Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2020 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.45 Greppikló 09.10 Mæja býfluga 09.20 Adda klóka 09.45 Zigby 10.00 Mia og ég 10.20 Lína Langsokkur 10.45 Latibær 11.10 Lukku Láki 11.35 Ævintýri Tinna 12.00 Nágrannar 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.05 Nágrannar 13.25 Nágrannar 13.50 Impractical Jokers 14.10 Supernanny 14.55 Kviss 15.45 Kevin McCloud’s Ro- ugh Guide to the Fut- ure 16.50 60 Minutes 17.40 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.05 Eurogarðurinn 19.30 Who Wants to Be a Millionaire 20.25 The Sandhamn Mur- ders 21.55 The Salisbury Poison- ings 22.45 Wentworth 23.35 Shameless ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Sögur frá Grænlandi 20.30 Hvítir mávar – þáttur 4 Endurt. allan sólarhr. 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 21.00 Blönduð dagskrá 22.30 Gegnumbrot 20.00 Mannamál – sígildur þáttur (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Eldhugar: Sería 2 21.30 Sólheimar 90 ára Endurt. allan sólarhr. 11.00 The Block 12.30 Dr. Phil 13.15 Dr. Phil 14.00 Dr. Phil 14.45 Carol’s Second Act 15.10 90210 16.50 The King of Queens 17.10 Everybody Loves Ray- mond 17.35 This Is Us 18.20 Með Loga 19.15 Hver ertu? 20.00 The Block 21.20 Cobra 22.15 Billions 23.10 Love Island 00.05 Blue Bloods 01.45 Seal Team 02.30 Condor 03.15 Síminn + Spotify 06.55 Bæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Fríkirkj- unni í Hafnarfirði. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 12.40 Veðurfregnir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Glans. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu: Reyk- holtshátíð 2020 – I. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Píanógoðsagnir. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Orð um bækur. 20.35 Gestaboð. 21.30 Fólk og fræði. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Tulipop 07.19 Kalli og Lóa 07.30 Klingjur 07.41 Lalli 07.48 Friðþjófur forvitni 08.10 Nellý og Nóra 08.17 Robbi og Skrímsli 08.39 Hæ Sámur 08.46 Unnar og vinur 09.09 Flugskólinn 09.31 Múmínálfarnir 09.53 Millý spyr 10.00 Hundalíf 10.05 Treystið lækninum 11.00 Silfrið 12.10 Á nýjum stað 13.35 Martin Clunes: Eyjar Ástralíu 14.25 Sænskar krásir 14.35 Fólkið mitt og fleiri dýr 15.25 Guðrún Sóley grillar 15.35 Poirot – Spilin á borðið 17.10 Landakort 17.20 Menningin – samantekt 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Lífsins lystisemdir 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir á sunnudegi 19.40 Veður 19.55 Landinn 20.40 Ráðherrann 21.35 Snilligáfa Einsteins 22.25 Evrópskir bíódagar: Aus dem Nichts 22.30 Aus dem Nichts 00.10 Dagskrárlok 12 til 16 Þór Bæring Besta blandan af tónlist á sunnudegi og létt spjall með Þór Bæring. Hækkaðu í gleðinni með K100. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 með Dj Dóru Júlíu. Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir 40 vinsælustu lög landsins á hverjum einasta sunnudegi. Tónlistinn er eini opinberi vinsældalisti landsins. 18 til 00 K100 tónlist Besta tónlistin dunar í allt kvöld. Kynleiðréttingarferlið erfið- ara en að róa í kringum landið Veiga Grétarsdóttir reri rangsælis í kringum landið á kajak og safnaði þannig áheitum fyrir Píeta-samtökin. Gerð var heimildarmynd um ferlið sem frumsýnd var á laugardaginn. Í samtali við morgunþáttinn Ísland vaknar sagðist Veiga bæði vera spennt og kvíðin fyrir frumsýningunni enda hafi hún opnað sig alveg gagn- vart sinni baráttu en hún hóf kynleiðréttingarferli fyrir sex árum síðan. Hún segir það ferli hafa verið erfiðara heldur en að róa í kringum landið. Viðtalið við Veigu má finna á K100.is. Berlín. AFP | Kvikmyndahátíðin í Berlín er með þeim helstu í Evrópu. Á miðvikudag sendi hátíðin frá