Morgunblaðið - 02.10.2020, Page 32
H
in 15 ára gamla ég sá myndina árið sem
hún kom út en eitthvað hafði söguþráð-
urinn skolast til.
Að sjá myndina 27 árum seinna var
upplifun. Það sem stóð kannski upp úr,
fyrir utan hvað það voru miklir straum-
ar á milli Michaels Douglas og Sharon
Stone, var hvað myndin eldist vel tísku-
lega séð og þá er ég ekki bara að tala um föt heldur einn-
ig förðun. Þessi mynd er svo miklu stærri en mig
minnti.
Tískustraumar 1992 minna töluvert á tísku dagsins í
dag og var athyglisvert að sjá hvernig förðun Stone
passar vel inn í hausttískuna 2020. Hún var með frekar
matta áferð á andlitinu sem var ekki mikið skyggt.
Húðin var vel nærð og mikil áhersla lögð á náttúrulegar
augabrúnir. Förðunarmeistari myndarinnar var ekki
að vinna með kolsvartar augabrúnir sem líta út fyrir að
hafa verið stimplaðar á andlitið eins og hafa verið svo
vinsælar hérlendis síðustu ár, heldur náttúrulegar
brúnir sem gera konur svo heillandi. Augabrúnirnar
hafa sjálfsagt verið eitthvað plokkaðar og svo var
hæfilega mikill litur settur í þær. Þetta má auð-
veldlega framkvæma með Tinted Brow Gel -
Granite frá Anastasia Beverly Hills og er það
borið létt í augabrúnirnar
og þær mótaðar.
Augnlokin sjálf voru mál-
uð með einlitum augn-
skugga í beige-lituðum tón.
Ekkert glimmer, bara matt.
Örlítill brúnn blýantur var
settur alveg meðfram augn-
hárunum en þó varla þann-
ig að hægt væri að sjá skýra
línu. Við þessa augnförðun
var hún með maskara til að
skerpa augnlínuna, ekki
hnausþykk gerviaugnhár.
Varirnar voru mótaðar með bleikbrúnum
lit og voru þær mattar í sumum senum.
Til þess að ná fram þessu útliti er mik-
ilvægt að þrífa húðina vel. Þú gætir til
dæmis notað andlitssápuna frá Skin Regi-
men og þvegið andlitið tvisvar og sett svo
Enzymatic Powder frá sama merki en það
er sett í lófann og svo er örlitlu vatni bætt
út í og andlitið þvegið mjög vel á eftir. Þá
væri sniðugt að setja 1.85 HA Booster frá
Skin Regimen á húðina til að fá mjög mik-
inn raka. Til þess að fullkomna raka húð-
arinnar er gott að bera á sig Hollywood-
kremið GLAMGLOW - MOISTURETRIP™
Omega Rich Face Moisturizer.
Næst myndir þú setja á þig nýjasta farð-
ann frá Chanel, Les Beiges Teint Belle
Mine Naturelle. Hann gefur fallega og
náttúrulega áferð og heilbrigðan ljóma án
þess að ljóminn verði of mikill. Hægt er að
bera farðann á andlitið með förð-
unarbursta eða með fingrunum ef þú ert sú
týpa (bara muna að vera búin að spritta
hendurnar vel áður). Þessi farði hylur allt
sem þú vilt að hann hylji án þess að setja grímu á andlitið.
Þegar það er búið getur þú dregið fram augnskuggapallettu
frá Chanel og borið jafnt yfir augnlokið. Því næst getur þú
maskarað augnhárin með nýja maskaranum frá Guerlain,
MAD EYES, sem gefur augnhárunum mikla fyllingu og lengir
augnhárin án þess að klessa þau. Formúlan inniheldur nær-
andi efni sem þétta og lengja augnhárin líkt og serum og er
sjáanlegur munur á fjórum vikum.
Til þess að fullkomna útlitið skaltu setja á þig varalitablýant
í sama lit og varirnar og setja svo gloss frá DIOR númer 630
yfir varirnar. Þegar förðunin er orðin alveg upp á tíu gætir þú
klætt þig í ljósbrúnar þröngar buxur með reiðbuxnasniði, far-
ið í bol í sama lit, sett á þig belti og farið í hnésíða peysu yfir.
Nú eða látið sérsauma á þig hvítan stuttan kjól með berum
ermum og standkraga og hætt að ganga í undirfötum.
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020
Þessi sena í myndinni, þar sem
Sharon Stone mætir í yfirheyrslu
hjá lögreglunni, er ein þekktasta
sena kvikmyndasögunnar.
Gloss
númer 630
frá DIOR.
Í myndinni býr hún
í glæsivillu í Car-
mel í Kaliforníu.
Sharon Stone og
Michael Douglas eru fun-
heit saman í myndinni.
LES BEIGES
farðinn frá
Chanel hylur
vel og gefur
fallega áferð.
Sharon Stone
er oft með stóra
gullhálsfesti í
myndinni.
Sharon Stone
með ísbrjót-
inn sem kem-
ur nokkuð við
sögu í kvik-
myndinni.
Ljósbrúnn litur nýtur vinsælda í
fatatísku dagsins í dag líkt og 1992
þegar myndin var frumsýnd. Það er
líka sérlega heitt þessa dagana að
vera í sama lit að ofan og neðan.
GLAMGLOW
-
MOISTURE-
TRIP™
Omega Rich
Face Moistu-
riz er er mjög
gott dag-
krem.
Augnháragelið frá
Anastasia
Beverly Hills gef-
ur fallega og nátt-
úrulega áferð.
Farðaðu þig
eins og Sharon Stone
í Basic Instinct
Förðun Shar-
on Stone er
mjög í anda
förðunartísku
dagsins í dag.
Hreinsikremið frá Skin
Regimen þrífur burt öll
óhreinindi. Best er að
þvo húðina alltaf tvisv-
ar kvölds og morgna.
Enzymatic Powder
frá Skin Regimen
hreinsar húðina og
gerir hana silkimjúka.
MAD EYES
maskarinn frá
Guerlain er
sérlega góður.
Leikkonan Sharon Stone varð ein helsta tískufyrirmynd heims þegar hún
lék í myndinni Basic Instinct á móti leikaranum Michael Douglas. Myndin,
sem er erótískur spennutryllir, var frumsýnd í mars 1992 og fékk leikkonan
Golden Globe-tilnefningu fyrir leik sinni í myndinni.
Marta María | mm@mbl.is