Morgunblaðið - 31.10.2020, Page 56

Morgunblaðið - 31.10.2020, Page 56
Cul-de-sac er heiti einka- sýningar Unndórs Egils Jónssonar sem verður opin í Kling & Bang í Marshall- húsinu frá og með deg- inum í dag og er hugað að sóttvörnum eins og vera ber. Unndór lauk MFA-námi í Gautaborg fyrir níu árum. Hann vinnur með skúlptúr, innsetningar og húsgagna- smíðar. List Unndórs snýst um þráðinn milli raun- heimsins og óráðsíunnar. Í aðra röndina vinnur hann eftir ströngum reglum hönnunar og verkfræði og á hinn bóginn er vinnan gerð eftir hentisemi og sér- visku og er fram úr hófi bjartsýn. Sýning Unndórs samanstendur af skúlptúrum úr við, og minna verkin mörg hver á húsgögn – þar til betur er að gáð. Sýning Unndórs Egils, Cul-de-sac, í Kling & Bang í Marshall-húsinu Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hafnfirðingurinn Halldóra D. Krist- jánsdóttir átti sér þá ósk sem barn að sýna loftfimleika í sirkus þegar hún yrði stór. Draumurinn rættist ekki en hún segist hafa upplifað hann að hluta í markvissum gönguferðum á fell og fjöll í hverri viku frá því í fyrra. „Ég fæ sérstaklega mikið út úr því að príla, því það reynir á alla vöðva og ég kem endurnærð niður,“ segir hún. „Ég geri samt engar jafnvægisæfingar á brún- um og gæti alltaf fyllsta öryggis.“ Æskuvinkonurnar Halldóra, Inga Steinþóra Guðbjartsdóttir og Bjarn- heiður Erlendsdóttir hafa verið sam- an í saumaklúbbi í áratugi. Fyrir um ári sammæltust þær um að hittast oft- ar og í framhaldinu fannst þeim snið- ugt að hittingurinn yrði í formi viku- legra gönguferða úti í náttúrunni. „Við byrjuðum á því að fara í stutta göngutúra og eftir tvo slíka var áhug- inn orðinn svo mikill að við skráðum okkur á kynningarfund hjá Ferða- félagi Íslands og gengum í göngu- hóp,“ segir Halldóra. „Við vorum strax svo ákafar að við ákváðum að byggja okkur upp fyrir að ganga „Laugaveginn“ á milli Landmanna- lauga og Þórsmerkur að ári. Eftir að hafa sett okkur þetta takmark runnu á okkur tvær grímur, við töldum okk- ur ekki vera til stórræðanna og töld- um þetta óyfirstíganlegt en svo reyndist þetta ekki vera neitt mál. Við höfum farið í tvær göngur vikulega og fórum „Laugaveginn“ á fjórum dög- um í sumar,“ segir hún. Úlfarsfell í hverri viku Stöllurnar ganga á Úlfarsfell á fimmtudögum og fara síðan í lengri göngur um helgar. Samgöngu- takmarkanir vegna kórónuveiru- faraldursins hafa komið í veg fyrir hópferðir og því hafa vinkonurnar að mestu gengið einar saman undanfarna mánuði. „Að undanförnu höfum við til dæmis gengið upp á Mosfell skammt frá Skálholti, Helgafell suðaustur af Hafnarfirði og Arnarfell í Þingvalla- sveit,“ segir Halldóra og tekur fram að auðvelt sé að ganga á þessi fell. Léttar göngur séu nauðsynlegar og góðar en hún fái samt meiri útrás í erfiðari göngum. „Síðasta hópferðin áður en sóttvarnareglurnar voru hertar í september var á Akrafjall og það var geggjuð ferð.“ Halldóra var mikið á skíðum á yngri árum og segist alltaf hafa notið þess að ganga. „Þegar ég var í Kerl- ingarfjöllum sleppti ég stundum að taka rútuna og gekk þess í stað niður fjallið,“ rifjar hún upp. Hún hafi átt gamlan útivistarfatnað, sem hafi dug- að vel til að byrja með í fyrra. „Við sáum fljótt hvað okkur vantaði og komum oft við í verslun á heimleið- inni og keyptum viðeigandi fatnað eða fylgihluti.“ Hún segir þær samt ekki blindast af tískunni heldur fylgi ráðleggingum Ferðafélagsins með öryggið að leiðarljósi. „Þegar kemur að nærfatnaði og peysum finnst mér gamla góða ullin alltaf best.“ Vinkonurnar eru í góðu formi og Halldóra þakkar það gönguferð- unum. „Fátt jafnast á við að vera úti í góðum félagsskap og svo er þetta svo andlega styrkjandi, ekki síst þegar maður er að mestu innilokaður vegna veirunnar.“ Endurnærð á sál og líkama eftir prílið Á Snæfellsjökli Inga, Bjarnheiður og Halldóra kunna vel við sig á fjöllum.  Þrjár vinkonur heillaðar af vikulegum gönguferðum Á Laugaveginum Halldóra, Inga og Bjarnheiður á réttri leið. Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is Airpop Kids öndunargríma • Tveir litir: Bleikt og blátt • Þriggja laga með filterlaginu • Notkunartími grímu í hvert skipti: 8 klst • Endingartími grímunnar: 30 klst (hent eftir það) • Endurlokanlegar umbúðir til að geyma hana milli þess sem þú notar hana LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 305. DAGUR ÁRSINS 2020 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.196 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Siguróli Kristjánsson heimsótti mörg af minni bæjar- félögum landsins í sumar þar sem hann stóð fyrir bæði knattspyrnuæfingum, studdi við bakið á þjálfurum í bæjarfélaginu og setti upp fjölbreyttar fótboltabúðir. Alls tóku 600 til 700 krakkar frá 34 byggðarlögum þátt í verkefninu. „Okkur hefur tekist að efla meiri áhuga á landsbyggðinni með þessu framtaki og þetta hefur eflt lýðheilsu barna,“ segir Siguróli. »48 Efla áhugann á landsbyggðinni ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.