Morgunblaðið - 02.10.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 02.10.2020, Síða 2
H vað ertu að fást við núna? „Sitt lítið af hverju. Ég hef verið að leika svolítið og finnst ekkert skemmtilegra eða betra en það. Svo er ég alltaf með ein- hverja fyrirlestra, að skrifa greinar, auglýsi vörur sem ég nota sjálf og held að geti gagnast öðrum, deili góðum ráðum og upp- skriftum sem hafa nýst mér vel og svo mætti lengi áfram telja.“ Hvaða krem notar þú daglega? „Taramar-kremin. Mér finnst þau dásamleg. Það má borða þau en ég ber þau bara á mig eins og á að gera. Þau eru semsagt lífræn, lífvirk og hrein.“ Áttu þér uppáhaldsmorgunmat? „Ég get því miður ekki borðað morgunmat. Ég man ekki alveg hvenær mér fór að líða illa af morgunmat. Ég borða þess vegna um ell- efu eða tólf, en alltaf stofuheitt eða volgt vatn þegar ég vakna. Stundum fæ ég mér einnig kókosvatn. Síðan fæ ég mér 1 dl af lífrænum rauðrófusafa og kreisti sítrónu út í hann og set líka eina matskeið af Bragg-epla- edikinu út í. Enda svo á svörtum pipar og collagen-i frá Feel Iceland. Ég drekk þetta með röri og skola vel tennurnar á eftir. Svo set ég stundum engifer eða turmeric-skot út í líka. Annað sem ég geri mikið er að setja eina teskeið af L- glutamine-i í smá vatn og skella í mig á morgnana á fastandi maga. Mér hefur þótt það gera gott fyrir magann minn.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn heima? „Ég er alveg svakalega heimakær og er heimilið allt í miklu uppáhaldi. Ég er mest í eld- húsinu og þar vil ég hafa allt hreint og fínt. Þótt eitthvað annað sé í ólagi heima. Svo finnst mér líka dásamlegt í sófanum að horfa á eitthvað skemmtilegt, uppi í rúmi að lesa bók eða hug- leiða. Ég elska að vera heima.“ Hvað keyptir þú þér síðast inn á heimilið? „Ég keypti mér nýjan stól í stofuna eftir smá breytingar.“ Hvernig æfingar gerir þú? „Ég er nýbyrjuð í styrktarþjálfun í Train Station og gæti ekki verið ánægðari með þá stöð. Það er eins og að vera í einkaþjálfun fyrir mun lægra verð. Þar eru engir speglar á veggj- um sem mér finnst frábært og eigendur og starfsfólk alltaf til staðar tilbúin að aðstoða mann. Það finnst mér algjörlega meiri háttar. Annars hef ég alltaf haft gaman af því að ganga, svo tek ég einstaka spretti inn á milli ef ég nenni. Ég geri stundum kundalini jóga hér heima eða tabata jóga, eftir námskeiði sem ég hef notað mikið og keypti á síðunni DailyOm. Ég mæli með þeirri síðu. Þar keypti ég líka 40 hugleiðslur sem ég er búin að nota út í eitt, 40 days of transformation through meditation með David J.“ Áttu þér uppáhaldshönnuð? „ELLA var mikið uppáhald. Annars vil ég bara að flíkin fari mér vel, sé þægileg og endist. Mér finnst yfirleitt ekki gaman í búðum. Mér þætti best ef einhver keypti á mig föt. Það væri frábært, en að því sögðu hef ég aldrei eytt miklu í fatakaup og á mér ekki uppáhaldsfatamerki. Ég reyni að kaupa umhverfisvænar flíkur ef ég kem því við og dóttir mín vill helst kaupa allt notað.“ Hver er uppáhaldsbúðin þín? „Það er Macron, mæli með henni við alla.“ Hvað gerir þú með skemmtilegasta fólkinu þínu? „Mér hafa þótt ferðalögin okkar öll svo skemmtileg og dýrmæt. Ég er þakklát fyrir að hafa getað ferðast með fjölskyldunni minni. En svo finnst mér þessir hversdagslegu hlutir eiginlega langbestir. Kvöldmaturinn þegar við náum að vera öll að spjalla, það er orðið flóknara reyndar í dag, þegar allar æfingar lenda á matmálstímum. Ég á tvo fullorðna unglinga núna. Ég kann líka að meta að horfa á bíómynd eða þátt með fólkinu mínu. Þegar við erum öll heima um helgar eru líka góðar stundir. Hér heima er lítið um hróp og köll og við erum yfirleitt vinir og þá þarf ekki mikið meira til að lífið sé gott, nema kannski spelt-vöfflur.“ Hvernig dekrar þú við þig? „Ég fer í nudd og nálastungur hjá Kolbeini vini okkar, hugleiði, borða hollt og er hætt að vinna eftir kvöldmat. Ég passa upp á að sofa nóg og reyni að vera góð við Ebbu, enda er hún alltaf að gera sitt besta. Eins og við öll.