Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 26

Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 OPIÐ fyrir umsóknir Lingó er vottaður umboðsaðili á Íslandi fyrir alþjóðlega fagháskóla á Englandi, Skotlandi, Þýskalandi, Ítalíu, Spáni, Kanada og Bandaríkjunum. Nám í slíkum skóla er einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti hug- mynda, stefnum og straumum víða að úr heiminum. Aðstaða og umhverfi er eins og best gerist og kennarar eru reyndir fagmenn og sérfræðingar. Nám erlendis í hönnun, miðlun, sjónlistum, stjórnun, sviðslistum, tísku, ferðaþjónustu eða viðskiptum, opnar einnig möguleika á að hitta „rétta“ fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði. Háskólanám erlendis á sviði skapandi greina Nám erlendis opnar þér nýjan heim, að heiman. Fallega glansandi hár sett í snúð að hætti Fendi. Hárskraut í stíl við lokka. Fendi leggur áherslu á að skipta hárinu til hliðar. Chloé leggur áherslu á stutt hár með bylgjum. Bleik spöng sem nær fram að and- liti gerir útlitið skemmtilegra í vetur. Tíska í anda Fendi. Í hátískulínu Chanel er hárið haft einfalt, sítt og glansandi í náttúrulegum tón. Kérastase Genesis- hárnæring fyrir allar hárgerðir. Kostar 7.990 kr. Sápa.is HH Simonsen Rod gefur hárinu mjúka liði. Kostar 17.162 kr. Beautybar.is Label M volume Mo- usse gefur hárinu fyll- ingu ef það er sett í fyrir blástur. Kostar 3.562 kr. Beautybar.is Balmain-salt- hársprey gefur hárinu lyftingu og fallega áferð. Kostar 4.471 kr. Beau- tybar.is Á tímum kórónuveirunnar þykir mikilvægara en oft áður að leggja áherslu á hárið. Ástæðan fyrir því er sú að með þægileg- um fatnaði má alltaf krydda tilveruna með fallegu hári og alls- konar fylgihlutum. Vetrartískan frá Fendi vekur athygli þar sem hárið er upp- sett í tæknilega snúða. Hárið er greitt fallega til hliðar og hár- spöng notuð á hvolfi. Stórir eyrnalokkar eru einnig heillandi með hárspennu í sama stílnum. Þegar kemur að hárlitum þá ættu konur að fara að ráðum franskra kvenna og hafa hárið í sem náttúrulegustu útliti. Sítt hár í anda sjöunda áratugarins er í algleymingi, sem og millisítt hár og þá með bylgju. Þeir sem muna eftir tíunda áratugnum geta glaðst að nýju þar sem Cha- nel leggur áherslu á hár sem er tekið upp á hliðum. Mikilvægt þykir að nota góð efni í hárið sem ýtir undir fegurð þess. Kérastase Genesis Serum-meðferð- ardroparnir styrkja hárið þar sem það er veikt. Kosta 11.990 kr. Sápa.is Mikilvægara en oft áður að leggja áherslu á hárið Hártískan fyrir veturinn 2020 er spennandi og er nátt- úrulegt hár með fallegum uppsetningum vinsælt. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Glansandi hár lagt í snúð og spöngin notuð á hvolfi, í anda Fendi. Dásamlega hreinsandi olíuhárbað. Kérastase Elixir Ultime Bain- sjampó. Kostar 5.690 kr. Sápa.is Kérastase Genesis Ba- in-sjampó fyrir eðlilegt hár sem fitnar og er veikt. Kostar 6.990 kr. Sápa.is Ballerínu- snúður með spöng á hvolfi frá Fendi. Hátískulína Chanel var sýnd með einföldu rækt- arlegu hári sem minnir á áttunda áratuginn. Frakkar hafa löngum lagt áherslu á stutt jafnt hár í náttúrulegum lit. Frá vetrartísku Chanel. Davines Alche- mic Copper- hárnæringin gef- ur náttúrulegan fallegan lit í hár- ið. Kostar 4.157 kr. Bautybar.is Sítt ræktarlegt hár skipt í miðju í anda áttunda áratugarins frá Chloé. Glæsilegir snúðar. Stutt hár verður einnig vinsælt í vetur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.