Morgunblaðið - 02.10.2020, Síða 34
húðina fyrir umhverfinu og frekari rakaskorti
meðan það fyllir húðina af góðri næringu.
Clarins Hydra- Essentiel Silky Cream er
dásamlegt krem fyrir venjulega húð og þurra
húðgerð. Kremið fyllir húðina strax af góðum
raka en það sér einnig til þess að viðhalda
rakanum í húðinni sama hvernig viðrar úti.
Plantan „Leaf of life“ styrkir húðina með
reglulegri notkun.
Fyrir venjulega húð er Embryolisse
Lait Créme Concentré alltaf klassískt. Það
fyllir húðina strax af góðum raka án þess
að vera of þungt á húðinni. Kremið sér til
þess að rakinn haldist í húðinni allan dag-
inn. Á mjög köldum dögum er ekkert betra
en að næra húðina extra vel en kremið
vinnur eins og maski líka. Bera má þykkt
lag á húðina og leyfa því að vinna í 15 mín-
útur. Þetta undrakrem er leyndarmál
margra förðunarfræðinga og gjarnan notað
sem farðagrunnur þar sem kremið situr
svo fallega undir hvaða farða sem er
og húðin verður strax heilbrigðari
og bjartari.
Clarins-andlitsolíurnar
koma í þremur ólíkum
formúlum fyrir mismun-
andi húðgerðir. Allir
geta því fundið sér olíu
við hæfi en olían er afar
mikilvæg yfir vetrar-
tímann. Þegar húðin
okkar verður þurr fer
hana að skorta olíu.
Nokkrir dropar út í
rakakremið eða fyrir
svefn mun gera gæfumun-
inn.
Við þurfum að huga að lík-
amanum líka. Herbivore Coco-
nut Body-olían er algjör lúxus fyr-
ir húðina eftir sturtuferðina. Taktu
þér tíma til að dekra vel við húðina, jojoba
og aðrar olíur læsa rakanum í húðina og gera
hana silkimjúka.
Notaðu Hýalúrónsýru ef þú vilt vernda húðina
extra vel í vetur. Hýalúrón gefur húðinni gott ra-
kabúst, húðin verður samstundis þéttari, líflegri
og heilbrigðari. Gott ráð er að setja nokkra dropa
út í rakakremið. Pestle & Mortar Pure Hyaluronic
Serum hefur sameindir af ólíkum stærðum sem
þýðir að varan ferðast í mismunandi lög húðar-
innar til að næra hana sem mest.
Notaðu rakamaska einu sinni til tvisvar í viku.
Clinique Moisture Surge Overnight Mask sér til
þess að húðin þín nærist vel yfir nóttina. Húðin þín
verður tilbúin í næsta dag yfirfull af góðum raka.
Notaðu alltaf góða sólarvörn en hún er besta vörnin
gegn frekari skaða á húðinni.
K
alt loftslag líkt og er hér á Ís-
landi um hávetur getur haft
slæm áhrif á húðina ef hún fær
ekki réttu umhirðuna. Húðin er
fljót að missa raka sinn í köldu
loftslagi, hún verður þurr og
þurrkublettir geta einnig farið
að myndast.
Olíur, næring og raki hjálpa húðinni að kom-
ast í gegnum veturinn.
Húðin þarf næringu kvölds og morgna líkt
og alla aðra daga. Það þarf sérstaklega að var-
ast að húðin missi ekki meiri raka og þá sér-
staklega húð sem er þurr fyrir.
Andlitshreinsar geta haft ertandi áhrif á
húðina, sérstaklega ef þeir innihalda þurrk-
andi innihaldsefni. Olíuhreinsir er afar nær-
andi á húðina og frábær leið til að þrífa burt
farða og/eða sólarvörn. Hann er næringar-
ríkur, dregur ekki raka úr húðinni og skilur
hana eftir silkimjúka.
CHANEL L‘HUILE-olíuhreinsirinn er með
silkimjúkri áferð. Hann hreinsar auð-
veldlega burt allan farða eins og vatns-
heldar vörur, sólarvörn og önnur
óhreindi. Hann hentar líka vel yfir
viðkvæm augu. Þér á að líða vel í
húðinni eftir hreinsun og Chanel
L‘HUILE sér akkúrat um það.
Við viljum ekki erta húðina frekar
þar sem hún er viðkvæmari á veturna.
Kornaskrúbbar geta verið of harðir á
húðina og sérstaklega fyrir viðkvæma
húð og eru þá mildar sýrur betri kostur.
Glýkólsýra hreinsar í burtu dauðar húð-
frumur sem sitja sem fastast á yfirborði húð-
arinnar. Þegar þessar húðfrumur eru fjar-
lægðar eiga kremin okkar greiðari aðgang í
húðina. Yfirborð húðarinnar verður einnig
jafnara og fallegra. Glýkólsýran vinnur af-
ar vel á þurrk og þrjóskum þurrkublettum.
Exfoliate Glýkóltónerinn frá Pestle &
Mortar er líkt og nafnið gefur til kynna
tóner fyrir húðina sem inniheldur
6,8% Glýkólsýru. Tónerinn er ein-
faldlega settur í bómull og strokið
létt yfir hreint andlitið. Mælt
er með að nota vöruna einu
sinni til tvisar í viku í byrjun.
Húðin verður fljótt bjart-
ari, hreinni og laus við
þurrk.
Það allra mikilvægasta
yfir vetrartímann er nær-
ing og raki. Þar eiga raka-
kremin stóran þátt. Gott og
næringarríkt rakakrem sér
ekki aðeins um að gefa húð-
inni raka heldur vernda
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020
Hvernig
undirbúum við
húðina okkar
fyrir veturinn?
Þegar hausta tekur förum við flest að draga fram
úlpurnar og annan vetrarklæðnað til að vernda
líkamann gegn kólnandi veðurfari. Húðinþarfnast
einnig sérstakrar umönnunar yfir vetrartímann,
nú þarf að fara að huga að breytingum og
velja sér vörur sem vernda húðina.
Kristín Samúelsdóttir | kristinsam1340@gmail.com