Örn útskrifaðist með BA-gráðu frá myndlistardeild LHÍ 2016 og hefur síðan þá sýnt á ýmsum samsýn- ingum á Íslandi og erlendis. Leyniþjónustan opnuð í Midpunkt Rúnar Örn Jóhönnu Marinósson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.