Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Side 15
4.10. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
setningin rétt eftir að tilkynnt var um af-
drifaríkar ákvarðanir um komur til landsins.
Ég hef verið ráðherra í fjögur ár án þess að
lenda í slíkum uppákomum og mátti kannski
búast við að það gerðist fyrr eða síðar.
En ég get svo sem ekki kvartað, þetta kom
við mig en við þekkjum alveg dæmi um mun
persónulegri gagnrýni. Mér hefur þótt það
mín gæfa í stjórnmálum að ég kom tiltölulega
hratt inn í þau, þannig að ég hef getað verið ég
sjálf, án einhvers pólitísks farangurs úr fortíð.
Ég finn að fólki finnst
það þægilegt að ég sé
ekki að setja mig í eitt-
hvert hlutverk stjórn-
málamannsins, en ég
skil líka betur núna að
sumir gera það. Það er
bara ekki mín leið. Ég
ætla að vera ég sjálf.
En það er snúið að kalla eftir mann-
eskjulegum manneskjum í pólitík, en leyfa
þeim svo ekki að vera manneskjur. Gleymum
því ekki að það er stór hluti þess að vera mann-
eskja, að gera mistök, vera taktlaus, hafa ekki
alltaf hugsað hlutina til enda.“
Finnst þér þú verða fyrir áreiti eða ósann-
gjarni gagnrýni?
„Ég get ekki kvartað yfir minni stöðu eða
tækifærum sem ég hef fengið. En jú, stundum
finnst mér ágengnin keyra úr hófi. Og margir
stjórnmálamenn sem þurfa að þola það marg-
falt á við mig.“
Kona í forystu
Heldurðu að konur verði frekar fyrir því en
karlar?
„Já. Þó ég vilji ekki kvarta, þá vil ég ekki
heldur vera meðvirk og láta eins og það sé al-
veg eins að vera kona í pólitík og karl. Það er
það ekki.“
Finnst þér talað niður til þín?
„Stundum, já. Stundum meðvitað, en oftar
ómeðvitað. En ég lít bara svo á að konur sem
voru á undan mér, þær tóku á sig stærri öldur
en ég. Sjálf vil ég leggja mitt af mörkum til
þess að sú ágjöf verði minni og minni fyrir
þær sem á eftir mér koma.
En ég get ekki sagt að þetta sé allt eins og
það á að vera, af því að það hélt ég þegar ég
var að byrja í pólitík. Ég hafði ekki fundið fyr-
ir því og hélt að kvennabaráttan væri mikið
fyrir bí. Ég fór ekki í pólitík af því ég væri svo
mikill femínisti eða vildi ryðja veginn fyrir
aðrar konur. Ég fór í pólitík af því ég hafði
áhuga og skoðanir á
stjórnmálum. En síðan
hef ég áttað mig á að
það er hluti af starfinu.
Og það er ótrúlega gef-
andi að finna að maður
sé að gefa fólki – bæði
ungu fólki og konum –
kraft til þess að láta
vaða. Og á því græðum við öll, því þetta er fjöl-
breytt þjóðfélag og það á að endurspeglast á
þingi og í stjórnunarstöðum sem annars stað-
ar. Það er alls konar fólk, sem er vel treyst-
andi til ábyrgðar, það er ekki nein ein týpa.“
Já, talandi um það: Nú er tæpt ár til kosn-
inga og tímarnir fordæmalausir. Þú situr hér í
ráðuneyti í Reykjavík með útsýni upp á
Skaga, út á Snæfellsnes og þitt víðfeðma kjör-
dæmi þar að baki. Þú ert ráðherra og varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, svo seg mér: Ætl-
arðu að fara aftur fram í Norðvestur-
kjördæmi, og ætlarðu að sækjast eftir fyrsta
sæti?
„Já, auðvitað ætla ég að fara fram í mínu
heimakjördæmi. Hvað sætaskipanina varðar
ætla ég að hlusta á flokksmenn um það. Þar
skiptir máli hvað kemur kjördæminu best, en
líka hvað gagnast flokknum best. Sem vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins verð ég að
hugsa um það hvað kemur flokknum best,
heildinni. Eins og þú segir, þá er ár til kosn-
inga, þetta er mál sem ég þarf að hugsa betur
og það er tími til þess.“Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
’Já, auðvitað ætla ég aðfara fram í mínu heima-kjördæmi. Hvað sætaskip-anina varðar ætla ég að hlusta
á flokksmenn um það. Það á
enginn neitt sæti á lista.“
Í baráttu við COVID-19 býður
Donnamaska, grímur og andlits-
hlífar sem eru gæða vara frá DACH
og notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða
sem leika
Heildsöludreifing