Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 44

Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 Jakkaföt og skyrtur Gluggatjöld og áklæði Úlpur, kápur og frakkar Rúmföt og heimilisþvottur Kjólar og blússur Servíettu- og dúkaþvottur Við tökum vel á móti herðatrjám og endurnýtum STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími: 553 1380 Ert þú með allt á hreinu 2020? N anna Kristín starfar sem aðstoðamaður banka- stjóra Landsbankans en hefur starfað hjá bank- anum frá árinu 2009 á hinum ýmsu sviðum. Hún er með meistarapróf í rekstrarverkfræði frá Duke-háskóla í Bandaríkjunum og hefur brenn- andi áhuga á rekstri fyrirtækja og banka- starfsemi almennt. ,,Ég hef starfað á mörgum sviðum Landsbankans. Í upphafi var ég í lánavinnslunni þar sem ég vann með erlendu lánin eftir hrun, sem var mikill skóli. Þaðan fór ég í endurskipulagningu fyrirtækja á fyrirtækjasviði og svo áhættustýringu. Ég starfaði um árabil á verkefnastofu, sem vinnur þvert á deildir bankans. Þá fór ég aftur á fyrirtækjasvið þar til ég var ráðin á skrifstofu bankastjóra þar sem ég er núna. Það er gaman og áhugavert að koma svona víða við í bankanum og gefur manni góða yfirsýn á starfsemi bankans. Það sem er ekki síður dýrmætt er að kynn- ast fjölmörgu starfsfólki bankans vel. Dreymdi aldrei um að vera prinsessa Nanna Kristín ber það með sér að vera mikil félagsvera. Hún er jákvæð og einlæg og lætur greinilega ekkert stoppa sig. ,,Sem krakki var ég aldrei með drauma um að verða prins- essa eða ballerína heldur vildi ég verða endurskoðandi eins og pabbi og var ekki nema sjö ára þegar ég var farin að ræða um móður- og dótturfélög við hann. Ég uppgötvaði það hins vegar í Verslunarskólanum að bókfærsla var ekki eins skemmtileg og ég hélt þannig að hugmyndin um að verða endurskoðandi dofn- aði aðeins. Áhuginn á viðskiptum og fyrirtækjarekstri var samt mikill og ég ákvað því að fara á stærðfræðibraut til að halda sem flestum dyrum opnum. Á þessum tíma var Háskólinn í Reykjavík í Ofanleiti og það átti sinn þátt í að ég skráði mig í verkfræði þar, sem var þá í næsta húsi við Versló.“ Nanna Kristín kunni vel við sig í verkfræðinni. ,,Mig langaði að blanda hagnýtu verkfræðináminu við viðskipti og fjármál og það hvernig samfélagið keyrir áfram, og það var auðvelt í HR. Ég tók einnig þátt í félagslífinu, var varaformaður Stúdenta- félagsins á þeim tíma þegar skólinn var að flytja í Nauthólsvík- ina og ég fékk því að kynnast skólanum og stjórnendum hans vel.“ Nanna Kristín lauk B.Sc.-prófi í verkfræði árið 2009 og þegar „Gott að sækja í ólíka reynsluheima“ Nanna Kristín Tryggvadóttir rekstrarverkfræðingur er á því að konur séu konum bestar. Hún segir besta ráð sem hún hafi fengið vera það að sýna hugrekki og að það sé gott að leita í smiðju þeirra sem geta verið fyrirmyndir þínar í lífinu. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.