Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020
V
erkefnið
snerist um
að koma á nýju
skipulagi og verk-
lagi fyrir starfsfólkið,
nútímavæða skrif-
stofustarfsemina og
þannig koma að
framtíðarsýn starfsemi Biskupsstofu. Nú, rétt
um einu og hálfu ári seinna, er verkefninu lok-
ið og ekki verra að fagna 10 ára afmæli Frök-
en Fix hönnunarstudio með þessum hætti,“
segir Sesselja.
Hvaða fyrirmæli fékkstu?
„Ég notast talsvert við konsepthönnun í
nálgun minni á öll skrifstofuverkefni og var
Biskupsstofa þar engin undantekning. Ég
styðst einnig mikið við tákn- og sálfræði þeg-
ar ég byrja í hugmynda- og skipulagsvinnu og
fékk ég hér tækifæri til þess að teygja þann
ramma talsvert yfir verkefnið. Skipulagið er
hannað út frá verkefnamiðuðum stöðlum á
skrifstofuhúsnæði í bland við óskir Biskups-
stofu. Fyrir utan starfsstöðvarnar, sem eru þó
sérstaklega næðismiðaðar, þá var lögð mikil
áhersla á örfundarrými og svæði þar sem
starfsfólk gæti breytt um umhverfi eða fært
sig inn í rými þar sem er enn meira næði.
Einnig lagði ég áherslu á samsetningu
vinnusvæða og stærri borðsvæða þar sem
hægt væri að dreifa gögnum, fljótandi vinnu-
stöðva og annarra svæða þar sem starfsfólk
gæti tekið sér pásur. Skrifstofurýmið allt er
mikið til opið svæði, enda vildu þau auðvelda
verklag starfsfólks og samskipti á milli deilda.
Örfáar sérskrifstofur fengu þó að vera.“
Fröken Fix hannaði ný
húsakynni Biskupsstofu
Sesselja Thorberg sem rekur
hönnunarfyrirtækið Fröken Fix
fékk það verkefni sumarið 2019
að hanna nýja Biskupsstofu á
nýjum stað í turninum við Katr-
ínartún í Reykjavík. Hún notaði
kirkjulitina og gætti þess að það
færi sem best um starfs-
mennina og auðvitað
biskupinn, Agnesi
Sigurðardóttur.
Marta María |
mm@mbl.is
Hér má sjá kirkjulitina í allri
sinni dýrð ásamt PH-ljósinu
sem fæst í Epal. Á myndinni
eru líka String-hillur og falleg
málverk og ljósmyndir.
Sesselja Thorberg
rekur fyrirtækið
Fröken Fix.
SJÁ SÍÐU 10
Móttakan er glæsileg
en þar má sjá köngul
Louis Poulsen í öllu
sínu veldi sem fer vel
við litinn á veggnum.