Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Blaðsíða 28
Á skútusiglingu með SigurðiJónssyni í Jökulfjörðum fyr-ir nokkrum árum heyrði
Óskar Páll fyrst af ísfirska ræð-
aranum Veigu Grétarsdóttur, sem
hét Veigar áður en hún fór í kynleið-
réttingu. Óskar lagði við hlustir og
fannst saga hennar afar áhugaverð.
„Svo stuttu síðar er ég staddur í
sjoppu á Ísafirði þegar inn kemur
kona í kajakgalla og ég átta mig strax
á því að þarna var Veiga mætt. Við
tókum spjall saman. Svo líður tíminn
og tveimur árum síðar frétti ég að
Veiga ætlaði að róa í kringum landið,
á móti straumnum, fyrst allra til að
fara hringinn rangsælis,“ segir Óskar
og segir þá strax hafa kviknað hug-
mynd að heimildamynd.
„Ég hringdi í hana og hún var eig-
inlega strax til í þetta. Ég hafði þá
heyrt hennar persónulegu sögu, sem
er auðvitað líka stórkostlegt ferða-
lag,“ segir Óskar.
„Ég sá fyrir mér að það væri tilvalið
að spyrða þetta saman í eitt stórt ferða-
lag; hennar persónulega ferðalag og
þessa táknrænu ferð í kringum landið.
Útkoman er ein stór ferð á móti
straumnum, í mynd,“ segir Óskar en
myndin var frumsýnd um helgina í Bíó
Paradís.
Óskar segir Veigu hafa verið tilbúna
til að opna sig og segja frá erfiðri veg-
ferð sem kynleiðrétting óhjákvæmi-
lega er, líkamlega og ekki síst andlega.
„Hún er mjög opin með þetta og fyr-
ir vikið tekur fólk henni ótrúlega vel,
sem kom mér skemmtilega á óvart.
Fólk hrífst mjög með henni, enda notar
hún mikið húmor þegar hún segir frá.
Hún talar hreint út um hlutina.“
Veiga er góð fyrirmynd
Vegferð Óskars í átt að kvikmynda-
gerð hófst fyrir margt löngu.
„Ég hef alltaf verið að vinna við
skapandi greinar,“ segir Óskar, sem
hóf feril sinn átján ára sem tækni-
maður hjá RÚV.
„Ég fór mjög fljótlega í dagskrár-
gerð og þaðan í upptökur og tónlist.
Ég rak stúdíó Sýrland og tók upp
fjöldann allan af plötum fyrir Bubba,
Sálina, Mannakorn og fleiri lista-
menn. Ég flutti svo til Bretlands þar
sem ég bjó í áratug og vann sem upp-
tökustjóri og lagahöfundur hjá Sony.
Í lokin var ég farinn að vinna mikið
við sjónvarp, til dæmis við bresku
Idol-þættina sem urðu kveikjan að
American Idol. Þá fór ég að pæla
meira í myndmálinu og það kveikti í
mér. Ég hef alltaf verið með ljós-
myndadellu þannig að myndavélar
hafa alltaf fylgt mér. En þarna fer ég
að afla mér þekkingar og fer á ýmis
námskeið og áhuginn á kvikmynda-
og heimildamyndagerð kviknar fyrir
alvöru. Ég skipti því alveg um vett-
vang fyrir um átta árum og fór úr
tónlistinni yfir í myndvinnslu,“ segir
Óskar sem er enginn nýgræðingur í
bransanum og hefur tekið að sér bæði
stærri og smærri verkefni.
„Þetta er þriðja stóra heimildar-
myndin sem ég vinn að en ég hef áður
Þriggja mánaða útilega
Heimildamynd Óskars Páls Sveinssonar, Á
móti straumnum, er nú komin í bíó. Þar segir
frá vegferð Veigu Grétarsdóttur, sem reri rang-
sælis um Ísland en hafði áður farið í aðra og
persónulegri vegferð; að leiðrétta kyn sitt.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2020
LESBÓK
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is
Á LÍFI Íslandsvinirnir og málmhausarnir í Iron Maiden
senda frá sér nýja tvöfalda tónleikaskífu 20. nóvember
næstkomandi, sem heitir hvorki meira né minna en
„Nights Of The Dead, Legacy Of The Beast: Live In
Mexico City“. Téður Legacy-túr var í algleymingi þegar
heimsfaraldurinn skall á og Steve Harris, bassaleikari
Maiden, segir menn hafa orðið mjög vonsvikna enda átti
bandið eftir að heimsækja mörg lönd. Í stað þess að
gráta Björn bónda fóru þeir félagar að hlusta á upp-
tökur frá túrnum með þessum ánægjulegu afleiðingum.
Haft er eftir Harris að hann sé mjög ánægður með út-
komuna og margir ættu að geta notið þessa minnisvarða
um heimstúrinn, ekki síst laga sem aldrei hafa komið út
á tónleikaplötu áður.
Tónleikaplata Maiden
Steve Harris
bassaleikari.
AFP
EIN Gítarleikarinn og söngkonan Nancy Wilson, jafnan
kennd við hljómsveitina Heart, vinnur nú að sinni
fyrstu sólóplötu, 66 ára að aldri. „Ég hef margoft verið
spurð hvenær ég ætli að senda frá mér sólóplötu og
hér hafið þið svarið: Núna,“ segir hún í fréttatilkynn-
ingu útgefanda síns, Carry On Music (vinsamlega ekki
rugla henni saman við gömlu bresku gamanmynd-
irnar). „Þar sem ekki hefur verið hægt að túra
hef ég verið langdvölum heima og þar af
leiðandi haft rúman tíma til að semja
tónlist,“ bætir Wilson við en fyrsta
smáskífan af plötunni verður ábreiða
af lagi Bruce Springsteens, The Ris-
ing.
Loksins sólóplata frá Nancy Wilson
Nancy Wil-
son rokkar
fyrir allan
peninginn.
AFP
Dimabag Darrell lést árið 2004.
Glys frá
Pantera?
ENDURLIT Áður en grúvtröllin í
Pantera slógu í gegn sem slík á
hinni goðsagnakenndu plötu
Cowboys From Hell árið 1990 voru
þau allt öðruvísi vaxið málmband,
það er meira í ætt við glys og gleði.
Söngvari bandsins á þeim tíma,
Terry Glaze, viðraði þá hugmynd á
hlaðvarpi sem tileinkað er Pantera
á dögunum að gaman yrði að end-
urútgefa þessar fyrstu plötur og
deila með heiminum. Hann á þó
ekki réttinn sjálfur og þar sem
bræðurnir Darrell, síðar Dimebag,
og Vinny Paul Abbott eru báðir
fallnir frá sé boltinn hjá föður
þeirra, Jerry Abbott, og bassaleik-
aranum Rex Brown. Glaze hefur
ekki enn rætt málið við þá.