Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 2020 Þau undur og stórmerki áttu sér stað í vikunni að Max Cavalera, söngvari og gítarleikari málmbandanna Soulfly, Cavalera Conspiracy og Killer Be Killed og áður Sepult- ura, lét klippa af sér „vörumerki“ sitt, dreddlokkana sem hann hefur borið stoltur undanfarin 23 ár. Eiginkona hans og umboðsmaður, Gloria Cavalera, birti meðfylgjandi mynd á samfélagsmiðlinum Instagram og lét eftirfarandi orð fylgja: „Það hlýtur að snjóa í víti í dag!“ Alls kyns athugasemdir voru gerðar við færsluna og virtust aðdáendur kappans upp til hópa hryggir yfir gjörn- ingnum og a.m.k. einn fór fram á að dreddarnir yrðu límd- ir aftur á. Annar lagði til að þeir yrðu settir á safn og enn annar lýsti efasemdum um að þetta væru í reynd dreddar, heldur eitthvert óskilgreint dýr. Af myndinni að dæma er Cavalera sjálfur þó bara hinn sáttasti enda að líkindum einhverjum kílóum léttari. Af Max Cavalera er það annars að frétta að önnur breið- skífa stjörnubandsins Killer be Killed, Reluctant Hero, er væntanleg í allar betri plötuverslanir 20. nóvember. Með honum í bandinu eru Íslandsvinurinn Troy Sanders úr Mastodon, Greg Puciato úr The Dillinger Escape Plan og Ben Koller úr Converge. Það hlýtur að snjóa í víti! Max og Gloria Cavalera að gjörningi loknum. Instagram Brasilíski söngvarinn og gítarleikarinn Max Cavalera losar sig við frægustu dreddlokkana í málmheimum sem hann hefur skartað frá 1997. Á þessum degi fyrir fimmtíu ár- um sendi Stabley nokkur Uys Morgunblaðinu þá frétt frá Höfðaborg að suðurafríski pró- fessorinn og brautryðjandinn í hjartaflutningum, Christiaan Barnard, teldi hugsanlegt að þeir tímar kynnu að koma að hægt yrði að þróa „afburðakyn hrausts og gáfaðs fólks, ónæmt fyrir öll- um sjúkdómum“. „Telur prófessorinn þetta vera mögulegt með því að frjóvga valdar kveneggfrumur með völd- um sæðisfrumum karlmanna,“ stóð í fréttinni. „Þannig mætti t.d. frysta og geyma í sérstökum banka eggfrumnur kvenna, sem hafa góða skapgerðareiginleika og aðra sérstaka kosti – og á sama hátt mætti geyma sæðisfrumur karlmanna valdar á sama hátt,“ var haft eftir prófessor Barnard. „Með því að notast við þetta tvennt getum við skapað börn, sem hafa aðeins góða skapgerð- areiginleika.“ Prófessorinn bætti við að hugs- anlega mætti „skapa“ frábæran tónlistarmann á þennan hátt. „Við myndum taka eggfrumu mjög músíkalskrar konu og frjóvga með sæðisfrumu mjög góðs tónlistarmanns, koma hinu frjóvgaða eggi fyrir í konu, sem ekkert veit um tónlist, og á þenn- an hátt mundi fæðast frábær tón- listarmaður.“ GAMLA FRÉTTIN Afburða- kyn fólks Wikipedia Christiaan Barnard lést árið 2001 án þess að hafa „skap- að“ ofurmennið. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Veiga Grétarsdóttir kajakræðari Anna Lóa Ólafsdóttir atvinnulífstengill Meryl Streep leikkona Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL MADE INDENMARK Lama rúmin eru vönduð, falleg og þekkt fyrir að veita heilbrigðan og góðan svefn. Þau hafa verið framleidd í Danmörku síðan 1939. Hægt er að fá þau með eða án stillanlegum botni. Í boði eru þrír litir á áklæði og margar tegundir fóta og rúmgafla. Lama Premium rúmin eru með sérstakan mjóbaks- stuðning og meiri dýpt fyrir axlir. Ef þú vilt að öxlin detti meira ofan í dýnuna er Premium línan fyrir þig.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.