Morgunblaðið - 02.10.2020, Page 46
F
yrirsætan og listakonan Vera
Hilmarsdóttir hefur dvalið í
Berlín undanfarin fjögur ár
ásamt kærastanum sínum, Stef-
áni Má Högnasyni. Þau fluttu
tímabundið til landsins í mars á
þessu ári til að eignast fyrsta
barnið sitt, sem þau vildu að
fæddist á Íslandi.
Vera útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands
með gráðu í myndlist árið 2018 og hefur unnið
sem fyrirsæta meðfram því að skapa list á und-
anförnum árum.
Lífið snýst um Miró
„Þessa dagana snýst lífið meira eða minna
um litla Miró okkar. Nú er boltinn þó rólega
byrjaður að rúlla aftur eftir óléttutímabilið og
fyrstu mánuði eftir fæðinguna. Ég er nýlega
byrjuð að teikna og mála aftur. Ég hlakka til að
komast betur í gírinn og skapa meira eftir því
sem tíminn líður.
Það er búið að vera gott að vera heima í faðmi
fjölskyldunnar. Við erum búin að búa hjá
mömmu Stefáns frá því við komum úr sóttkví í
apríl og hjálp hennar hefur verið ómetanleg. Ég
segi að nýbakaðir foreldrar ættu alltaf að hafa
afa og ömmur inni á heimilinu ef þeir geta, það
hjálpar svo mikið að fá smá pásu þegar þau vilja
halda á og knúsa litlu börnin. En við stefnum á
að fara aftur til Berlínar í byrjun næsta árs.“
Vera segir að þau hafi farið minna um landið
en þau eru vön.
„Við kíktum þó með Miró í fjölskylduútilegu á
Laugalandi og einnig í Fossatún yfir helgi þar
sem við vorum heppin með veður. En í gegnum
árin hef ég ferðast þó nokkuð í fyrir-
sætuverkefnum, farið á og inn í jökla, farið
mörgum sinnum í Reynisfjöru og á helstu
hverasvæði landsins, svo eitthvað sé nefnt.“
Hvað getur þú sagt mér um uppáhalds-
staðina þína?
„Uppáhaldsstaðirnir mínir á Íslandi eru fjöl-
skyldubústaðurinn okkar í Grímsnesi sem
mamma og stjúppabbi minn eiga, hann er svo
kósý og það er alltaf nærandi að komast í nátt-
úruna og heyra ekkert nema í vindinum, fugl-
unum og læknum sem rennur við bústaðinn.
Svo á ég mér uppáhaldsstaði í Evrópu og Asíu,
sem eru Provence í Suður-Frakklandi og Taí-
land, þangað gæti ég ferðast aftur og aftur.“
Gerir bæði teikningar og málverk
Hvað getur þú sagt mér um listina og verkin
þín?
„Verkin mín skiptast í teikningar og málverk,
hvor tveggja innblásin af hugarástandi sem er
oftast ró, en ég trúi því að það sé það sem við
flest leitum að; hugarró. Ég er mjög hrifin af
línunni og flæðandi hreyfingunni sem fylgir
henni í verkum mínum. Oftast má sjá portrett í
verkunum en mér finnst það skemmtilegt form
og við mannfólkið leitum líka mikið í andlitið, en
það má vel vera að fyrirsætustarfið hafi þar
áhrif.“
Ljósmynd/Cristina Salgar Saieh
Ljósmynd/Cristina Salgar Saieh
Hefur búið í
Berlín undan-
farin fjögur ár
Vera Hilmarsdóttir hefur verið að gera falleg listaverk í Berlín.
Hún er tímabundið á landinu með fjölskyldu sinni og hefur
komið listaverkunum vel fyrir hér heima hjá tengdaforeldrunum.
Elínrós Líndal |elinros@mbl.is
Vera, Miro og Stefán
Már á góðri stundu.
Vera Hilmarsdóttir
listakona starfar sem
fyrirsæta meðfram
því að skapa list.
Kisurnar Mia
og Mona eru
ennþá í Berlín.
List á heima í eldhúsum rétt eins
og annars staðar á heimilinu.
Verkin hennar Veru skiptast
í teikningar og málverk.
Listaverkin hennar Veru eru
einföld og falleg og passa
vel inn á öll heimili.
Listaverk Veru prýðir heimili tengda-
foreldra hennar þar sem fjölskyldan
býr nú tímabundið á landinu.
Listaverkin hennar Veru
eru litrík og skemmtileg.
46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020