Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Blaðsíða 19
búðirnar þegar þeir fara í Kringluna. Að koma Kringlunni á net- ið var þó ekki auðvelt verkefni. „Í Kringlunni eru yfir 100 verslanir, með ólík birgðakerfi og á mjög svo misjöfnum stað. Tækni- lausnin sem við erum að vinna með hefur gert okkur kleift að bjóða öllum verslunum í Kringlunni að vera með, hvort sem þær eru með net- verslun eða ekki. Margar verslanir eru því að færa sig yfir á netið í fyrsta skipti og vinnum við þessi mál mjög náið með versl- unum,“ segir Aldís Eva. Hún bendir á að vör- urnar í netversluninni eru yfir 150 þúsund frá 75 verslunum og fer þeim sífellt fjölg- andi. Ralph Lauren- jakkinn er í uppá- haldi „Ég á enga uppáhaldsbúð, ég á frekar uppáhalds- merki. Ég elska töff strigaskó frá Calvin Klein sem Steinar Waage selur. Ég kaupi mikið af kjólum og skyrt- um í versluninni MAIA, fatn- aðurinn frá Ralph Lauren er alltaf í miklu uppáhaldi, hvort sem það er sparifatnaður eða kósígallinn en ég kaupi það í versluninni Mathilda. Svo má ekki gleyma íþróttafatn- aðinum frá Nike sem ég kaupi hjá AIR og Úti- lífi að mestu.“ Haða flík er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Það er mjög erfitt að velja eina flík, en akkúrat núna myndi ég segja Rosemunde myntugræni kjóll- inn minn frá versl- uninni MAIA og Ralph Lauren- jakkinn minn frá Mathilda, hann gengur hreinlega við allt. Svo verð ég reyndar að nefna loðkragann minn frá Feld verkstæði, sem ég keypti hjá versluninni Geysi, ég treð honum við alla jakka og yfirhafn- ir.“ Bestu kaup sem þú hefur gert? „Nýja Dyngju-dúnúlpan mín frá 66°Norður, mig lang- ar hreinlega bara að búa í henni.“ Er eitthvað á óskalistanum fyrir haustið? „Þegar það fer að kólna elska ég ekkert meira en töff peysur og kápur, helst með loðkraga, ég er mjög veik fyrir fallegum feldum. En annars erum við að gera miklar breytingar hér heima og því fylgja alls- kyns fallegar gersemar inn á heimilið. Þegar það er búið ætla ég að fjárfesta í fölbleika matarstellinu sem var að koma frá Iittala,“ segir Aldís Eva. Aldís Eva á gott skósafn. Bleika jakkann fékk Aldís Eva í gjöf frá vinkonu sinni. Leðurbux- urnar keypti hún í Vera Moda en hún er oft í bux- um þaðan í vinnunni. Strigaskórnir eru frá Calvin Klein. Aldís Eva elskar kjóla. Hér er hún í myntu- grænum glimmerkjól frá Rosemunde. Kjól- inn keypti hún í versl- uninni MAIA. Skórnir eru frá Vagabond. Úlpan frá 66̊Norður kemur að góðum not- um í kólnandi veðri. Fallegt skart setur punktinn yfir i-ið. Michael Kors-strigaskórnir eru í uppá- haldi við glimmerkjóla og hversdags. 25.10. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Innréttingar • Íslenskar sérsmíðaðar innréttingar • Gæði og fyrsta flokks hönnun • Mikið úrval efnis og lita Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.