Morgunblaðið - 02.10.2020, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020
Fylgið okkur á Facebook
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fáguð
fegurð
SKOÐIÐ
NETVERS
LUN
LAXDAL.
IS
E
n samt, veturinn er líka frábær og ein-
staklega góður tími til að huga að heils-
unni og hlúa vel að sér. Mér finnst lík-
legt að þessi vetur verði enn betur til
þess fallinn en venjulega, einfaldlega
vegna þess að við höfum kannski ekki
um margt annað að hugsa. Við getum
sett alla athygli á okkur sjálf, heilsuna
okkar og þeirra sem við elskum.
Eitt af því sem er mikilvægt á veturna er að huga að
bætiefnainntöku og núna er einstaklega mikil ástæða til
að styðja við ónæmiskerfið á alla hugsanlega vegu!
Vinsælasta trendið í vítamínum í vetur verða klárlega
freyðitöflur og duft til að setja út í vatn. Meira að segja
hið geysivinsæla collagen er komið í freyðitöflum!
Hversu geggjað!
Athugið bara að velja gæði. Veljið freyðitöflur sem
eru með náttúrulegum bragð- og litarefnum, án aukefna
og sem eru ekki með miklum sykri eða einhverri ógeðs
gervisætu.
Freyðitöflur eru einstaklega bragðgóð og þægileg leið
til að taka inn bætiefni og einnig hvatning til að drekka
meira vatn, sem er frábært því það vantar mjög oft mik-
ið upp á að daglegri vökvaþörf sé fullnægt. Kaffi er ekki
leiðin til að viðhalda réttu rakastigi líkamans. Þið vitið
það nú alveg er það ekki?
Það eru ýmis bætiefni sem skipta enn meira máli á
veturna en á öðrum árstíma. Auðvitað þarf hver og einn
aðeins að þarfagreina sjálfan sig, finna út hvað passar
og ekki hlaupa bara eftir næstu auglýsingu um ein-
hverja kraftaverkapillu sem á að bjarga heilsunni. Höld-
um okkur dálítið við það sem skiptir máli, lífsnauðsynleg
vítamín, steinefni, fitusýrur og þannig lykilbætiefni.
Þetta eru þau helstu sem ég mæli með í vetur:
D-vítamín – Að sjálfsögðu! Stóran hluta þjóðarinnar
vantar D-vítamín, það er þekkt staðreynd. D-vítamín er
nauðsyn öflugu ónæmiskerfi, fyrir gleðina og sterkar
taugar, fyrir bein og tennur og haldið ykkur til að stuðla
að réttum efnaskiptum og eðlilegri líkamsþyngd.
Magnesíum – Já! Nauðsyn fyrir slökun, svefn, ró og
frið í sálinni. Einnig til að koma í veg fyrir sinadrætti,
fótaóeirð og krampa.
Steinefni og sölt – Fyrrnefndar freyðitöflur eru marg-
ar stútfullar af steinefnum og söltum. Nauðsyn til að
halda fullri orku, góðu rakajafnvægi og koma í veg fyrir
þreytuköst og orkufall. Þessi efni eru nauðsyn öllum
aldursflokkum og öllum tegundum af fólki. Íþróttafólk,
eldri borgarar, skiptir ekki máli. Allir þurfa steinefni og
sölt.
C-vítamín og önnur andoxunarefni – Algjör nauðsyn í
vetur! Frábær fyrir ónæmiskerfið og til að efla líkam-
ann til dáða í vörnum gegn umgangspestum. Ég mæli
með að kaupa eina tegund bætiefnis sem inniheldur góð-
an skammt af C-vítamíni, en einnig öðrum andoxunar-
efnum líkt og sinki og seleni. Þessi efni vinna best sam-
an að sterku ónæmiskerfi.
Omega-fitusýrur – Grunnur góðrar heilsu! Omega 3
fyrir liðina, gegn bólgum og fyrir andlega heilsu og
styrk. Omega 7 fyrir húðina til að verjast kulda og
þurrki og að ekki sé talað um fyrir alla slímhúð.
Góðgerlar fyrir meltinguna (asídófílus) – Það er alltaf
að koma betur og betur í ljós hve heilbrigð þarmaflóra
er mikilvæg góðri heilsu. Góðgerlar eru mikilvægir fyrir
heilbrigða meltingu, öflugt ónæmiskerfi og góða andlega
heilsu svo eitthvað sé nefnt. Munið einnig, ef svo óheppi-
lega vill til að þið þurfið að taka inn sýklalyf í vetur, þá
er gott að taka inn góðgerla samhliða þeim svo melt-
ingin fari nú ekki í skrall með sveppasýkingum og til-
heyrandi veseni. Það eru til sérstakir gerlar í apótekum
til að taka inn með sýklalyfjunum.
Tökum svo glöð á móti þessum vetri, það gengur allt
miklu betur þannig. Hugsum vel um okkur og gerum
allt sem við getum til að láta okkur líða vel.
Svo kemur aftur vor ...
Morgunblaðið/Eggert
Kaffi er ekki leiðin
til að viðhalda réttu
rakastigi líkamans
Gat nú verið, komið haust og veturinn fram undan. Þetta gerist víst á hverju
ári en einhvern veginn er ég alltaf jafn hissa á að sumarið sé bara búið!
Inga Kristjánsdóttir inga@mulierfortis.is
Inga Kristjánsdóttir
næringarþerapisti.
Japanska snyrtivörumerkið Shiseido sem stofnað var árið 1872 gerir vand-
aðar snyrtivörur. Einn fallegasti varalitur vetrarins er Shisheido Modern
Matte Powder-liturinn númer 502.
Hann endist í allt að átta klukkustundir á vörunum og er einstaklega
smekklegur litur fyrir konuna sem velur vandaðar vörur á andlit sitt.
Liturinn hentar vel á bæði ljósa og dökka húð.
Fegurðardrottningin Katarina Rodriguez er ein þeirra sem elska litinn og
ber hann einstaklega vel.
Ævintýra-
lega falleg-
ur varalitur
Katarina
Rodriguez notar
Shiseido
Modern Matte
Powder-
varalitinn númer
502.
Shiseido
Modern Matte
Powder
varalitur
númer 502