Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Blaðsíða 12
KÓRÓNUVEIRAN 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.10. 2020 T hor Aspelund kemur aðvífandi á myndarlegu rafmagnshjóli einn hrollkaldan en sólríkan haustdag í vikunni. Hann spennir af sér hjálm- inum og læsir hjólinu fyrir utan Há- skólatorg þar sem við höfðum mælt okkur mót. Ekkert er eins og það á að vera; torgið iðar ekki af blaðskellandi háskólanemum heldur læðist ein og ein mannvera um galtóman salinn með grímu fyrir vitum. Við innganginn er boðið upp á grímur og spritt og á hverju borði eru hreinsi- klútar. Svæðið er lokað af með böndum og skilt- um: Lokað vegna Covid. Við náum að kaupa okkur kaffi í bóksölunni og finnum afskekkt horn þar sem ekki er bannað að sitja. Tilgangur fundarins er að komast að því hver þessi maður er; maðurinn sem talar af skynsemi og yfirveg- un á skjám landsmanna og upplýsir okkur um tölfræðina á bak við veiruna. Thor er líftölfræðingur, sem er starfsheiti sem fæst okkar hafa hreinlega heyrt um áður. Líftölfræði er kennd á meistara- og doktors- stigi hjá Háskóla Íslands og veitir hagnýta þekkingu á því hvernig tölfræði er notuð í rannsóknum á sviði líffræði, erfðafræði, lýð- heilsu- og heilbrigðisvísinda, og veitir einnig sterkan grunn í tölfræði og gagnaúrvinnslu. Mikið er nú gott að til er fólk sem lagt hefur á sig þetta nám, því nú í heimsfaraldri er afar mikilvægt að hægt sé að reikna út þetta ólík- indatól sem veiran er, hvert hún fer, hvernig er best að tækla hana og við hverju við getum bú- ist. Dr. Thor Aspelund hefur hingað til verið maðurinn á bak við tjöldin, svo að segja, en í heimsfaraldri steig hann fram í sviðsljósið til að halda þjóðinni upplýstri, ásamt þríeykinu okkar góða. Allt til þess að við getum lifað eins eðlilegu lífi og mögulegt er á tímum heimsfaraldurs. Róleg innitýpa Thor fæddist í New York í upphafi ársins 1969, þriðja barn Erlings Aspelund og Kolbrúnar Þórhallsdóttur, en á þeim tíma bjó fjölskyldan á Long Island. „Faðir minn var stöðvarstjóri Loftleiða á Kennedy-flugvelli og svo fulltrúi forstjóra inni á Manhattan í Rockefeller Center. Mamma var flugfreyja þar til hún eignaðist börn en hún vann líka um tíma í fínum búðum inni á Manhattan,“ segir Thor og segir fæðingar- staðinn útskýra nafngiftina. „Það var ekki hægt að nota bókstafinn þ í Ameríkunni. Ég átti að heita Þór, en það var ekki hægt og var því skellt í Thor,“ segir hann og brosir út í annað. „Við fluttum heim stuttu eftir að ég fæddist þannig að ég missti af því að vera New York- búi. Bræður mínir tveir sem eru eldri ólust þar upp til átta og níu ára aldurs. Ég á einnig eina yngri systur,“ segir Thor. Eftir að fjölskyldan flutti heim tók faðir hans við starfi hótelstjóra á Hótel Loftleiðum. „Hann var þekktur fyrir það að vera hótel- stjórinn; það voru ekkert mörg hótel þá. Við bjuggum fyrst á Öldugötunni og fluttum svo þaðan út á Nes þegar ég var tíu ára. Ég lít allt- af á mig sem Vesturbæing. Ég var settur ári á undan í barnaskóla, því ég var snemma læs og mamma vissi ekkert hvað hún ætti að gera við mig. Ég var ekki gott leikskólabarn; kannski var ég bara innitýpa,“ segir hann og hlær. „Ég var mjög mikið inni að leika og var ró- legt barn, en fór auðvitað út í leiki, eins og var gert í þá daga,“ segir hann. Thor segist ekki hafa haft áhuga á vísindum sem barn. „Ég hafði strax brennandi áhuga á sögu og þá aðallega heimsstyrjöldunum. Við vinirnir vorum mikið í stríðsspilum, ég og Halli,“ segir hann og á við Harald Johannessen, ritstjóra Morgunblaðsins. „Sagan var í fyrsta sæti, en ég var samt allt- af góður í stærðfræði; það lá vel fyrir mér. Ég hugsaði ekkert út í það að verða eitthvað tengt stærðfræði á þessum árum. Ég man ég var alltaf mjög heillaður af fluginu, vegna tengsla pabba við Loftleiðir. Ég hefði alveg verið til í að verða flugmaður og gekk með þann draum lengi í maganum. Pabbi var líka duglegur að fljúga en hann átti litla Cessnu. En svo sé ég ekki nógu vel; ég er mjög nærsýnn. Svo fór líf- ið bara ekki í þá áttina.