Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2020 Ertu með fæðuóþol? Mikilvægt er að melta fæðuna vel svo við getum tekið upp og nýtt næringu fæðunnar betur og fengið þannig meiri orku ásamt því að losna við bæði meltingarónot og ýmiskonar fæðuóþol. ● Hentar vel gegn ýmiskonar fæðuóþoli ● Styður við meltingu á glúteini, laktósa og mjólkurpróteinum. ● Hentar allri fjölskyldunni ● Viðurkennt af Autism Hope Aliance Fæst í apótekum, heilsuhúsum og flestum stórmörkuðum „Ótrúlegt en satt þá fann ég mun frá fyrsta degi. Á skömmum tímaminnkuðu öll einkenni fæðuóþolsins til muna og mörg jafnvel hurfu. Svo hafa aukakílóin einnig farin að losa takið og greinilegt að Digest Spectrum verður hluti af lífi mínu áfram“. Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, kennari. Reynslusaga: Spectrum Meltingarónot, orkuleysi og þreyta orsakast oft af vöntun eða truflun á ensímframleiðslu líkamans. Digest Vikan var að miklu leyti undir-lögð af baráttunni um brauðið,en framan af bar þar mest á deilum vinnuveitenda og verkalýðs- hreyfingar um lífskjarasamningana svonefndu. Verkó með Drífu Snædal ASÍ-forseta í fararbroddi gerði ófrá- víkjanlega kröfu um að við þeim mætti ekki hrófla, hvað sem öllum heimsfaraldri liði hefðu forsendur þeirra ekkert breyst. Aðeins væri um kreppu í ferðaþjónustu að ræða. Vinnuveitendur með Halldór Benja- mín Þorbergsson í broddi fylkingar voru ekki alveg jafnsannfærðir og fannst eitt og annað fleira hafa hnik- ast til í efnahags- og atvinnulífi síðan þeir voru gerðir. Því væri tómt mál að tala um launahækkanir um komandi áramót ofan á hinar fyrri, en innan Samtaka atvinnulífsins (SA) voru uppi raddir um að segja samningnum upp vegna forsendubrests. Kórónuveirusmitum fjölgaði áfram, en þó voru menn ekki á eitt sáttir um ástæðurnar. Páll Matthíasson land- spítalaforstjóri lét í ljós áhyggjur af auknu álagi á spítalann, þó hann teldi að hann hefði yfir nægum mannafla að ráða til þess að takast á við fleiri sjúk- linga, veika af veirunni. Hann von- aðist jafnframt til þess að lægra hlut- fall smitaðra þyrfti á sjúkrahúsinn- lögn að halda en í fyrstu bylgjunni í vor. Órói var í eldstöð undir Bárðarbungu á Vatnajökli á sunnudag, kviku- streymi og tilheyrandi jarðskjálftar. Varð svo kyrrt um sinn.    Ríkisstjórnin fundaði stíft með for- svarsmönnum aðila vinnumarkaðar- ins og reyndi að bera klæði á vopnin. Allt kom fyrir ekki og í ljós kom að árangursríkara væri að bera fé á vopnin úr ríkissjóði. Gylfi Arnbjörnsson, fyrrverandi for- seti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), lét þau orð falla að sér hugnaðist ekki orðræða verkalýðsforystunnar í deil- um á vinnumarkaði og taldi hana ekki til þess fallna að greiða fyrir lausn þeirra. Fyrir þetta uppskar hann óbótaskammir verkalýðshreyf- ingarinnar, sem taldi miðaldra körl- um, stéttsvikurum og flugumönnum auðvaldsins hollast að þegja. Starfsmenn Faxaflóahafna töldu far- þega sem komu með skemmti- ferðaskipum í sumar. Þeir reyndust hafa verið 1.346, sem hingað komu með sjö skipum. Í fyrra komu 190 skemmtiferðaskip til Reykjavíkur og með þeim 187.284 farþegar. Það er 99% samdráttur. Sama dag var sagt frá því að samkvæmt útreikningum reiknimeistara Creditinfo hefði fram- úrskarandi fyrirtækjum í ferðaþjón- ustu fækkað. Hlutfallið var þó 100% um borð í línu- bátnum Valdimar GK frá Grindavík. Þar reyndust allir 14 skipverjar smit- berar. Þrátt fyrir nokkra fjölgun smita taldi Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn- ir ekki ástæðu til þess að herða að- gerðir að svo stöddu. Hins vegar sagði hann tryggast að halda núver- andi sóttvörnum gagnvart komu- farþegum og taldi sennilegt að nú- verandi varúðarráðstafanir innanlands giltu næstu mánuði. Reykjavíkurborg kynnti áform um að fjölga göngu- og vistgötum í mið- borginni, en meðal annars á hið skuggsæla Hafnarstræti að verða göngugata. Sjálfstæðismenn í borg- arstjórn voru jákvæðir gagnvart þeim tillögum meirihlutans, enda kom á daginn að þar voru að stofni gömul áform íhaldsins frá liðinni öld á ferðinni.    