Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Blaðsíða 14
Innilokuð
ungmenni
Óvenjumörg börn og unglingar hafa þurft
að fara í sóttkví eða einangrun á síðustu
vikum. Morgunblaðið bankaði upp á hjá
innilokuðum ungmennum.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
KÓRÓNUVEIRAN
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.10. 2020
Á Seltjarnarnesi býr sex manna fjölskylda ogeru þrjú smituð í einangrun og þrjú heima ísóttkví. Daníel Þór Þórsson, tíu ára, og
Sara Bryndís Þórsdóttir, 22 ára, eru í sóttkví með
móður sinni, Maríu Björk Óskarsdóttur, á meðan
faðir þeirra, Þór Sigurgeirsson, og tvær systur eru
smituð og í einangrun í sveit, en þær eru í viðtali á
næstu síðu. María segir síðustu vikur hafi verið í
meira lagi krefjandi og segir þau ólýsanlega þakklát
vinum og vandamönnum, því án þeirra hefðu þau
ekki komist í gegnum þessa erfiðu tíma.
Þið sluppuð við að smitast en lendið í heljarinnar
sóttkví!
„Já, nítján daga sóttkví. Við komumst í gegnum
þrjá smitaða í fjölskyldunni, án þess að smitast, en
þau greindust öll á mismunandi tímum,“ segir Sara,
laganemi við Háskóla Íslands.
Hvernig er þessi tími búinn að vera?
„Dagarnir bara flæða, það eru allir dagar eins.
Þegar einhver greindist aftur var maður svekktur
og áhyggjufullur en svo þegar leið á róaðist maður
aðeins,“ segir Sara.
Fenguð þið sjokk þegar pabbi ykkar greindist?
„Já, mjög mikið,“ segir Daníel, nemi í Mýrar-
húsaskóla.
„Pabbi var líka mjög veikur, en var kannski ekk-
ert að segja okkur allt til að hræða okkur ekki,“ seg-
ir Sara.
Hvernig hefur þér liðið í sóttkví, Daníel?
„Mér leið alveg vel en það var leiðinlegt að kom-
ast ekki í skólann eða neitt. Og fá ekki að leika við
vini. Mér er búið að leiðast mikið. Ég er mest búinn
að horfa á sjónvarpið, læra og vera í Playstation.“
María skýtur inn í að drengurinn hafi fengið ótak-
markaðan tölvutíma, því þar hafði hann líka tæki-
færi til að tala við vini sína. Einnig hafa verið kósí-
kvöld öll kvöld.
„Já, okkur leiddist ekkert ótrúlega mikið,“ segir
Sara. „Ég var líka í tímum á netinu og að reyna að
læra en það var oft mjög erfitt dagana þegar ein-
hver var að greinast. Við þurftum að sótthreinsa allt
húsið og koma fjölskyldumeðlim út af heimilinu. Við
vorum að sótthreinsa allt sem allir snertu, meira að
segja bananana. Það var allt tekið í gegn, hver ein-
asti hlutur. Þá fór einbeitingin og áhyggjurnar juk-
ust, dagurinn á eftir var líka erfiður bara það að ná
aftur áttum, þetta hefur verið krefjandi tími ekki
síst andlega. Dagurinn sem maður fer í sýnatöku fer
líka til spillis, en ég er búin að fara þrisvar núna, en
hafði farið einu sinni áður,“ segir Sara og segir það
hafa verið mikinn létti í vikunni þegar þau þrjú
fengu góðar fréttir úr prófinu. Öll neikvæð.
SYSTKINI Á SELTJARNARNESI
Sótthreinsaðir bananar
Sara Bryndís og bróðir
hennar Daníel Þór lentu
í nítján daga sóttkví.
TVÍBURAR Í REYKJAVÍK
Föst inni í herbergi
Lára Guðbjörg og Theodór
Guðmundsbörn eru þrettán
ára og í sóttkví í annað sinn.
Þrettán ára tvíburasystkinin Lára Guðbjörg og Theodór Guðmundsbörn eru ísóttkví í annað skipti. Morgunblaðið náði tali af þeim í síma tveimur dögum áð-ur en þau myndu vonandi losna úr prísundinni. Krakkarnir báru sig vel, enda
segja þau bæði kosti og galla við sóttkvína.
Lára Guðbjörg svarar fyrst spurningum blaðamanns, en hún er þrettán ára nemi í
Réttarholtsskóla.
Hvað ertu búin að vera lengi í sóttkví?
„Ég er búin að vera í sóttkví í fimm daga, en ég var sett í sóttkví vegna þess að einn
í bekknum mínum fékk Covid,“ segir Lára.
„Tvíburabróðir minn er líka í sóttkví. Það var allur áttundi bekkur eða alla vega
bekkurinn minn settur í sóttkví.“
Hvernig hefur þetta verið?
„Ég get alla vega sofið eins mikið og ég vil, en það er leiðinlegt að geta ekki farið út
úr herberginu mínu, því mamma og pabbi voru ekki í sóttkví. Þannig að ég hef verið
svolítið föst inni í herbergi. Ég get alveg lært heima, en var ekkert sérlega dugleg,“
viðurkennir Lára.
„Ég er búin að sofa svolítið mikið og horfa á Netflix. Ég er komin með leiða á því
núna. Ég fer í sýnatöku bráðum en ég er alveg frísk. Þessi smitaði var ekki með mikil
einkenni. Ég vona að ég sé ekki með Covid, þá losna ég fljótt.“
Bróðir hennar Theodór fær símtólið.
Hvernig er búið að vera í sóttkví?
„Það er búið að vera fínt, ekkert of hræðilegt. Það er verst að þurfa að vera með
grímur og hanska þegar við erum niðri, það er pirrandi. Það góða við þetta er að við
fáum að sofa út. Við erum í sóttkví í annað sinn, við Lára,“ segir Theodór sem er
handleggsbrotinn.
Hvað gerðist?
„Ég lenti í íþróttaslysi á parkour-æfingu. Það var rosalega vont. Ég losna úr gifsi í
lok október.“