Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 34

Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 34
húðina fyrir umhverfinu og frekari rakaskorti meðan það fyllir húðina af góðri næringu. Clarins Hydra- Essentiel Silky Cream er dásamlegt krem fyrir venjulega húð og þurra húðgerð. Kremið fyllir húðina strax af góðum raka en það sér einnig til þess að viðhalda rakanum í húðinni sama hvernig viðrar úti. Plantan „Leaf of life“ styrkir húðina með reglulegri notkun. Fyrir venjulega húð er Embryolisse Lait Créme Concentré alltaf klassískt. Það fyllir húðina strax af góðum raka án þess að vera of þungt á húðinni. Kremið sér til þess að rakinn haldist í húðinni allan dag- inn. Á mjög köldum dögum er ekkert betra en að næra húðina extra vel en kremið vinnur eins og maski líka. Bera má þykkt lag á húðina og leyfa því að vinna í 15 mín- útur. Þetta undrakrem er leyndarmál margra förðunarfræðinga og gjarnan notað sem farðagrunnur þar sem kremið situr svo fallega undir hvaða farða sem er og húðin verður strax heilbrigðari og bjartari. Clarins-andlitsolíurnar koma í þremur ólíkum formúlum fyrir mismun- andi húðgerðir. Allir geta því fundið sér olíu við hæfi en olían er afar mikilvæg yfir vetrar- tímann. Þegar húðin okkar verður þurr fer hana að skorta olíu. Nokkrir dropar út í rakakremið eða fyrir svefn mun gera gæfumun- inn. Við þurfum að huga að lík- amanum líka. Herbivore Coco- nut Body-olían er algjör lúxus fyr- ir húðina eftir sturtuferðina. Taktu þér tíma til að dekra vel við húðina, jojoba og aðrar olíur læsa rakanum í húðina og gera hana silkimjúka. Notaðu Hýalúrónsýru ef þú vilt vernda húðina extra vel í vetur. Hýalúrón gefur húðinni gott ra- kabúst, húðin verður samstundis þéttari, líflegri og heilbrigðari. Gott ráð er að setja nokkra dropa út í rakakremið. Pestle & Mortar Pure Hyaluronic Serum hefur sameindir af ólíkum stærðum sem þýðir að varan ferðast í mismunandi lög húðar- innar til að næra hana sem mest. Notaðu rakamaska einu sinni til tvisvar í viku. Clinique Moisture Surge Overnight Mask sér til þess að húðin þín nærist vel yfir nóttina. Húðin þín verður tilbúin í næsta dag yfirfull af góðum raka. Notaðu alltaf góða sólarvörn en hún er besta vörnin gegn frekari skaða á húðinni. K alt loftslag líkt og er hér á Ís- landi um hávetur getur haft slæm áhrif á húðina ef hún fær ekki réttu umhirðuna. Húðin er fljót að missa raka sinn í köldu loftslagi, hún verður þurr og þurrkublettir geta einnig farið að myndast. Olíur, næring og raki hjálpa húðinni að kom- ast í gegnum veturinn. Húðin þarf næringu kvölds og morgna líkt og alla aðra daga. Það þarf sérstaklega að var- ast að húðin missi ekki meiri raka og þá sér- staklega húð sem er þurr fyrir. Andlitshreinsar geta haft ertandi áhrif á húðina, sérstaklega ef þeir innihalda þurrk- andi innihaldsefni. Olíuhreinsir er afar nær- andi á húðina og frábær leið til að þrífa burt farða og/eða sólarvörn. Hann er næringar- ríkur, dregur ekki raka úr húðinni og skilur hana eftir silkimjúka. CHANEL L‘HUILE-olíuhreinsirinn er með silkimjúkri áferð. Hann hreinsar auð- veldlega burt allan farða eins og vatns- heldar vörur, sólarvörn og önnur óhreindi. Hann hentar líka vel yfir viðkvæm augu. Þér á að líða vel í húðinni eftir hreinsun og Chanel L‘HUILE sér akkúrat um það. Við viljum ekki erta húðina frekar þar sem hún er viðkvæmari á veturna. Kornaskrúbbar geta verið of harðir á húðina og sérstaklega fyrir viðkvæma húð og eru þá mildar sýrur betri kostur. Glýkólsýra hreinsar í burtu dauðar húð- frumur sem sitja sem fastast á yfirborði húð- arinnar. Þegar þessar húðfrumur eru fjar- lægðar eiga kremin okkar greiðari aðgang í húðina. Yfirborð húðarinnar verður einnig jafnara og fallegra. Glýkólsýran vinnur af- ar vel á þurrk og þrjóskum þurrkublettum. Exfoliate Glýkóltónerinn frá Pestle & Mortar er líkt og nafnið gefur til kynna tóner fyrir húðina sem inniheldur 6,8% Glýkólsýru. Tónerinn er ein- faldlega settur í bómull og strokið létt yfir hreint andlitið. Mælt er með að nota vöruna einu sinni til tvisar í viku í byrjun. Húðin verður fljótt bjart- ari, hreinni og laus við þurrk. Það allra mikilvægasta yfir vetrartímann er nær- ing og raki. Þar eiga raka- kremin stóran þátt. Gott og næringarríkt rakakrem sér ekki aðeins um að gefa húð- inni raka heldur vernda 34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 Hvernig undirbúum við húðina okkar fyrir veturinn? Þegar hausta tekur förum við flest að draga fram úlpurnar og annan vetrarklæðnað til að vernda líkamann gegn kólnandi veðurfari. Húðinþarfnast einnig sérstakrar umönnunar yfir vetrartímann, nú þarf að fara að huga að breytingum og velja sér vörur sem vernda húðina. Kristín Samúelsdóttir | kristinsam1340@gmail.com

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.