Ríkisstjórnin kynnti tillögur til þess að liðka fyrir deilum á vinnumarkaði, sem fólu m.a. í sér skattaívilnanir til fjárfestinga, sem Samtök atvinnulífs- ins telja að geti skilað tugum millj- arða í aukna atvinnuvegafjárfestingu á næstu árum. Við svo búið hætti SA við atkvæðagreiðslu um slit lífs- kjarasamninganna. Tillögur ríkisstjórnarinnar voru átta aðgerða pakki sem kynntur var af Katrínu Jakobsdóttur forsætisráð- herra. „Allir vinna“-átakið var fram- lengt, tryggingagjald var lækkað tímabundið, fjárstuðningur til rekstr- araðila vegna kórónuáfalla, fyrr- nefndar skattaívilnanir vegna fjár- festinga, aukin áhersla á nýsköpun og matvælaframleiðslu, úrbætur í skipulags- og byggingarmálum, um- bætur á lífeyriskerfi og frumvörp til stuðnings lífskjarasamningnum. Áfram héldu að greinast kórónu- veirusmit í tugatali og varð Ísland Norðurlandameistari í smithlutfalli með 138,7 ný smit á hverja 100 þús- und íbúa. Að hluta til má rekja hið háa hlutfall til dugnaðar við skimun. Íslenska auglýsingastofan varð gjaldþrota.    Ekki einn einasti áhrifavaldur reynd- ist vera á lista kínversks persónu- njósnafyrirtækis, sem lekið var það- an. Þar mátti þó finna nöfn 411 Íslendinga. Talið er að alls kunni um 4.000 Íslendingar að vera á listanum, en erfiðlega hefur reynst að dirka öll nöfnin upp, þar sem skráin reyndist löskuð. Fjölmargir íslenskir áhrifa- menn voru einnig sármóðgaðir yfir að hafa ekki vakið áhuga Kínverja. Ýmislegt bendir til þess að listinn eigi uppruna í skrám ætluðum til þess að varast peningaþvætti, en alls eru þar nöfn um 2,4 milljóna manna í velflestum ríkjum heims. Ragnar Jónasson rithöfundur komst í efsta sæti metsölulista Þýskalands með þýðingu á bókinni Mistur. Isavia, sem fyrir nokkrum misserum áætlaði að verða stærsta fyrirtæki á Íslandi, tapaði 7,6 milljörðum á fyrri hluta árs, en tekjusamdrátturinn nam 97%. Fyrirtækið sagði í tilkynn- ingu að áhrifa kórónuveirunnar gætti nokkuð í afkomutölum þess, en það rekur meðal annars Keflavíkur- flugvöll. Sveinbjörn Indriðason for- stjóri kvaðst þó bjartsýnn. 293 manns misstu vinnuna í átta hóp- uppsögnum í september. Sjö fyr- irtækjanna eru í ferðaþjónustu. Konum í prestastétt hefur fjölgað mjög á undanförnum árum og er svo komið að kynjahlutföll í klerkastétt eru nánast jöfn. Margir Íslendingar vöktu til þess að fylgjast með fyrstu kappræðunum í aðdraganda forsetakosninga í Bandaríkjunum, sem fram fara í næsta mánuði. Þær þóttu lítil skemmtun og hvorugum frambjóð- anda, Donald Trump eða Joe Biden, til sóma. Flestir voru þó á því að um- ræðustjórnandinn Chris Wallace hefði verið sá sem tapaði kappræð- unum.    Alþingi kom saman á nýjan leik, fjár- lagafrumvarpið var kynnt og for- sætisráðherra flutti stefnuræðu sína, en að henni lokinni fóru fram hefð- bundnar umræður um hana. Var mál manna að risið á þeim umræðum hefði ekki verið hærra en í kappræð- unum vestanhafs, þó menn hafi al- mennt látið skammirnar eiga sig. Samkvæmt nýrri fjármálaætlun verður afkoma ríkissjóðs neikvæð um 264 milljarða á næsta ári en um 80 milljarða árin 2021 til 2025. Ragn- ar Árnason hagfræðiprófessor telur þá skuldasöfnun mikið áhyggjuefni, en lítið má út af bera í efnahagsend- urreisn að faraldrinum loknum til þess að í óefni stefni. Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra sagði lyk- ilatriði að örva hagvöxt og verðmæta- sköpun með öllum ráðum þegar faraldurinn væri genginn hjá. Þrátt fyrir að útgjöld ríkissjóðs hafi aukist ógnvænlega að undanförnu er bót í máli að fyrstu níu mánuði hefur sala vínbúða hins opinbera aukist um tæp 15%. Ljóst er að hinar drekkandi stéttir láta sitt ekki eftir liggja við endurreisnarstarfið. Donald Trump Bandaríkjaforseti og Melania forsetafrú greindust með kórónuveiruna. Forsetinn brá ekki lit.    Gylfi Magnússon, prófessor og fyrr- verandi efnahags- og viðskiptaráð- herra, telur skynsamlegt í stöðunni að reka ríkissjóð með halla næstu ár. Þar saki heldur ekki að vextir séu í sögulegu lágmarki. Margir töldu víst að á föstudag yrði gripið til hertra sóttvarna, en af því varð þó ekki. Fram kom þó að Þór- ólfur sóttvarnalæknir væri með nýtt minnisblað til ráðherra í smíðum og hermt að hann væri kominn á fremsta hlunn með að leggja til hert- ar aðgerðir. Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra staðfesti hins vegar að fyrirkomulag við komu til landsins yrði óbreytt fram að fullveldisdeg- inum 1. desember. Þingsetning og skuldsetning Gengið til guðsþjónustu fyrir þingsetningu. Morgunblaðið/Eggert 27.9.-2.10. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.