Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2020
LÍFSSTÍLL
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Góð ráð og
nýir litir á
slippfelagid.is
Hvaða litir
eru flottastir í
íslenskri birtu?
Kartöflur í öll mál!
Nú þegar nýjar kartöflur flæða yfir hillur verslana er ekki úr vegi að búa til
góða rétti úr þessum saðsömu og hollu jarðeplum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Fyrir 4
1 laukur
5-10 cm blaðlaukur
300 g gulrætur
½-1 msk. tamari-sósa
1 rófa, ca. 300 g
½ hvítkálshöfuð, ca. 250 g
150 g kartöflur
1 dl linsubaunir
½-1 dl hrísgrjón
2 l vatn
1-2 grænmetis- eða
sveppateningar
1 msk fersk steinselja, söxuð
1 msk. timían, mulið
1 msk. rósmarín, mulið
Bætið vatninu út í
ásamt afganginum af
hráefnunum og sjóðið í
a.m.k. 45 mín.
Smakkið til með salti.
Fjarlægið lárviðarlaufin áð-
ur en súpan er borin fram.
Frá graenkerar.is
salt
nokkur lárviðarlauf
Steikið lauk og blaðlauk
á pönnu upp úr olíu.
Bætið gulrótum við
ásamt tamari-sósu og
látið karmelliserast.
Kjötlaus kjötsúpa
Fyrir 4
1 kg stórar kartöflur, skrúbbaðar
1¼ bolli hveiti og smá auka til að
dreifa á borð
2 tsk. salt
1 egg, slegið saman
4 msk ósaltað smjör við stofuhita,
skorið í litla bita
60 g parmesanostur, rifinn fínt og
meira til að strá yfir að lokum
24 salvíulauf
ferskur svartur pipar
Sjóðið kartöflur í stórum potti í
um 45 mínútur, eða þar til soðnar.
Hellið vatni af og um leið og
þær eru nógu volgar til að með-
höndla, afhýðið þær og stappið vel
með kartöflustöppu. Kælið.
Setjið 1¼ bolla hveiti og 2 tsk
salt yfir kartöflustöppuna og gerið
með höndunum holu í miðju.
Hellið egginu í holuna og hrærið
með sleif. Dreifið hveiti á hreint
borð og færið deigið yfir og hnoð-
ið varlega þar til slétt en ekki
teygjanlegt, í um það bil tvær mín-
útur. Passið að ofhnoða ekki.
Skiptið deiginu í átta hluta. Rúll-
ið hverjum hluta í langan orm, um
60 cm langan og um 1½ cm á
breidd. Skerið í bita, um 1-1½ cm
stóra. Stráið hveiti yfir og raðið í
röð á bökunarpappír.
Blandið saman í skál smjöri,
parmesan og salvíu.
Sjóðið vatn og saltið. Setjið í
nokkrum hlutum gnocchi-bitana
út í sjóðandi vatn og sjóðið þar til
þeir fljóta upp á yfirborðið, í um
tvær mínútur.
Færið með gatasigti tilbúnu bit-
ana yfir í skálina með smjörblönd-
unni.
Þegar allir bitarnir eru komnir í
skálina, takið þá ½ bolla af soðinu
og blandið varlega saman við þar
til smjörið og osturinn bráðna
saman og mynda rjómakennda
sósu. Berið fram með meiri par-
mesan og svörtum pipar.
Kartöflu-gnocchi
Fyrir 4-5
1 stór laukur
2 hvítlauksrif
1 gulrót
350 g kartöflur
1 msk kókosolía
½ tsk. túrmerik
½ tsk. garam masala
½ tsk. karrí, milt
400 g saxaðir tómatar (ferskir eða
úr dós)
850 ml vatn
2 gerlausir grænmetisteningar
½ tsk. rautt karrímauk (meira eftir
smekk)
400 g kjúklingabaunir í dós
85 g frosnar grænar baunir (þessar
litlu sætu sem heita peas á ensku)
salt (himalaja- eða sjávarsalt)
svartur pipar eftir smekk
ferskur kóríander, nokkur lauf (má
sleppa)
Afhýðið lauk og hvítlauk og saxið
mjög smátt.
Skrælið kartöflur og gulrótina.
Skerið kartöflur í mjög smáa bita
og gulrótina í sneiðar.
Hitið kókosolíuna ásamt smá
vatni í stórum potti á meðalhita.
Bætið lauknum út í pottinn ásamt
hvítlauk og hitið í 3-4 mínútur eða
þar til laukurinn er farinn að mýkj-
ast. Ekki láta hann brúnast. Bætið
gulrótum, kartöflum, túrmerik,
garam masala og karríi saman við
laukinn og hvítlaukinn og hitið í
nokkrar mínútur.
Bætið tómötum, vatni, græn-
metisteningum og karrímauki
saman við ásamt svolitlu salti.
Minnkið hitann og setjið lokið yfir.
Hitið í 30 mínútur.
Bætið kjúklingabaununum og
grænu baununum út í og hitið í
um 15 mínútur.
Smakkið súpuna til með salti og
pipar og meira af karrímaukinu ef
þið viljið. Skreytið með söxuðum
kóríanderlaufum.
Frá cafesigrun.com.
Haustsúpa Sigrúnar