sér greinargerð þar sem fram kemur að upphafsmaður hennar, Alfred Bauer, var innvígður og innmúr- aður í áróðursmaskínu nasista og faldi slóð sína eftir að seinni heims- styrjöld lauk. Í tilkynningu frá Berlinale, eins og hátíðin er kölluð, sagði að rann- sakendur hefðu komist að því að Bauer, sem stýrði hátíðinni frá 1951 til 1976, hefði verið háttsettur emb- ættismaður í svokallaðri kvik- myndastjórn þriðja ríkisins. Þessar uppljóstranir komu fyrst fram í tímaritinu Die Zeit í janúar. Joseph Göbbels, áróðursráðherra Adolfs Hitlers, stofnaði kvikmynda- stjórnina 1942 til að hafa umsjón með framleiðslu kvikmynda. Hlut- verk Bauers snerist um að sjá til þess að kvikmyndir ættu þátt í að efla stöðugleika og skilvirkni nas- istastjórnarinnar og ýta undir lög- mæti hennar í hugum fólks, að því er segir í yfirlýsingunni frá hátíð- inni. Þessar uppljóstranir urðu til þess að ákveðið var að helsta viðurkenn- ing hátíðarinnar yrði ekki lengur kennd við Bauer og stofnuð var sjálfstæð rannsóknarnefnd við stofnun um rannsóknir sam- tímasögu (Institut für Zeit- geschichte eða IfZ) í München til að fara ofan í málið. Mariette Rissenbeek, meðstjórn- andi hátíðarinnar, sagði að þær staðreyndir sem nú væru komnar í ljós og það að Bauer hefði tekist að halda fortíð sinni í stjórnkerfi nas- ista leyndu „uggvekjandi“. „Hér er um að ræða mikilvægan þátt í því að gera upp fortíð nasista í menningastofnunum, sem komið var á eftir 1945,“ var haft eftir henni í yfirlýsingu. „Hin nýja vitn- eskja breytir einnig viðhorfum til stofnára Berlinale-hátíðarinnar.“ Ötull félagi í SA Rissenbeek sagði að Bauer virtist hafa verið einn af mörgum þýskum embættismönnum úr menningar- geiranum, sem tekist hefði að sópa fortíð einni undir teppið og halda ferli sínum snurðulaust áfram eftir fall Hitlers þrátt fyrir viðleitni bandamanna til að uppræta nasista. Hún hvatti til þess að farið yrði ofan í það hvernig fortíð nasismans teygði sig inn í upphaf þýskrar kvikmyndagerðar eftirstríðsáranna. Sagnfræðistofnunin í München staðfesti að Bauer hefði verið í nas- istaflokknum og ötull félagsmaður í SA, sérsveitum Hitlers. Bauer gegndi einnig lykilhlut- verki í eftirliti með leikurum, fram- leiðendum og öðru fólki í kvikmynd- um. Eftir seinni heimsstyrjöld reyndi Bauer hins vegar að þurrka út öll ummerki um nasistafortíð sína og gekk svo langt að halda því fram í yfirheyrslum bandamanna að hann hefði veitt nasistum and- spyrnu. Sagnfræðingurinn Tobias Hof rannsakaði fortíð Bauers fyrir IfZ og sagði að hann hefði verið sérlega ófyrirleitinn í að fela fortíð sína og koma sér á framfæri eftir stríð. Í júlí 1950 hefði hann skrifað Ernst Reuter, borgarstjóra Berlínar, yf- irmönnum þriggja herja banda- manna í vesturhluta borgarinnar og forkólfum kvikmyndagerðar í Berl- ín bréf þar sem hann lagði til að stofnuð yrði kvikmyndastofnun og efnt til kvikmyndahátíðar. Hátíðinni var svo hleypt af stokkunum undir stjórn Bauers í júní 1951. Bauer lést árið 1986 og stofnaði hátíðin þá til verðlauna í nafni hans. Meðal mynda, sem hlotið hafa verð- launin, eru Aimer, boire et chanter (Elskum, drekkum og syngjum) eft- ir franska leikstjórann Alain Resna- is frá 2014 og Hetja eftir kínverska leikstjórann Zhang Yimou frá 2003. Kvikmyndahátíðin í Berlín þykir vera sú helsta í Evrópu ásamt há- tíðunum í Cannes og Feneyjum. Í ár hlaut íranski leikstjórinn Mohammad Rasoulof helstu verð- laun hátíðarinnar, Gullbjörninn, fyr- ir Það er ekkert illt, ádeilumynd um dauðrefsinguna í heimalandi hans. Unnið við uppsetningu fyrir kvikmyndahátíðina í Berlín í febrúar. Skuggi þykir hafa fallið á hátíðina eftir að í ljós kom að upphafsmaður hennar var innvígður nasisti. AFP KVIKMYNDAHÁTÍÐIN Í BERLÍN Upphafsmaður- inn var nasisti

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.