“ Hvert er uppáhaldssnjallforritið? „Ég á í svona ástar/haturssambandi við sam- félagsmiðla. Það er margt gott þar og upplífg- andi, fyndið og fræðandi en maður þarf að reyna að stilla notkuninni í hóf samt. Ég nota mest Facebook og Instagram.“ Ljósmynd/Ragna Sif Þórisdóttir „Ég elska að vera heima!“ Ebba Guðný Guðmundsdóttir er þúsundþjalasmiður. Hún er leikkona, sjónvarpskona, kennari, fyrirlesari og bókaútgefandi svo eitthvað sé nefnt. Hún elskar að vera heima með fjöl- skyldunni og reynir að vera góð við sig daglega. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Kókosvatn er gott í maga. Ebba Guðný veit fátt betra en glúten- lausar vöfflur. Ebba Guðný Guð- mundsdóttir hugar vel að mataræði sínu. Uppáhalds- verslunin er Macron. Ebba Guðný notar kremin frá Taramar. Falleg hettu- peysa frá Macron. Ebba Guðný fer í nudd þegar hún ætlar að dekra við sig. E ftir að hafa verið andlega fjarverandi á Facebook í um það bil 12 ár er ég smátt og smátt að missa þolinmæðina fyrir því sem er leiðinlegt á þeim vettvangi. Ég nenni til dæmis ekki að fylgjast með fólki níða skóinn af öðru fólki eða tala niður allt sem gerist í þessu samfélagi. Kórónu- veiran hefur líka haft sitt að segja og þeg- ar fólk er að rembast við að draga andann og vera til þá þarf það að velja hverju það veitir athygli. Því eins og andlegir leiðtogar þessa heims benda á þá vex það og dafnar sem við veit- um athygli og því betra að beina henni á jákvæðar brautir. Ég hef því reynt að fylgjast bara með því sem er sniðugt og fyndið og blokka rest. Það var einmitt þess vegna sem ég bað um að gerast meðlimur hópsins á Facebook, Hver hendir svona? Þar ráða miklir snillingar ríkjum sem hafa næmt auga fyrir ljótu dóti. Ég er mikill safnari í eðli mínu og til þess að vinna á skorthegðun minni hef ég þurft að ala sjálfa mig upp og endurstilla því annars væri ég líklega daglegur gestur í Góða hirðinum að bjarga dóti sem enginn vill eiga. Það kom því vel á vondan þegar bróðir minn, sem býr í Bandaríkj- unum, sendi mér skilaboð og spurði mig hvað þetta væri eiginlega og sendi link af síðunni, Hver hendir svona? Til þess að gera langa sögu stutta þá var þetta mynd af barna- skóm úr postulíni með nöfnum okkar systkinanna og skírnardögunum okkar. Það sem var fyndið við þetta, fyrir utan náttúrlega hvað þessir skór eru eitthvað mikið barn síns tíma, er að ég hafði aldrei séð þessa skó. Ég fór yfir ættartréð til að reyna að finna hinn seka en datt enginn í hug. Þess vegna sendi ég póst á systkini mín til að fá úr því skorið hvað væri að frétta af þessum postu- línsskóm. Ég kom að sjálfsögðu ekki að tómum kofunum þar. Þau voru með þetta allt á hreinu. Stjúp- móðir mín (og móðir þeirra) hafði sem sagt farið á postulínsmálunarnámskeið einhvern tímann í fyrndinni og málað þessa skó. Hún málaði reyndar jólasveina á spari- stellið í leiðinni sem er mjög vel heppnað og hátíðlegt. En hvers vegna þessir postulínsskór voru ekki á besta stað í stofu veit ég ekki. Þegar hún tók hressilega til á dögunum fengu þessir postulínsskór nýtt lögheimili – í Sorpu. Til að gera langa sögu stutta er ég búin að hlæja svo mikið að þessum postulínsskóm að ég er íhuga að fara í Góða hirðinn og kaupa þá og stilla þeim öllum upp í hillu! Ég veit reyndar ekki hvað maðurinn minn og börnin okkar myndu gera en eitt er víst að ég fengi örugglega hláturskast í hvert skipti sem ég horfði á skóna. Margir myndu segja að það væri þess virði! 2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is, Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndin er af Unsplash. Hér má sjá fimm postulínsskó með nöfnum okkar systkinanna og líka skírnardaginn. Hver hendir svona? Hver hendir svona? Marta María Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.