“ Lék Rómeó í Herranótt Eftir grunnskóla lá leiðin í Menntaskólann í Reykjavík og segir Thor að eiginlega ekkert annað hafi komið til greina, enda höfðu báðir bræður hans fetað þá braut. „Í menntaskóla fór ég að hugsa um aðra hluti, eins og menningarstarf, og fór líka að hugsa um námið á annan hátt, en ég var af- skaplega heppinn með kennara. Ég fékk mik- inn áhuga á leiklist og fór í leiklistarfélagið Herranótt. Ég var í tvö ár í Herranótt; seinna árið sem formaður. Þá settum við upp Rómeó og Júlíu og lék ég Rómeó,“ segir Thor og bros- ir að minningunni. Býr í þér leikari? „Kannski,“ segir hann sposkur. „Leikarinn í mér var þarna. En ég var kannski eitthvað feiminn við að fylgja því svo eftir. Þannig að ég fór aldrei í inntökuprófið í Leiklistarskólann.“ Eftir menntaskólann tók háskólinn við og hóf Thor nám í rafmagnsverkfræði og síðar í guðfræði. „Ég fór smá krókaleiðir, en ég hef alltaf haft áhuga á ýmsu. Ég kláraði eitt og hálft ár í raf- magnsverkfræði en áhuginn datt niður og ég var að velta fyrir mér hvað ég ætti að gera. Ég þekkti gott fólk í guðfræði og sló til og tók seinni hluta vetrar þar. Ég sá fljótt að guðfræðin yrði ekki að ævistarfi en þetta var heiðarleg skoðun á tilverunni og mjög ánægjulegur tími.“ Ertu trúaður? „Ég pæli mikið í trú og hvað trú þýðir. Það er erfitt að vera trúaður og vera í vísindum, en þetta getur vel farið saman. Ég er frekar að velta fyrir mér möguleikunum af því maður veit ekkert; það er ekkert í hendi. Ég les mikið um trúarbrögð, um kristni og um hinn sögu- lega Jesú. Ég vil ekki taka trú hátíðlega heldur spá og spekúlera. Svo hef ég mjög gaman af því að fara í kirkju og fer frekar oft í messu. Þar er gott að hugsa um lífið og tilveruna og um leið er það góð hvíld,“ segir Thor. „Ég er líka mikið í jóga og hugleiðslu. Þetta getur allt farið saman.“ Tilviljanir og tölfræði Eftir að Thor hafði prófað sig áfram í bæði verkfræði og guðfræði, hóf hann nám í stærð- fræði. „Ég fann mig strax vel í líkindafræði og töl- fræði og svo algebru, sem er frekar abstrakt. En ég hafði alltaf áhuga á hagnýtu hliðinni. Ég fékk ótrúlega gott tækifæri sem nemi; svona geta örlögin togað mann í réttar áttir. Kjartan Magnússon heitinn hafði kennt mér í MR og þarna hitti ég hann aftur, en hann var þá með rannsóknarverkefni og vantaði nema. Kjartan var að rannsaka fiskistofna fyrir Hafrann- sóknastofnun með Gunnari Stefánssyni töl- fræðingi og ég fæ þá þar vinnu við að skoða stofnstærðir fiska. Mér fannst svo spennandi að geta notað stærðfræðina í eitthvað hagnýtt. Svo þegar ég var búinn að læra meira í töl- fræði fór ég að vinna að rannsókn hjá dr. Hólmfríði K. Gunnarsdóttur. Hún var að rann- saka krabbamein vinnandi kvenna og hvernig það var mismunandi milli stétta. Þar kviknaði áhuginn á tölfræði tengdri heilbrigðisvís- indum. Það var tilviljun að ég lenti í þessum tveimur verkefnum en þarna sá ég hvernig hægt væri að nota tölfræði í hagnýtum verk- efnum og neistinn kviknaði. Ég fann þá hvar áhuginn lá og ákvað að halda áfram í tölfræði.“ Á háskólaárunum kynntist Thor konu sinni, lækninum Örnu Guðmundsdóttur. „Þar er komin enn ein læknatengingin,“ segir Thor og brosir. „Og svo er Guðrún systir mín læknir. Og reyndar yfirlæknir á sóttvarnasviði hjá Þór- ólfi. Við erum systkinin á kafi í að vinna við Co- vid. Hver hefði spáð því?“ Snemma á tíunda áratugnum flutti unga parið til Iowa í Bandaríkjunum með ungan son sinn. Arna hóf sérnám í innkirtlalækningum en Thor byrjaði í meistaranámi í tölfræði. Þar dvöldu þau í góðu yfirlæti í sex ár og eftir heimkomuna bættust tveir drengir í hópinn. „Ég tók líka doktorspróf í Iowa á meðan Arna var að klára sína sérgrein. Þarna var ró- legt og gott að vera.“ Thor skrifaði doktorsritgerð sína um töl- fræði greiningarhæfni í læknisfræði. „Ég gerði rannsóknir á greiningarhæfni myndgreiningar, aðallega röntgen. Þessi rann- sókn nýttist mér vel seinna meir. Þegar maður lærir eitthvað nýtt, veit maður ekki hvar það kemur til með að nýtast.