Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 46

Morgunblaðið - 02.10.2020, Side 46
F yrirsætan og listakonan Vera Hilmarsdóttir hefur dvalið í Berlín undanfarin fjögur ár ásamt kærastanum sínum, Stef- áni Má Högnasyni. Þau fluttu tímabundið til landsins í mars á þessu ári til að eignast fyrsta barnið sitt, sem þau vildu að fæddist á Íslandi. Vera útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með gráðu í myndlist árið 2018 og hefur unnið sem fyrirsæta meðfram því að skapa list á und- anförnum árum. Lífið snýst um Miró „Þessa dagana snýst lífið meira eða minna um litla Miró okkar. Nú er boltinn þó rólega byrjaður að rúlla aftur eftir óléttutímabilið og fyrstu mánuði eftir fæðinguna. Ég er nýlega byrjuð að teikna og mála aftur. Ég hlakka til að komast betur í gírinn og skapa meira eftir því sem tíminn líður. Það er búið að vera gott að vera heima í faðmi fjölskyldunnar. Við erum búin að búa hjá mömmu Stefáns frá því við komum úr sóttkví í apríl og hjálp hennar hefur verið ómetanleg. Ég segi að nýbakaðir foreldrar ættu alltaf að hafa afa og ömmur inni á heimilinu ef þeir geta, það hjálpar svo mikið að fá smá pásu þegar þau vilja halda á og knúsa litlu börnin. En við stefnum á að fara aftur til Berlínar í byrjun næsta árs.“ Vera segir að þau hafi farið minna um landið en þau eru vön. „Við kíktum þó með Miró í fjölskylduútilegu á Laugalandi og einnig í Fossatún yfir helgi þar sem við vorum heppin með veður. En í gegnum árin hef ég ferðast þó nokkuð í fyrir- sætuverkefnum, farið á og inn í jökla, farið mörgum sinnum í Reynisfjöru og á helstu hverasvæði landsins, svo eitthvað sé nefnt.“ Hvað getur þú sagt mér um uppáhalds- staðina þína? „Uppáhaldsstaðirnir mínir á Íslandi eru fjöl- skyldubústaðurinn okkar í Grímsnesi sem mamma og stjúppabbi minn eiga, hann er svo kósý og það er alltaf nærandi að komast í nátt- úruna og heyra ekkert nema í vindinum, fugl- unum og læknum sem rennur við bústaðinn. Svo á ég mér uppáhaldsstaði í Evrópu og Asíu, sem eru Provence í Suður-Frakklandi og Taí- land, þangað gæti ég ferðast aftur og aftur.“ Gerir bæði teikningar og málverk Hvað getur þú sagt mér um listina og verkin þín? „Verkin mín skiptast í teikningar og málverk, hvor tveggja innblásin af hugarástandi sem er oftast ró, en ég trúi því að það sé það sem við flest leitum að; hugarró. Ég er mjög hrifin af línunni og flæðandi hreyfingunni sem fylgir henni í verkum mínum. Oftast má sjá portrett í verkunum en mér finnst það skemmtilegt form og við mannfólkið leitum líka mikið í andlitið, en það má vel vera að fyrirsætustarfið hafi þar áhrif.“ Ljósmynd/Cristina Salgar Saieh Ljósmynd/Cristina Salgar Saieh Hefur búið í Berlín undan- farin fjögur ár Vera Hilmarsdóttir hefur verið að gera falleg listaverk í Berlín. Hún er tímabundið á landinu með fjölskyldu sinni og hefur komið listaverkunum vel fyrir hér heima hjá tengdaforeldrunum. Elínrós Líndal |elinros@mbl.is Vera, Miro og Stefán Már á góðri stundu. Vera Hilmarsdóttir listakona starfar sem fyrirsæta meðfram því að skapa list. Kisurnar Mia og Mona eru ennþá í Berlín. List á heima í eldhúsum rétt eins og annars staðar á heimilinu. Verkin hennar Veru skiptast í teikningar og málverk. Listaverkin hennar Veru eru einföld og falleg og passa vel inn á öll heimili. Listaverk Veru prýðir heimili tengda- foreldra hennar þar sem fjölskyldan býr nú tímabundið á landinu. Listaverkin hennar Veru eru litrík og skemmtileg. 46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.