Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 2020 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði. Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Borðstofuborð CALLIGARIS ALPHA DESALTO SKIN Hönnun: Marco Acerbis NAVER COLLECTION GM 9900 Hönnun: Nissen & Gehl NAVER COLLECTION PLANK Hönnun: Nissen & Gehl PBJ BOW Hönnun: Michael H. Nielsen Aðalkynnar Stundarinnar okkar í vetur eru Helena Lapas, Imani Ósk Biallo, Kári Hlíðberg og Tómas Aris Dimitropoulos sem öll eru að stíga sín fyrstu skref í sjón- varpsþáttagerð. Fjöldi annarra krakka kemur einnig fram í þættinum sem er byggður upp af fjölbreyttum smáseríum. Má þar nefna Víkingaþrautina, sem er leikin þáttasería um fjóra krakka sem eru að vinna skólaverk- efni á Þjóðminjasafninu þegar þau leysa óvart æva- fornan víking úr álögum; Frímó sem er fjörug spurn- inga- og þrautakeppni; Jógastund, þar sem krakkar gera einfaldar jógaæfingar sem áhorfendur heima í stofu geta gert með og Stundina okkar, þar sem nokkrir krakkar búa til rokkhljómsveit og æfa og flytja íslenskt rokklag og semja sitt eigið. Einnig má nefna smáseríurnar Matargat, Dans og Hugarflug, auk þess sem fleiri smáseríur bætast við þegar líður á veturinn. Ljósmynd/RÚV Börn áfram með Stundina Stundin okkar hefur göngu sína á ný á RÚV í dag kl. 18. Eins og síðasta vetur eru það eingöngu krakkar sem stýra þessum elsta sjónvarpsþætti landsins. Umsjónarmenn Stund- arinnar okkar í vetur. Eftirlitslaus börn í útlöndum voru mikið áhyggjuefni P.P.S., sem skrifaði Velvakanda í byrjun október 1970. „Ég get ekki ann- að en furðað mig á því að ís- lenzkir foreldrar skuli leyfa ung- um börnum sínum að fara eftirlitslaus til útlanda í sum- arleyfum sínum,“ segir í bréfinu. „Það er því miður allt of oft svo, eins og margir munu hafa komizt að raun um á þessu hausti, að unglingarnir hafa ein- ungis kynnst fólki, sem stendur e.t.v. einu stigi eða svo ofan við sora og dreggjar þess þjóðfélags, þar sem þeir hafa dvalið.“ Sumir foreldrar verði hissa þegar þau komist að því að ensk- an eða danskan, sem börnin hafi lært, sé ekkert lík því máli sem þau kunnu fyrir, heldur „slang, hlaðið klúryrðum og rudda- fengnum orðum, borið fram með hætti ómenntaðs undir- heimalýðs og undirmálsfólks“. Telur hann að sumir, sem komi heim á þessu hausti, „nái sér seint eða aldrei eftir það, sem þeir hafa komist í kynni við, t.d. í Kaupmannahöfn“. Umsjónarmaður Velvakanda bregst við og þykir P.P.S. „heldur svartsýnn og þunglyndur yfir þessu“, persónulega viti Velvak- andi til að margir unglingar hafi „virkilega forframazt á einu sumri í útlöndum“. GAMLA FRÉTTIN Eftirlitslaus börn Bréfritari óttaðist að sumardvöl í sollinum í Kaupmannahöfn væri mann- skemmandi fyrir íslensk ungmenni og sum myndu seint eða aldrei ná sér. Morgunblaðið/Ómar ÞRÍFARAR VIKUNNAR Danny DeVito leikari Snorri Magnússon form. Landssambands lögreglumanna Jamal Khashoggi blaðamaður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.