“ Brjálað að gera Við heimkomuna hóf Thor störf hjá Hjarta- vernd undir handleiðslu Vilmundar Guðnason- ar, forstöðulæknis. Þar vann Thor að ýmsum rannsóknum og bjó til fjölmörg spálíkön. „Ég er enn að vinna að rannsóknum hjá Hjartavernd,“ segir Thor en hann er einnig prófessor í tölfræði. „Ég fann það strax í menntaskóla að akadem- ískt umhverfi átti vel við mig. Það er öruggur staður til að vera á,“ segir hann og hlær. Thor kenndi fyrst stærðfræði við Háskóla Íslands og seinna fór hann að kenna hjá Mið- stöð lýðheilsuvísinda, sem stofnuð var árið 2007, en þar er meðal annars kennd faralds- fræði. „Ég kem þá þar inn og byrja að kenna líftöl- fræði til meistara- og doktorsnáms. Ég hef far- ið alveg í þá áttina. Svo kenni ég lifunargrein- ingu og um spálíkön; aðferðir til að meta hversu lengi fólk lifir og áhættur í umhverfi. Svo kenni ég með hinum kennurunum í far- aldsfræði, auk stærðfræði. Þannig að ég er víða,“ segir Thor og segist njóta þess að miðla þekkingu til nemenda sinna. „Ég tala stundum svolítið hægt þannig að mér er sagt að nemendur mínir stilli á meiri hraða þegar þeir hlusta á fyrirlestra mína á netinu,“ segir hann og hlær. Thor er með puttana í fleiri verkefnum. „Ég er líka með sprotafyrirtæki sem heitir RetinaRisk, en þetta er alþjóðasamstarf sem tengist sykursýki og augnlækningum. Við erum að þróa app sem stýrir því hversu oft fólk fer til augnlækna og hversu mikla þjónustu fólk vill. Málið er að langflestir þurfa að fara sjaldnar til augnlækna en þeir gera og með þessu er hægt að spara mikið fé í heilbrigðiskerfinu. Ég er svo líka formaður skimunarráðs fyrir krabbamein- um. Þar erum við að móta stefnur varðandi skimun á krabbameini. Landlæknir á frum- kvæði að þessu með skimunarráðið; hún hefur mikla framtíðarsýn,“ segir Thor og viðurkennir að það sé yfrið nóg að gera. „Það er brjálað að gera, kannski aðeins of mikið.“ Kenndi Þórólfi tölfræði Í miðju viðtali heyrast lágar drunur, byggingin fer að titra sem endar með miklum dynk. Há- skólatorg skelfur. Eftir að hafa jafnað okkur á jarðskjálftanum notum við tækifærið og skipt- um yfir í mál málanna, kórónuveiruna og hlut- verk Thors í samfélagi sem er í heljargreipum heimsfaraldurs. „Ég var ekkert á þessu sviði, faraldsfræð- inni, og grunaði ekki að við ættum eftir að sjá svona veirufaraldur. Í febrúar, rétt áður en veiran kom hingað, fannst konu minni að ég þyrfti að fara að spá í þetta. Ég hugsaði þá: Hvað er ég að trana mér inn á þetta svið?“ seg- ir hann og hlær, en er nú löngu kominn á kaf í vinnu á þessu sviði. Í ljós kemur að Thor þekkti Þórólf Guðna- son vel áður. „Þórólfur sóttvarnalæknir tók doktorspróf í lýðheilsu hjá okkur og þekkir okkur vel. Það er gaman að vinna með honum og ég kenndi hon- um tölfræði. Hann var frábær nemandi, það er ekki að spyrja að því,“ segir hann kíminn. „Þórólfur hafði samband við okkur í byrjun mars og vildi hittast til að spá í málin. Við hitt- umst svo og ákváðum að það þyrfti að meta framgang faraldursins og ekki síst að hafa ein- hvers konar hugmynd um hvaða álag hann hefði á heilbrigðiskerfið. Það var alltaf fók- usinn; álagið á heilbrigðiskerfið. Þá var reynsl- an komin frá Kína að faraldurinn færi upp og niður í bylgjum. Þeir reyndar hömruðu þetta niður með svakalega hörðum aðgerðum. Við vorum sannfærð um það þá, og erum enn, að það væri hægt að halda þessu niðri með að- gerðum, en þær þyrftu að vera nokkuð stífar. Svo þegar þetta gekk niður hér í fyrstu bylgju, þá var þetta svolítið eins og í Kína. Þetta fór hratt upp og hratt niður, en við tókum mjög ákveðið á þessu sem þjóð í fyrstu bylgju. Þá hugsaði fólk, bæði hér og annars staðar á Að lifa með veirunni Líftölfræðingurinn Thor Aspelund er í hringiðu kórónuveirufaraldursins. Hann er maðurinn á bak við spálíkön, gröf og súlurit sem landinn rýnir vandlega í um þessar mundir. Thor telur að þjóðin þurfi að venjast sambúð við veiruna í ár í viðbót. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.