Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Blaðsíða 18
Aldís Eva notar Ralph
Lauren-jakkann mikið.
Gerir mikið
fyrir andlegu
hliðina að
gera sig til
Aldís Eva Kristjánsdóttir er stafrænn sérfræðingur
hjá Kringlunni. Hún er vön því að undirbúa kaup
sín vel á netinu en klárar oftast kaupin í versl-
uninni sjálfri. Aldís Eva þekkir vel inn á net-
verslanir en hún stóð meðal annars að því að gera
vörur Kringlunnar aðgengilegar á netinu.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is
Ég á mjög erfitt með að setjafatastílinn minn í eitt box. Égelska kjóla, ég klæðist kjól
nánast daglega en ef þú sérð mig
ekki í kjól þá er það „sporty spice“, í
Nike frá toppi til táar,“ segir Aldís
Eva þegar hún er beðin um að lýsa
fatastílnum sínum.
Í vinnunni klæðist Aldís Eva
gjarnan buxum.
„Ég er í leðurbuxum eða gallabux-
um alla daga og svo er það misjafnt
hvort það er kjóll eða blússa og fal-
legur jakki við.“
Aldís Eva vinnur töluvert heima
eins og svo margir aðrir um þessar
mundir og hefur sig til á hverjum
degi.
„Mér finnst mjög mikilvægt að
gera mig til þegar ég vinn heima.
Ég mála mig og greiði en Nike-
gallinn verður þó fyrir valinu í 90%
tilvika í staðinn fyrir fínni fatnað.
Það gerir bara svo mikið fyrir
andlegu hliðina að gera sig til og
taka göngutúr í hádeginu en ekki
bara vera á náttfötunum allan dag-
inn.“
Skoðar á netinu áður en
hún kaupir
„Ég er mikill vafrari á netinu, ég
undirbý nánast öll kaup á netinu,
það er bara svo þægilegt að vita
hvort varan sé til og í þinni stærð.
Kringlan.is er því algjörlega bjarg-
vættur í þessum málum. Ég er í
vinnunni að fara yfir nýjar vörur á
Kringlan.is og finn þá alltaf eitthvað
nýtt og spennandi sem fær mig til
þess að vilja kíkja í ákveðnar versl-
anir, máta vöruna og klára kaupin
þannig. Ég klára nánast aldrei kaup
á netinu, ekki nema varan sé ekki til
í minni stærð eða slíkt í verslun,“
segir Aldís Eva um kauphegðun
sína.
Aldís Eva segir það fyrst og
fremst þægilegt að versla á netinu.
Það opnar líka augu fólks fyrir nýj-
um vörumerkjum þar sem margir
eiga það til að fara alltaf inn í sömu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Nýja Tokyo línan
komin í sýningasal
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.10. 2020
LÍFSSTÍLL