Morgunblaðið - 02.10.2020, Page 45

Morgunblaðið - 02.10.2020, Page 45
kom að framhaldsnámi stefndi hugurinn til Bandaríkjanna. „Ég fékk góð ráð þegar kom að því að sækja um í erlendum háskól- um. Vinkona mín, sem starfar hjá MIT-háskólanum í Banda- ríkjunum, ráðlagði mér að sækja um bæði í úrvalsgóðum há- skólum og hafa svo aðra háskóla til vara. Hún gat gefið mér faglega innsýn inn í hvernig mismunandi skólar velja nemendur og ráðin frá henni komu sér svo sannarlega vel. Ég á frænku í Bandaríkjunum sem benti mér á að sækja um Duke, sem er einn af betri háskólunum í Bandaríkjunum. Það festist í mér og varð því einn af skólunum sem ég endaði á að sækja um í.“ Þaðan lauk hún meistaraprófi í rekstrarverkfræði árið 2011. Nanna Kristín segir að hún hafi verið opin fyrir því að ílengjast úti, en síðan hafi örlögin tekið í taumana og hún ákveðið að koma aftur heim. „Ég fékk betri atvinnutækifæri heima, það var mikil kreppa í Bandaríkjunum á þessum árum og því erf- iðara að fá vinnu en oft áður. Svo saknaði ég bara fólksins míns hérna heima. Vinirnir skipta miklu máli Nanna Kristín segir mikilvægt fyrir sig að tengjast fólki sterkum vinaböndum. Sjálf sé hún í mörgum góðum vinahópum sem hittast reglulega. ,,Vinkonur mínar eru einstakar. Þær gegna alls konar stöðum, allt frá fyrir- tækjarekstri og pólitík, yfir í kennslu og hönnun og eru allar einstakar fyrir- myndir sem gott er að leita til um stórt sem smátt.“ Hún er á því að allir fari í gegnum áföll í lífinu og að hennar kynslóð sé opnari en margar aðrar fyrir því að leita sér aðstoðar við að vinna úr erfiðum málum, hvort sem það sé hjá sálfræðingi eða góðum vinum. ,,Það eru allir að ganga í gegnum eitthvað og þó að maturinn sé lagður á borð klukkan sjö á kvöldin og á yfirboðinu sé allt slétt og fellt þá þurfi flestir einhvern tímann á stuðningi að halda, jafnt í stóru sem smáu. Ég held einnig að í þessu samhengi sé gott að minna sig á að konur eru konum bestar. Öll viljum við ná árangri, gera líf okk- ar betra og innihaldsríkara. Þegar ein vinkona þín nær góðum árangri eða klárar flottan áfanga er gaman að samgleðjast henni og þú getur líka leitað í hennar smiðju og fengið ráð og ábendingar um mál sem eru á hennar sérsviði. Ég hef lært mik- ið af vinkonum mínum og vinum og sótt í þeirra reynsluheim þótt hann sé ólíkur mínum. Besta ráðið að vera hugrökk Hvað er besta ráðið sem þú hefur fengið í lífinu? ,,Ein vinkona mín sagði mér að vera hugrökk og sækjast eftir því sem mig langaði til. Hún spurði mig hvað væri það versta sem gæti gerst ef ég gerði slíkt? Að mínu mati kemur ekkert upp í hendurnar á okkur heldur þurfum við að vera hugrökk í smáu sem stóru. Hvað er þá versta ráð sem þú hefur fengið? ,,Að hægt sé að treysta öllu fólki. Ég er í eðli mínu með já- kvætt viðhorf gagnvart fólki en hef þurft að læra á reynslunni; að það eru ekki allir alltaf í mínu liði. Það er ágæt raunveru- leikatengin fólgin í þeirri reynslu. En ætli það sé samt ekki líka bara best að láta fólk alltaf njóta vafans. Fólk er alls konar.“ Mikilvægt að standa saman Nanna er einn af forsvarsmönnum góðgerðafélagsins Kon- ur eru konum bestar sem stendur árlega fyrir söfnun þar sem seldir eru bolir til styrktar góðu málefni. „Mér finnst mikilvægt að styðja við annað fólk í lífinu og við fjórar sem stöndum á bak við verkefnið eigum það allar sameiginlegt að vilja leggja okkar að mörkum til að gera samfélagið betra. Félagið var stofnað til að kveða í kút þennan gamla frasa um að konur séu konum verstar, því það er ekki raun- in. Ég held að konur séu í dag miklu duglegri við að hvetja hvor aðra og standa saman, enda er það miklu skemmtilegra. Í byrjun október mun- um við standa fyrir sölu á bolum þessa árs og í ár fer allur ágóði til styrktar starfsemi Bjarkahlíðar sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Fréttir af heimilisofbeldi hafa verið áberandi í ár og við vild- um styrkja fórnarlömb þess – sem langoftast eru konur og börn. Í fyrra styrkti félagið Kraft, félag ungs fólks með krabbamein, um 3,7 milljónir. Hvað finnst þér um vogarafl kvenna í viðskiptum? ,,Ég held að það sé ómetanlegt fyrir fyrirtæki að vera með fjölbreyttan hóp stjórnenda og starfsfólks. Þar hefur oft og tíð- um því miður hallað á konur í atvinnulífinu, en ég held þó að það sé að breytast. Ég sé alltaf fleiri og fleiri öflugar konur í for- svari fyrirtækja, en líka fleiri karlmenn sem skilja mikilvægi þess að atvinnulífið endurspegli á sem bestan hátt samsetningu okkar samfélags. Það er þó enn þannig að einungis um 11% þeirra sem stýra fjármagni í landinu eru konur, við þurfum að bæta úr því.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nanna Kristín er jákvæð og ein- læg í eðli sínu. „Það er þó enn þann- ig að einungis um 11% þeirra sem stýra fjármagni í landinu eru konur, við þurfum að bæta úr því.“ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 MORGUNBLAÐIÐ 45 Hágæða hárvörur Sápa býður upp á landsins mesta úrval af hágæða hárvörum. Kíktu við hjá okkur á Laugaveginum og fáðu aðstoð frá fagfólki sem hjálpar þér að velja vörur sem henta þínu hári. Við erum 5 ára um þessa mundir og bjóðum í tilefni þess 20% afslátt frá 2. til 8. október. Sápa • Laugavegi 61 • 101 Reykjavík Sími: 511 1141 • sapa@sapa.is • sapa.is 20% 5 ára afmælisafsláttur 2. til 8. október Sápa netverslun Sápa er vinsæl og notendavæn netverslun. Það er þægilegt og öruggt að versla á netinu. Við bregðumst fljótt við öllum fyrirspurnum og sendum vörur um allt land. Þeir sem versla fyrir 7.000 kr. eða meira fá fría heimsendingu. Skoðaðu úrvalið á sapa.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.